Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.03.2014, Qupperneq 29

Ægir - 01.03.2014, Qupperneq 29
29 fyrir áhöfnina þannig að hægt verður að hafa úthöldin lengri án þess að það komi niður á þægindum. Mikil nýting og fjölbreyttur útflutningur Hermann segir allan afla báta- flota Stakkavíkur fara til vinnslu hjá fyrirtækinu og þaðan í út- flutning. Vanti hráefni sé það keypt á mörkuðum. Fyrirtækið flytur aðallega út þorsk með roði, roðlausan eða hausaðan. Einnig flytur Stakka- vík út talsvert magn af steinbít og ýsu með eða án roðs. Allar aukaafurðir af fiskinum eru nýttar; þorskhausar gellaðir og þurrkaðir ásamt öðrum haus- um, einnig eru öll bein og hryggir nýtt. Hrogn og lifur eru einnig nýtt. Helstu viðskiptavinir Stakka- víkur eru í Bandaríkjunum, á Ír- landi, Englandi, í Belgíu, Sviss og Þýskalandi. Fiskvinnsla í ferðaþjónustu Hjá Stakkavík starfa um 100 manns til sjós og lands. Fisk- vinnslan búin eins og best verður á kosið í dag og vel er búið á allan hátt að starfsfólki. En áhugasvið Hermanns og Gests liggja víðar. Stakkavík hefur líka haslað sér völl í ferða- mannaþjónustu og býður gest- um að upplifa fiskvinnsluna og skoða í stórum sýningarsal framleiðsluferlið frá því fisk- urinn kemur í hús og þar til hann er tilbúinn til útflutnings. Einnig er sýnd DVD mynd úr róðri á Þorkötlu GK-9, sem er í eigu Stakkavíkur, þar sem lína er lögð og dregin. Myndin er að hluta tekin neðarsjávar þar sem hægt er að sjá þegar fiskurinn er veiddur og er óhætt að segja að myndin sé afar fróðleg. Á meðan horft er á myndina er boðið upp á sjávarréttasúpu og fiskrétt ásamt borðvíni fyrir þá sem það kjósa. Og áhugasvið þeirra Stakka- víkurmanna liggja víða því Her- mann hefur einnig komið sér upp myndarlegu safni dráttar- véla og á á fjórða tug slíkra í góðu ástandi. Þá er ónefnt safn fornbifreiða en áhugamálunum sinnir hann á kvöldin og um helgar. Enda annar tími fullbók- aður í rekstri fyrirtækisins. Bræðurnir Hermann og Gestur Ólafssynir fá upplýsingar um veiði dags- ins. Hermann Ólafsson, framkvæmdastjóri Stakkavíkur.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.