Ægir - 01.03.2015, Blaðsíða 15
15
Góð grásleppuveiði í vor þarf
ekki að koma á óvart í ljósi nið
urstaðna úr vorralli Hafrann
sóknastofnunar en mælingarn
ar sýndu rúmlega 40% hækkun
stofnvísitölu grásleppu frá í
fyrra. Sama vísitala var í lág
marki árið 2013 og hefur hækk
að tvö ár í röð. Hún er nú sú
hæsta sem mælst hefur í 9 ár.
Tillaga Hafrannsóknastofn-
unar á grunni þessara mælinga
voru að heildarafli á grásleppu-
vertíðinni í ár verði 6200 tonn,
eða sem nemur 2000 tonnum
meiri en á vertíðinni í fyrra.
„Hlutfall stórrar grásleppu
(45-55 cm) er þó áfram lágt,“
segir í niðurstöðum stofnmæl-
ingarinnar, „er nú um 7% af
fjölda fiska, en var um fjórðung-
ur fiska í hrygningarstofni í
upphafi stofnmælingarinnar ár-
ið 1985. Dreifing grásleppunn-
ar í ralli í ár er austlægari en í
fyrra. Merkingar sýna að grá-
sleppan er á töluverðri hreyf-
ingu eftir að hún kemur uppá
grunnin og ferðast oft langar
vegalengdir áður en hún
veiðist. Það er því líklegt að ein-
hver hluti grásleppunnar sem
var fyrir Austurlandi og austan-
verðu Norðurlandi þegar stofn-
mælingin fór fram muni dreifa
sér víðar með ströndinni.
Grásleppu-
vísitalan
hækkar hratt
Grásleppuvísitalan mældist lág árið 2013 en er nú orðin sú hæsta í 9 ár.
Dreifing grásleppu í stofnmælingu, þ.e. fjöldi í togi, vorin 2014 og 2015.
Hlutfall stórrar grásleppu (45-55 cm) í stofnmælingu botnfiska í mars
1985-2015. Skýringamyndir: Hafrannsóknastofnun
Heildarvísitala grásleppu (þyngd) ásamt staðalfráviki úr stofnmælingu
bornfiska í mars 1985-2015.
R
a
n
n
sók
n
ir