Morgunblaðið - 06.02.2015, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég fékk sjokk þegar ég las um
þriggja ára áætlun um útrýming-
arherferð gegn risahvönn. Þessi
planta er búin að vaxa kringum
húsið mitt í 40 ár og hefur veitt
mér og fleirum ánægju. Mér vit-
anlega hefur enginn skaðað sig á
henni,“ segir Hrafn Gunnlaugsson
kvikmyndaleikstjóri um fyrirhug-
aðar aðgerðir Reykjavíkurborgar
gegn tröllahvönn í borgarlandinu.
Sagt er frá áformaðri herferð í
grein í Morgunblaðinu í gær. Þar
kemur meðal annars fram að Þór-
ólfur Jónsson, deildarstjóri náttúru
og garða hjá borginni, hafi lagt
fram tillögur að aðgerðum til næstu
þriggja ára.
Þórólfur segir að plantan sé
ágeng, skyggi á annan gróður,
dreifi sér hratt og eitraður safi
hennar geti valdið varanlegum
skaða á fólki. Allt þetta kemur
Hrafni spánskt fyrir sjónir en
tröllahvönn vex í Laugarnesi þar
sem hann býr.
„Bótanískur rasismi“
„Hún hefur vaxið hér allt í
kringum húsið í 40 ár án þess að
nokkur maður hafi skaðast. Aftur á
móti eru rósir hér við einn vegginn
og það hafa margir fengið var-
anlegan skaða af þyrnum þeirra.
Þær eru því væntanlega miklu
hættulegri. Það er spurning hvort
borgin ætli ekki líka að gera
þriggja ára áætlun um útrýming-
arherferð gegn rósum í borginni.
Það hlýtur að vera skelfilegt að
fólki sé leyft að vera með rósir í
görðum sínum. Engin rós er án
þyrna og börn og fullorðnir geta
fengið varanlegan skaða af þeim,“
segir Hrafn. Hann skilur ekki af
hverju það þurfi að ofsækja þessa
fallegu plöntu, tröllahvönnina, sem
ferðamenn dáist að.
„Hjá borginni hefur hreiðrað
um sig kerfiskarl sem greinilega er
flórufasisti og ætlar að fara að
stjórna náttúru og görðum hjá
borginni eftir bótanískum rasisma.
Þetta er angi af flórufasisma sem
stundum hefur skotið upp kollinum
áður, meðal annars gagnvart jurt-
um eins og lúpínu sem ekki eru
taldar af hreinræktuðum íslenskum
kynstofni. Þessar plöntur, eins og
allar aðrar, hafa einhvern veginn
borist til landsins. Er ekki næsta
skrefið að gera atlögu gegn mann-
skepnunni, innflytjendum sem fara
hér með dugnaði inn á vinnumark-
aðinn og gætu þess vegna verið
kallaðir ágengir?“ spyr Hrafn.
„Flórufasismi“ hjá Reykjavíkurborg
Hrafn Gunnlaugsson undrast þriggja ára áætlun um útrýmingu á tröllahvönn í borgarlandinu
Hefur engan skaðað í Laugarnesi Spyr hvort ekki verði ráðist gegn rósum í görðum borgarbúa
Morgunblaðið/Kristinn
Leikur Hrafn Gunnlaugsson er stoltur af tröllahvönninni sem vex við húsið.
Mikil eftirspurn er eftir því að
ferðast með Norrænu milli Íslands
og Danmerkur í sumar og er nær
fullbókað í júní og júlí.
Jóhann Jónsson, framkvæmda-
stjóri Austfars ehf. á Seyðisfirði,
segir að eftirspurnin haldist í hend-
ur við aukinn ferðamannastraum til
landsins. „Það er mikill áhugi á land-
inu og gengið hefur verið hagstætt,“
segir hann.
Lengra tímabil
Norræna getur tekið 1.480 far-
þega auk bíla. Skipið er á ferðinni
allt árið. Á veturna er það fyrst og
fremst í vöruflutningum, ef veður
leyfir, en siglt er milli Hirtshals í
Danmörku og Seyðisfjarðar með
viðkomu í Færeyjum samkvæmt
áætlun frá 1. apríl til loka október.
Jóhann segir að farþegum hafi fjölg-
að ár frá ári og tímabilið lengst í báð-
ar áttir. Hann áréttar að engin ferð
hafi fallið niður í fyrra og ekki það
sem af er þessu ári.
