Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2015, Page 39
AFP
Heimilistæki og vélar fyrir eldhús eiga sinn sess á sýning-
unni. Uppþvottavél með sérstakri skúffu fyrir vínglös var
kynnt af Samsung. Hún býr yfir svokallaðri WaterWall-
tækni sem á að skila vandaðri þvotti og tilheyrir Chef-
Collection-línu fyrirtækisins.
AFP
Tony Hawk
er atvinnu-
maður á
hjólabretti.
Hann var feng-
inn á sýninguna
til að sýna dá-
semdir Sony 4K
myndbandsupptöku-
vélarinnar sem á að
henta vel því fólki sem
er sjaldan kyrrt á
sama stað lengi í einu.
AFP
Fyrir þá sem eru á ferð og flugi, til dæmis í ræktinni
eða á hlaupum, þurfa heyrnartólin að haldast kirfi-
lega föst á höfðinu. Monster Inc. kynnti iSport-
heyrnartólin sem eru hugsuð einmitt fyrir líkams-
ræktina.
Melomind frá fyrirtækinu myBrain Technologies
er ekkert venjulegt höfuðfat. Það lítur út eins og
nokkurs konar hjálmur og er búið elektróðum
sem mæla heilastarfsemi og flytja upplýsingar um
hana í smáforrit sem hægt verður að fá fyrir
snjallsíma með Android, Windows og iOS stýri-
kerfi. Notandi getur til að mynda fylgst með
sveiflum í líðan og ef streitan verður of mikil leik-
ur höfuðfatið róandi tónlist til að lægja öldurnar.
AFP
AFP
Samsung kynnti CycloneForce, pokalausa
ryksugu með skynjurum. Miklar framfarir
hafa orðið á undanförum árum í þróun
ryksuga og skynjarar virðast vera það sem
koma skal, í stað þess að sá sem brúkar
tækið stýri því með handafli.
11.1. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
* Ég segi ungu fólki að teygja sig til stjarn-anna. Og ég get ekki ímyndað mér betri leiðtil þess en að finna eitthvað upp.
Stephanie Kwolek
Solo2
Verð:32.990.-
Studio 2.0
Verð:49.990.-