Morgunblaðið - 06.02.2015, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.02.2015, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2015 Stuttar fréttir ... ● Seðlabanki Danmerkur lækkaði stýri- vexti sína á innlánum enn frekar í gær um 0,25%. Þetta er fjórða stýrivaxta- lækkun bankans á þremur vikum og eru þeir nú neikvæðir um 0,75%. Samtímis greindi Lars Rohde seðlabankastjóri frá því að bankinn myndi verja tengingu dönsku krónunnar við evru með öllum ráðum, enda væri hún kjarni peninga- málastefnunnar. Bankinn myndi verja til þess ótakmörkuðum gjaldeyrisvara- sjóði ef á þyrfti að halda. Danskir vextir í -0,75% ● „Í nýrri tækni fel- ast margvísleg tækifæri fyrir Ísland sem er þekkt fyrir að vera framarlega þegar kemur að nýjungum,“ segir Per-Henrik Nielsen, yfirmaður hjá Er- icsson, í samtali við Morgunblaðið. Hann er einn af að- alfyrirlesurum á UT-messunni sem hald- in er í Hörpu í dag. „Nú þegar upplýsingatæknin er farin að snerta allt samfélagið skapast ótal tækifæri til að byggja upp nýjar atvinnu- greinar. Það er varlega áætlað að um 50 milljarðar tækja verði tengdir saman inn- an fárra ára sem gefur okkur vísbend- ingar um við hverju má búast. Þeir sem ekki nýta sér tæknina gætu lent í vand- ræðum með að fóta sig í nýjum heimi.“ Um 50 milljarðar tækja tengdir innan fárra ára Per-Henrik Niel- sen frá Ericsson ● Primera Air gekk í síðustu viku frá samningum um flug frá París fyrir sumarið 2015. Flogið verður frá apríl og fram í október og munu tvær vélar Primera Air annast verkefnið, en flog- ið er frá París, Lyon og Nantes. Samn- ingurinn er liður í stækkunar- áformum félagsins og nýjum verkefnum sem nú liggja fyrir eftir að búið er að samþætta starfsemi Pri- mera Air á einum stað í Riga og félag- ið betur í stakk búið til að keppa á alþjóðagrundvelli. Heildarverðmæti samninganna er um 5 milljarðar króna. Primera Air gerir 5 millj- arða samning í Frakklandi muspá sem birt var í lok október sl. „Það er ljóst að margir samverkandi þættir hafa jákvæð áhrif á sterkt upp- gjör. Þar má nefna lækkandi elds- neytisverð, aukna eftirspurn á Norð- ur-Atlantshafsmarkaðinum sem við höfum mætt með auknu framboði ásamt góðri afkomu í leiguflugi. Veik- ing evrunnar gagnvart bandaríkjadal hafði neikvæð áhrif á rekstur félags- ins auk þess sem kostnaður við skoð- anir fraktvéla var hærri. Sterk eig- infjárstaða og undirliggjandi sjóð- streymi tryggja getu okkar til að ráðast í arðbærar fjárfestingar sem auka samkeppnishæfni til langs tíma.“ Björgólfur segir að gert sé ráð fyrir áframhaldandi arðbærum innri vexti í rekstri á þessu ári. Stjórn félagsins leggur til að arður að fjárhæð 2.500 milljónir króna verði greiddur til hlut- hafa á árinu. Það samsvarar 0,5 krón- um á hvern hlut. Icelandair Group hagnaðist á síðasta ári um 67 milljónir dollara, sem jafn- gildir um 9 milljörðum króna. Félagið skilaði 79,9 milljóna dollara hagnaði fyrir skatta, sem jókst um 12% á milli ára. Hagnaður ársins fyrir fjár- magnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) jókst um 7% og nam 154,3 milljónum dollara samanborið við 143,7 milljónir árið 2013. Rekstrar- tekjur jukust um 9% á milli ára. Eig- infjárhlutfall félagsins var 43% í árs- lok samanborið við 42% árið á undan. Á fjórða ársfjórðungi var EBITDA neikvæð um 1,5 milljónir dollara og lækkaði um 8,3 milljónir á milli ára. Tap félagsins á ársfjórðungnum var 14,9 milljónir. Í tilkynningu til Kauphallar er haft eftir Björgólfi Jóhannssyni, forstjóra félagsins, að afkoma ársins 2014 sé betri en áætlanir stjórnenda gerðu ráð fyrir í upphafi árs og að afkoma fjórða ársfjórðungs sé í takt við afko- Gott ár hjá Icelandair Morgunblaðið/Þórður Arnar Þórðarson Jákvæðar horfur Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir að gert sé ráð fyrir áframhaldandi arðbærum innri vexti á árinu.  Afkoma Icelandair Group á síðasta ári betri en gert var ráð fyrir þrátt fyrir tap á fjórða ársfjórðungi  Stefnt er að áframhaldandi innri vexti í rekstri á þessu ári                                     !  "!   #!! "$ %! " !"% "  &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5  % $$!  %  % #! "!%% %  "$ !"%% %$# "    %$#  # ## "!$ %% $ !"$$ " !  "" Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Niðurstöður Ís- lensku ánægjuvog- arinnar 2014 voru kynntar í gær og var það í 16. skipti sem ánægja við- skiptavina ís- lenskra fyrirtækja er mæld með þess- um hætti. ÁTVR fær hæstu ein- kunnina, er með 74,8 stig af 100 mögulegum og Nova kemur þar fast á eftir með 73,6 stig, ekki er marktækur munur þar á. TM skorar hæst meðal tryggingarfélaganna með 71,3 stig og HS orka fær hæstu einkunn meðal raforkusölufyrirtækja, er með 62 stig. Í flokki banka er Ís- landsbanki í efsta sæti með 63,5 stig og Atlantsolía fær flest stig í flokki elds- neytisfélaga eða 71,3 stig. Niðurstöð- urnar byggjast á 297 til 1.210 svörum viðskiptavina hvers fyrirtækis sem svara þremur spurningum. Birtar eru niðurstöður fyrir 19 fyrirtæki í 6 at- vinnugreinum. Að mælingunni standa Samtök iðnaðarins, Stjórnvísi og Capa- cent. ÁTVR með hæstu ein- kunn í ánægjuvoginni Sigrún Ósk Sigurð- ardóttir hjá ÁTVR. Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum (Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum. Er á Facebook Bólgur eða verkir? www.annarosa.is Tinktúran túrmerik og engifer bæði bólgu- og verkjastillandi og hefur gefist afar vel við slitgigt, liðagigt og álagsmeiðslum. Túrmerik og engifer er hvort tveggja einnig þekkt fyrir að lækka blóðþrýsting, blóðsykur og blóðfitu. Inniheldur svartan pipar sem eykur upptöku túrmeriks. þykir FA S TU S _H _0 6 .0 1 .1 5 Verið velkomin í verslun okkar í Síðumúla 16, 2.h. Sími 580 3900 • fastus@fastus.is • www.fastus.is • Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Veit á vandaða lausn RESOURCE aktiva Sveskjusafi gegn hægðatregðu Áhrifaríkur sveskjusafi sem virkar vel gegn hægðatregðu. Spurðu um sveskjusafann í næsta apóteki. 15 SVESKJUR Í FERNU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.