Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2015, Side 52

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2015, Side 52
V iskí – löngum nefnt hið ágætasta af öllu áfengi – er í hugum flestra tengt Skotlandi órjúf- anlegum böndum. Þar eru víða um sveitir brugghús sem kepp- ast við gerð hins fljótandi gulls. Viskí hefur nefnilega vaxið gríðarlega að vinsældum á heimsvísu undanfarin fimmtán ár eða svo og eftir miklu að slægjast. Eðalviskí er nefnilega allt annað en ókeypis og það munar miklu að geta skapað sér sérstöðu á markaði svo kúnn- inn muni eftir þér, eða það sem betra er, hugsi til þín með hlýhug þegar hann virðir fyrir sér úrvalið. Eyjaviskíin svokölluðu, sem svo eru nefnd því þau eru framleidd á eyjunni Islay [æ-lah], hafa jafnan þótt sér á parti fyrir bragðið og ilminn sem er oft hvorttveggja talsvert höf- ugra en af hinum fáguðu Hálanda-viskíum. Þetta þekkja allir sem hafa skenkt sér lögg af eyjaviskínu Laphroaig [la-froig]. Móreykj- arkeimurinn af því er slíkur að við bragðpróf- anir eru samlíkingar á borð við „blautur plást- ur“, „joð“, „sölt fjara“ og „spítalalykt“ algengar. Þó ber að varast að mála með breiða penslinum í þessum efnum, segir Carl Reavey hjá brugghúsinu Bruichladdich [brúkk-laddí]. Flestir tengja eyjarnar við hel- reykt viskí en er það ekki endilega svo? Islay og mýtan um móreykinn „Nei, í rauninni ekki,“ segir Carl, spurður um þetta atriði. Hann er titlaður „Content Mana- ger“ og hefur því með framsetningu alls efnis sem brugghúsið setur fram í sínu nafni að gera. Engu að síður gengur hann í ýmis störf meðan á heimsókninni stendur; fylgir sögu- manni um tilkomumikil húsakynnin, ekur hon- um til og frá hótelinu og er í rauninni innan handar við allt mögulegt. Það kemur fljótt í ljós að það er mikill og sterkur fjölskyldu- bragur yfir starfsfólkinu; samheldni og vin- skapur með mesta móti. Carl er boðinn og bú- inn að segja greinarhöfundi undan og ofan um brugghúsið þegar við tyllum okkur í setustofu sem áður var skrifstofa forstjórans, hins lit- ríka Mark Reynier. Meira um hann á eftir. Carl er slyngur sögumaður og saga Bruic- hladdich er óneitanlega æði sérstök. „Það hefur lengi viðgengist ákveðin svæð- isbinding meðal skoskra viskía sem er hálf- gerð della þegar allt kemur til alls. Þetta er í það heila hálfgerð mýta sem hefur verið fóðr- uð og framlengd gegnum tíðina af markaðs- fólki. Þetta er útaf fyrir sig bara mörkun sem hefur haldið velli. Ég held þetta hafi upp- runalega verið spurning um skattlagningu, nema hvað, en hefur í raun ekkert að gera með sérkenni hvers viskís fyrir sig. Islay hef- ur skapað sér nafn fyrir að búa til stór og mikil viskí, uppfull af móreyk, einfaldlega af því það hentaði fyrirtækjunum sem hafa rekið hér viskígerðir. Þetta á einna helst við um Laphroaig, Lagavulin og Bowmore. Brugg- húsin sem framleiddu viskí á Islay án mó- reykjarins nutu ekki kastljóssins í sama mæli og má helst nefna Bunnahabhain [búna- haven] og Bruichladdich sem skýrustu dæmin þar um enda hafa þau bæði framleitt óreykt (e. un-peated) viskí um áratugaskeið.“ Við þetta má svo bæta til áréttingar að flestar viskígerðirnar framleiða bæði reykt og óreykt viskí. Bruichladdich framleiða til dæm- is gríðarlega bragðmikla sort sem kallast Octomore og er að líkindum hið reyktasta sem fyrirfinnst. Viskí fyrir lengra komna, skulum við segja. Carl bætir því við að lang- stærstur hluti allrar viskíframleiðslu á eyjunni hafi farið gegnum árin í framleiðslu á blönd- uðum viskíum, svo sem Chivas Regal, Johnnie Walker og Famous Grouse, og reyndar hafi innan við 5% farið á markaðinn sem einmölt- ung0ar í nafni viskígerðanna. „Þar af leiðandi sá enginn ástæðu til að gera athugasemdir við framsetninguna á eyjaviskíunum sem var ríkjandi. En það gerum við. Bruichladdich framleiðir í dag viskí sem eru allt frá því að vera óreykt, yfir í mikið reykt og loks hið mest reykta, og hin viskíhúsin hafa í auknum mæli tekið upp þá nálgun í seinni tíð. Und- antekningar þar á eru Laphroaig og Lagavul- in sem halda sig almennt við móreykinn. Mér er ekki kunnugt um að þau búi til óreykt. En meira segja Ardbeg framleiða óreykt og úr- valið í dag frá Islay er gríðarlegt. Um leið er gaman að benda á þá staðreynd að Háland- aviskíin sem kennd eru við ánna Spey fram- leiða mörg hver reykt viskí meðfram óreykt- um.