Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2015, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.1. 2015
HEIMURINN
BÍA
bl ggaranum fR
0 svipuhöggu
ðJeddah við Rauða
ðga íslam“. Dóm
mmber tíu ára fan
refs
ili.kipt
am a í N
, a
u
ðs
1gunu
KINNDARÍBA
OWASHINGT
maOb stikjafBandarí o
stuðyfir
Pen exíkó,M
lyfjumí ba
ð í Hvítaþeg
nta, sem
talið er að gis,agen
hefur vakið
undir Niet n
við þegar h
Stúdentarn
mótmælum
KLAND
uruverkamenn réðust inn á
ins rlie Hebdo rís og myrtuí Pa
og þrjá afmanns, þar á meðal ritstjórann12
þ .Tímaritið hefurkktustu skopteiknurum landsinse
spámanninum Múhameð og veriðeðal annars birt skopmyndir af
u þy augu . yðjum rnir í m Hr vúslimskum bókstafstrúarmönnm r
rásarmennirnir komust undverið fordæmt um allan heim. Á en féllu í
Skoptímaritið Charlie Hebdohefur markað sér sess ífranskri menningu með
hvassri ádeilu og ágengni. Blaðinu
er ekkert heilagt og hefur sent
skeyti sín í allar áttir. Mest hefur
verið fjallað um ádeilu blaðsins á
viðhorf íslamista, en það hefur gert
forpokun, þröngsýni og öfgar hvar
sem er að skotspæni. Tilmæli um
að taka broddinn úr ádeilunni á
öfgar í íslam féllu í grýttan jarð-
veg, jafnvel þótt þau kæmu frá
stjórnvöldum. Á miðvikudag réðust
hryðjuverkamenn inn á ritstjórn
blaðsins og myrtu 12 manns, þar á
meðal Stéphane „Charb“ Charb-
onnier, ritstjóra þess, og þrjá aðra
teiknara, sem voru meðal þeirra
helstu í Frakklandi.
Hefð fyrir háði
Frakkar kunna að meta háðsádeilu
og skopteikningar. Andrew Hussey
segir í grein í The New York Tim-
es að ögranir blaðsins tilheyri Par-
ísarhefð frá því fyrir frönsku bylt-
inguna, sem kallist „L’esprit
frondeur“ eða slöngvivaðsháð og
beindist þá meðal annars að kon-
ungsfjölskyldunni.
Charlie Hebdo var stofnað 1970
þegar blaðið Hara-Kiri Hebdo var
bannað fyrir að gera grín að and-
láti Charles de Gaulles, fyrrverandi
forseta Frakklands, á heimili sínu í
Colombey-les-Deux-Églises. Á for-
síðu blaðsins stóð „Harmleikur á
balli í Columbey: 1 látinn“. Fyrir-
sögnin var vísun í að skömmu fyrr
höfðu 146 látið lífið í eldsvoða í
diskóteki.
Tveir teiknarar, sem létust í
árásinni á miðvikudag, Jean Cabut
og Georges Wolinski, voru á rit-
stjórn Hara-Kiri og tóku þátt í
stofnun hins nýja blaðs.
Nafnið Charlie vísar til Kalla
Bjarna í bandarísku teiknimynda-
seríunni Smáfólki, sem var birt í
blaðinu, en mun einnig vísa til
Charles de Gaulles. Hebdo þýðir
vikulega.
Blaðið hætti að koma út 1981
vegna fækkunar lesenda, en útgáfa
þess hófst að nýju 1992.
2006 birti danska blaðið Jyl-
lands-Posten skopteikningar af Mú-
hameð spámanni, sem leystu úr
læðingi öldu mótmæla meðal músl-
ima. Reiði þeirra beindist einnig að
Charlie Hebdo þegar teikningarnar
voru endurbirtar þar og nokkrum
bætt við.
2011 brást Charlie Hebdo við
kosningasigri íslamista í Túnis með
sérútgáfu. Titlinum var breytt í
Charia Hebdo eftir íslömskum
sjaríalögum og sagði að Múhameð
spámaður væri gestaritstjóri. Á
forsíðunni var teikning af spámann-
inum þar sem hann var látinn hóta
hverjum þeim 100 svipuhöggum
sem ekki dæi úr hlátri. Skömmu
síðar var eldsprengju varpað inn á
ritstjórnarskrifstofurnar, sem ger-
eyðilögðust, en engan sakaði.
2012 var blaðið aftur á ferðinni
og birti skopteikningar af Múham-
eð eftir að heiftarleg mótmæli
brutust út meðal múslima vegna
bandarískrar myndar þar sem lítið
var gert úr spámanninum með
smekklausum hætti.
