Ægir - 01.03.2015, Blaðsíða 8
8
„Tilkoma strandveiðikerfisins
og síðan aukin makrílveiði smá
báta hleyptu miklu lífi í sölu á
búnaði frá okkur á síðustu ár
um en mér finnst innanlands
markaðurinn vera smám saman
að leita aftur jafnvægis. Þó er
það yfirleitt þannig að það
kemur mikill kippur í sölu þeg
ar líður lengra fram á vorið og
veiðarnar hefjast af alvöru og
þannig verður það vafalaust
líka nú í ár,“ segir Kristján Björn
Garðarsson, rekstrarstjóri DNG
hjá Slippnum á Akureyri ehf.
Sjálfvirknin tekur við
Nýjasta færavinda DNG heitir
C-6000i og er mjög öflugt veiði-
tæki. Með sjálfvirkum hætti
rennir vindan línunni út og
nemur þegar sakkan nær botni.
Tækið sér um að keipa og getur
notandinn stillt hvernig keip
hann vill nota hverju sinni. Þeg-
ar síðan fiskur bítur á krókana
skynjar vindan það og dregur
línuna inn þegar afla er náð.
Óhætt er að segja að tæknin
hafi yfirtekið mörg handtökin á
færaveiðum.
DNG vindurnar mörkuðu
tímamót í veiðum smábáta á
sínum tíma og eru nokkrar kyn-
slóðir af þessum búnaði í notk-
un í flotanum. „Við erum komn-
ir að þeim tímapunkti að marg-
ar elstu færavindurnar eru að
ganga úr sér, einfaldlega vegna
þess að erfitt er að fá varahluti,
þó við gerum það sem við get-
um til að útvega þá. Hluti af
okkar sölu er því vegna endur-
nýjunar á elstu vindunum yfir í
það nýjasta frá okkur en auk
þess ber almenn endurnýjun
uppi söluna hjá okkur, auk þess
Mikilvægt að viðhalda
breidd og fjölbreytni
í smábátaútgerð
- segir Kristján Björn Garðarsson, rekstrarstjóri DNG
Kristján Björn Garðarsson, rekstrarstjóri DNG, við færavindur í lokaprófunum áður en þær fara til kaupenda.
S
m
á
b
á
ta
r