“ Þar hafið þið það, viskímenn og -konur. Það er óþarfi að vaða móreykinn lengur. Hann er fráleitt einskorðaður við Islay, né heldur al- gildur um viskíin frá eyjunni fögru. Þegar lágt var risið á Islay Þessi móreykjar-mýta kringum Islay var líf- seig alla 20. öldina og fátt sagt eða gert til að skáka henni, fyrr en Bruichladdich fór að vaxa fiskur um hrygg upp úr síðustu aldamót- um. Það sem af er 21. öldinni hefur viskígerð- in ötullega reynt að hrekja þessa þjóðsögu enda er markaðurinn í seinni tíð sífellt opnari fyrir hvers kyns nýjungum. Á því sviði hefur Bruichladdich verið um margt í fararbroddi, eins og nánar verður vikið að síðar, og það hefur styrkt sig í sessi sem framsækið viskí- hús. Enda mætir gestum risavaxin áprentun þess efnis við komuna inn í portið sem húsa- kynnin umlykja: Progressive Hebridean Dis- tillers. Síðan 1881, hvorki meira né minna. Sitthvað hefur þó gengið á í sögu fyrirtæk- isins og synd að segja að um samfellda sig- urgöngu hafi verið að ræða. Sama er að segja um hin viskígerðarhúsin á eyjunni, eins og Carl segir frá. „Fyrir um 20 árum var Islay talsvert frá- brugðin þeim stað sem eyjan er í dag. Viskí- gerðarhúsin voru almennt í afgerandi nið- ursveiflu. Þannig var Ardbeg mestanpartinn lokað. Bunnahabhain var í hálfri framleiðslu. Kilchoman var ekki einusinni til. Bruic- hladdich var í starfsemi þó enginn hefði heyrt þess getið,“ bætir Carl við og kímir. Það er þó ekki þar með sagt að það hafi verið hátt á því risið, bendir hann á. „Húsið framleiddi viskí að miklu leyti fyrir lágverðskeðjuna Tesco, sem blandaði því svo út og seldi undir eigin nafni.“ Carl hristir hausinn við tilhugs- unina. Það er semsé óhætt að segja að mikið viskí hafi runnið til sjávar á tuttugu árum. „Hugsaðu þér. Þessi viskígerð framleiddi mal- tviskí sem var notað sem einn bragðþátta í kornviskíblöndu Tesco.“ Úr niðurníðslu í nýtt upphaf Undanfarinn einn og hálfan áratug hefur hús- inu þó gengið flest í vil og hefur það ítrekað verið valið „Viskígerð ársins“ í Skotlandi. Upphafsmaður þess uppgangs sem húsið nýtur um þessar mundir er Englendingur að nafni Mark Reynier. Hann keypti fyrirtækið seint á tíunda áratug síðustu aldar, er það var heldur rislægra en það er í dag. Á þeim tíma rak Carl hótel í þorpinu Port Charlotte, skammt frá Bruichladdich. Hann þekkti til og var staddur í viskígerðinni þegar gest bar að garði. „Árið 1997 var hurðinni á viskígerðinni bókstaflega hrundið upp og inn stormaði mað- ur, öskureiður að því marki að gufa steig úr eyrum hans. Hann hafði komið til eyjarinnar með hóp viðskiptafélaga í þeim tilgangi að skoða viskígerðir en lent í tvíbókun á hótelinu og var því í tómu tjóni með hóp án gistingar.“ Carl bjargaði honum og hópnum um gistingu og kom upp úr dúrnum að Reynier þessi var vínkaupmaður frá London sem einbeitti sér að innflutningi á öndvegisvínum frá Búrgúnd í Frakklandi. „Reynier var hér staddur því hann hafði fengið áhuga á viskígerð og okkur kom fljótlega afbragðsvel saman. Í framhald- inu kom hann aftur og aftur til Islay með nýja og nýja hópa, uns dag einn að hann hratt hurðinni upp á ný til að tilkynna að hann hygðist kaupa Bruichladdich.“ Þetta var árið 1998 og þá hafði framleiðslan legið niðri í fjögur ár og eina starfsemin var sala af þeim birgðum sem til voru á lagernum. Í þá daga var viskígerðin í niðurníðslu en Reynier sá í því tækifæri. Hann hreifst af tækjabúnaðinum sem var mestanpartinn upp- runalegur – sem þýðir að hann var frá Viktor- íutímanum – og ákvað frekar að láta gera hann upp í stað þess að endurnýja allt með nýtísku tækni. „Ástandið var slíkt að með réttu má segja að Reynier hafi keypt lager af viskíi fyrir 7 milljónir punda og fengið ókeypis viskígerð með í kaupunum,“ segir Carl, kank- vís á svip. Atlaga að hefðunum Reynier beið ekki boðanna heldur hófst þegar handa við að ögra skoska viskíiðnaðinum með dramatískum hætti. Hann kunni skil á mik- ilvægi þess að tengja úrvals Búrgúndarvín við tiltekin landsvæði eða jafnvel jarðir framleið- enda. Sömu hugsun vildi hann innleiða í gerð viskísins. Óstýriláta utan- garðsviskíið FYRIR VISKÍUNNENDUR ER ÞAÐ IÐULEGA DRAUMURINN AÐ KOMAST Í PÍLAGRÍMSFERÐ TIL VISKÍGERÐARHÚSS Í SKOTLANDI, UPPRUNA- LANDS UNAÐSVEIGANNA SEM GELÍSKIR MUNKAR HÓFU AÐ BRUGGA ÞEGAR Á MIÐÖLDUM. UNDIRRITAÐUR LAGÐI Í SLÍKA FERÐ, NÁNAR TILTEKIÐ TIL VISKÍGERÐARINNAR BRUICHLADDICH. Jón Agnar Jónsson jonagnar@mbl.is Carl Reavey, forstöðu- maður kynningarmála hjá Bruichladdich. 52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.1. 2015 Viskígerð

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.