Þá brugðust meira að segja
frönsk stjórnvöld við. „Er virkilega
skynsamlegt eða gáfulegt að hella
olíu á eldinn?“ sagði Laurent Fab-
ius, sem þá var utanríkisráðherra.
Frakkar lokuðu sendiráðum, ræðis-
mannsskrifstofum, skólum og
menningarmiðstöðvum í fjölda
landa út af mótmælunum.
Í janúar 2013 gaf blaðið út sér-
stakt skophefti, sem hét „Líf Mú-
hameðs – upphaf spámanns“ eftir
Charbonnier. Hann skrifaði að
hann væri viss um að múslimar
hefðu skopskyn. Í tölublaði Charlie
Hebdo sem fylgdi þessari útgáfu
var viðtal við sérfræðing í íslam,
sem sagði að hvergi í Kóraninum
segði að ekki mætti gera mynd af
Múhameð.
Háð um öll trúarbrögð
Daginn sem árásin var gerð á blað-
ið birti það teikningu af rithöfund-
inum Michel Houellebecq í tilefni
af nýrri skáldsögu hans þar sem
íslamistar komast til valda í Frakk-
landi 2022.
Charlie Hebdo hefur oft verið
gagnrýnt fyrir að vega sérstaklega
að íslam. „Sá sem segir það les
okkur ekki,“ sagði Charbonnier í
viðtali við þýska blaðið Die Zeit
2012. „Við gerum grín að öllum
trúarbrögðum.“ Hann sagði að á 20
árum hefðu komið út 1.060 tölublöð
og forsíðan hefði aðeins verið helg-
uð íslam þrisvar.
„Á sama tíma kom til fjórtán
málaferla af hálfu katólikka lengst
til hægri vegna þess að við gerðum
grín að trú þeirra. Samtök múslima
stefndu okkur aðeins einu sinni.“
Þegar Charbonnier var spurður
hvað hann segði við fólk, sem
spyrði hvers vegna hann þyrfti að
teikna Múhameð með beran bak-
hluta, svaraði hann: „Við viljum fá
fólk til að hlæja og hugsa. Við ger-
um það sem grínistar gera oft: lát-
um reyna á mörk og förum líka út
fyrir þau. Það er þeim mun betra
ef teikning er snjöll, ef ekki er það
ekki svo slæmt.“
Þegar Charbonnier varð skot-
mark á lista hryðjuverkasamtak-
anna al-Qaeda sagði hann í samtali
við Le Monde að hann óttaðist ekki
hefndaraðgerðir og vildi frekar
„deyja uppréttur en á hnjánum“.
Á meðan viðureign lögreglu og
árásarmannanna fór fram á föstu-
dag byrjuðu þeir starfsmenn
Charlie Hebdo, sem lifðu árásina
af, að vinna að næsta tölublaði, sem
á að koma út á miðvikudag. Skrif-
stofur blaðsins eru innsiglaðar eftir
árásina og fengu þeir húsnæði hjá
blaðinu Liberation og tölvubúnað
hjá Le Monde. Gert er ráð fyrir að
prentuð verði milljón eintök í stað
60 þúsund venjulega. Þeir ætla að
sýna að öfgamenn komist ekki upp
með að kæfa málfrelsið.
Frekar deyja
uppréttur en
á hnjánum
SKOPTÍMARITIÐ CHARLIE HEBDO ER ÞEKKT FYRIR AÐ UM-
GANGAST VIÐFANGSEFNI SÍN AF FULLKOMNU VIRÐINGAR-
LEYSI. ÞAÐ BAKAÐI SÉR MARGSINNIS REIÐI ÍSLAMSKRA
ÖFGAMANNA. 12 LÉTU LÍFIÐ ÞEGAR RÁÐIST VAR Á RIT-
STJÓRNARSKRIFSTOFUR BLAÐSINS Á MIÐVIKUDAG.
Maður heldur blýanti á lofti fyrir utan Notre Dame-kirkjuna í París á fimmtudag þegar efnt var til mínútu þagnar í
minningu fórnarlamba árásarinnar á ritstjórnarskrifstofur vikuritsins Charlie Hebdo daginn áður.
AFP
*Og teikning hefur aldrei drepið nokkurn mann.Stéphane „Charb“ Charbonnier, ritstjóri Charlie Hebdo, svaraði gagnrýni á birtingu skopmynda af Múhameð í blaði hans 2012. Charbonnier var myrtur ásamt 11 öðrum í árásinni á blaðið á miðvikudag.AlþjóðamálKARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is