Jóhann segir að oft hafi bílapláss-
ið verið fullbókað og ekki síst vegna
þess að mikið sé um stóra bíla sem
taki mikið rými á dekki, en nú sé
nær fullbókað í klefa og aðeins
svefnpokapláss eftir í ákveðnum
sumarferðum frá Danmörku. Hins
vegar sé ekki búið að staðfesta allar
bókanir og þegar frestur til þess
renni út sé fólk tekið inn af biðlista
eftir megni.
Norræna fer frá Seyðisfirði kl. 20
á miðvikudögum fram í miðjan júní
en eftir það er brottför kl. 10.30 á
fimmtudögum. steinthor@mbl.is
Norræna nær fullbókuð
Morgunblaðið/RAX
Siglingar Ferðamenn í Evrópu
sækja í ferðir til Íslands.
Aðeins svefnpokapláss eftir Fjölgun farþega ár frá ári
Icelandair stendur fyrir ferðaráðstefnu um
helgina í Laugardalshöll en hún hófst í gær-
kvöldi á Hilton Reykjavík Nordica. Ráðstefnan
er sú stærsta sinnar tegundar hér á landi. Þar
koma saman kaupendur og seljendur ferðaþjón-
ustu í þeim tilgangi að styrkja og auka ferða-
mannastrauminn til Íslands. Fulltrúar á ráð-
stefnunni eru nú tæplega 800 og má finna 252
sýningarbása í Laugardalshöllinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ferðaþjónustan styrkir strauminn til landsins
Gómsætar veitingar við setningu Mid-Atlantic ferðakaupstefnu Icelandair
Hallbjörn Hjart-
arson tónlist-
armaður hefur í
Hæstarétti verið
dæmdur í
þriggja ára
fangelsi fyrir
kynferðisbrot
gegn tveimur
drengjum. Var
dómur Héraðs-
dóms Norður-
lands vestra frá 20. maí sl. þar
með staðfestur. Hallbirni var m.a.
gefið að sök að hafa kysst dreng
tungukossi á heimili sínu, strokið
ber kynfæri hans og haft munn-
mök við hann. Var Hallbjörn einn-
ig dæmdur til þess að greiða
drengjunum hvorum fyrir sig 1,5
milljónir króna með vöxtum auk
málskostnaðar.
Hallbjörn dæmdur í
þriggja ára fangelsi
Hallbjörn
Hjartarson
„Bátarnir hafa verið að kasta í kvöld
og einhverjir eru að fá afla,“ sagði
Aðalsteinn Ingólfsson, skipstjóri á
Ásgrími Halldórssyni SF, í gær-
kvöldi. Loðnuflotinn var á veiðum á
þremur svæðum út af miðju Norður-
landi í gærkvöldi, bæði íslensku skip-
in og þau norsku.
Loðnan sem Hafró mældi út af
Vestfjörðum virðist vera að ganga
austur með Norðurlandi. Aðalsteinn
segir ekki mikið að sjá en menn kasti
á það litla sem þeir sjái. Árangurinn
er misjafn. Aðalsteinn segir að menn
reyni að nota góða veðrið, á meðan
það sé, en spáð er stormi á miðunum.
Gefin hefur verið út ný reglugerð
um loðnuveiðar íslenskra skipa á
vertíðinni. Samkvæmt henni hefur
loðnukvóti til úthlutunar nú verið
aukinn um 263.550 tonn frá fyrri út-
hlutun. Aflamark íslenskra skipa á
yfirstandandi fiskveiðiári er nú
390.382 tonn. helgi@mbl.is
Skipin kasta á það
litla sem sést
Morgunblaðið/Golli
Veiðar Loðnuskipin eru nú að veið-
um norður af landinu.
Veðurstofan varar við slæmu
ferðaveðri á landinu í dag. Spáð
er suðvestan hvassviðri eða stormi
um og upp úr hádegi með snjó-
komu eða éljum. Hvassast verður
norðvestan til á landinu með súld
og rigningu en þurrt á því norð-
austanverðu. Síðdegis getur vind-
urinn farið upp í 18-25 metra á
sekúndu. Þá fer veðrið kólnandi
og verður hiti um eða undir frost-
marki.
Varað við slæmu
ferðaveðri í dag