Ægir - 01.03.2015, Blaðsíða 11
11
Strandgötu 1 Neskaupstað Sími:4700 800 Fax:4700 801
• Veiðarfæraþjónusta
• Gúmmíbátaþjónusta
• Fiskeldisþjónusta
Stöðug þróun veiðarfæra í samvinnu
við sjómenn og útgerðir.
Fjarðanet er aðili að Hampidjan Group
Neskaupstaður / Fjáskrúðsfjörður / Akureyri / Ísafjörður
www.fjardanet.is fjardanet@fjardanet.is
Víðtæk þekking og reynsla
í uppsetningu og gerð veiðarfæra
Alhliða veiðarfæraþjónusta í höndum fagmanna
Niðurstöður nýrrar rannsóknar
sem unnin var í samstarfi Mat
ís, Primex ehf. á Siglufirði,
Fjarðalax hf. og Ramma hf.
sýna að sé sjávarfang með
höndlað með kítósan þá aukast
gæði og geymsluþol. Verkefnið
naut stuðnings AVS sjóðsins.
Primex hf. framleiðir kítósan
en um er að ræða stórsameind
sem unnin er úr kítíni í skeldýr-
um en fyrirtækið framleiðir efn-
ið úr rækjuskel.
„Í verkefninu var því þróuð
aðferð til að meðhöndla sjávar-
fang með kítósani og mismun-
andi blöndur efnisins prófaðar.
Þrjár mismunandi sjávarafurðir
voru valdar til prófunar; rækja,
lax og þorskur. Niðurstöðurnar
sýndu að ákveðnar blöndur
kítósans hægja á skemmdarferl-
inu, sérstaklega í heilum fiski.
Mikilvægt er að meðhöndlun sé
framkvæmd strax eftir veiði eða
slátrun til að hámarka virkni
meðferðarinnar og að kjörað-
stæður séu fyrir hendi við
geymslu fiskafurða,“ segir um
niðurstöður verkefnisins í frétt
frá Matís þar sem einnig er bent
á mikla notkunarmöguleika
kítósans. Efnið hefur mest verið
notað sem fitubindiefni í melt-
ingarvegi og við þróun á vörum
til meðhöndlunar á sárum.
„Enn annar eiginleiki þess er
hamlandi áhrif á vöxt baktería
sem kemur að góðum notum til
að viðhalda gæðum matvæla.
Það hentar einkar vel fyrir sjáv-
arafurðir þar sem þær eru al-
mennt viðkvæmar vörur með
skamman geymslutíma þar
sem skemmdarbakteríur dafna
vel.“
Kítósan eykur gæði og
geymsluþol sjávarfangs
Rækjuskel er notuð í framleiðslu kítósans hjá Primex á Siglufirði.
F
réttir