Morgunblaðið - 06.02.2015, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2015
góða dreifingu og að salan sé mest í
Bresku Kólumbíu. Þá hafi bjórinn
verið tekinn í sölu í sænska „ríkinu“ í
haust og er hann þar seldur á 33cl
flöskum. Útflutningur á bjórnum
Gull jókst um 80% milli ára og er Al-
bertafylki í Kanada helsti markaður-
inn fyrir hann.
Spurður hvað skýri miklar vin-
sældir Bríó-bjórs segir Óli Rúnar að
bjórinn hafi unnið til fjölda verð-
launa. Hann hafi t.d. verið valinn
besti pilsnerinn á World Beer Aw-
ards í Bretlandi og unnið gullið á
World Beer Cup í Bandaríkjunum.
Borg brugghús er svonefnt hand-
verksbrugghús í eigu Ölgerðarinnar.
Það framleiðir nokkra bjóra og er
Garún númer 19 þeirra vinsælastur
erlendis. Óli Rúnar segir meira flutt
út af honum en Gullinu.
120% vöxtur hjá Vífilfelli
Útflutningurinn hefur einnig
gengið vel hjá Vífilfelli sem er helsti
útflutningsaðili áfengra drykkja frá
Íslandi. Þannig jókst útflutningur á
bjór sem Vífilfell bruggar til útflutn-
ings um 120% í fyrra.
Hreiðar Þór Jónsson, markaðs-
stjóri Vífilfells, segir bjórinn Einstök
hafa sótt mikið í sig veðrið í fyrra.
Bandaríkin séu stærsti markaðurinn
og koma Bretland og hin norrænu
löndin þar á eftir. Vörumerkið Ein-
stök er í eigu bandarískra aðila og er
bjórinn bruggaður í verksmiðju Víf-
ilfells á Akureyri.
Mest af áfenginu fer til Kaliforníu,
Flórída, New York, Texas og San
Francisco. „Við erum
stöðugt að bæta við
okkur fylkjum. Það
er líka góð aukning í
Bretlandi og nær tvö-
faldaðist útflutning-
urinn af Einstök
þangað í fyrra. Mest
er selt til London og
Manchester og svæða í nágrenni
þessara borga. Einstök er seldur í
verslunum Harvey Nichols í Bret-
landi og eru nokkrir fínni barir í
London farnir að nota Einstök
hveitibjór í kokteila,“ segir Hreiðar
Þór.
Gert út á íslenska vatnið
„Það skiptir miklu máli að hafa
sterkt vörumerki. Við leggjum
áherslu á Ísland og hreinleika ís-
lenska vatnsins. Það gerist þó ekkert
af sjálfu sér,“ segir hann.
Að sögn Hreiðars Þórs flytur Vífil-
fell nú út um milljón lítra af bjór og
samsvarar það um 5% af allri innan-
landsneyslu á bjór, sem er um 20
milljón lítrar.
Útflutningssvæðin eru fleiri og má
nefna að fyrirtækið hefur reynt fyrir
sér með útflutning á Víking bjór og
Black Death bjór til Ástralíu. Þar er
Víking bjór seldur sem hágæðavara
nánast um allt land í gegnum Dan
Murphy’s-keðjuna og á fleiri stöðum.
Hreiðar Þór áætlar að mest magn
sé flutt út af Einstök. Næst komi
Reyka vodka og í þriðja og fjórða
sæti séu Víking bjór, sem Vífilfell
bruggar, og bjórinn Gull.
Útflutningur áfengis
jókst mikið milli ára
Verðmætið hefur margfaldast á aðeins fáum árum
Verðmæti útflutnings á áfengum drykkjum
Í milljónum króna á verðlagi hvers árs á tímabilinu 1999-2014*
*Hér er miðað við svonefnt FOB-verð, eða verð vörunnar þegar hún er komin í flutningsfar.
1999 2014
400
350
300
250
200
150
100
50
0
Heimild: Hagstofan
4,1
398
Hreiðar Þór
Jónsson
Óli Rúnar
Jónsson
Morgunblaðið/Skapti
Íslenskt Brennivín ÁTVR hóf að framleiða Brennivín 1935, eftir að áfeng-
isbanni var aflétt, en 1992 var framleiðslan seld. Hún er nú hjá Ölgerðinni.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Útflutningur á áfengi frá Íslandi hef-
ur aukist hröðum skrefum á síðustu
árum og verður verðmæti útfluttra
vara talið í milljörðum innan nokk-
urra ára, ef fram fer sem horfir.
Útflutningur Ölgerðarinnar á ís-
lensku Brennivíni ellefufaldaðist
milli ára 2013 og 2014 og eru Banda-
ríkin helsti markaðurinn fyrir vör-
una. Þá fimmfaldaðist útflutningur
Ölgerðarinnar á bjórnum Bríó, auk
þess sem útflutningur bjórs frá Borg
brugghúsi, sem er í eigu Ölgerð-
arinnar, sexfaldaðist milli ára.
Þessi mikla aukning kemur fram í
því að verðmæti útflutnings á áfeng-
um drykkjum frá Íslandi hefur
margfaldast á síðustu árum, eins og
sýnt er á grafi hér fyrir neðan.
Óli Rúnar Jónsson, vörumerkja-
og útflutningsstjóri Ölgerðarinnar,
segir markaðssetningu á Brennivíni í
Bandaríkjunum fara þannig fram að
unnið sé með börum í dýrari kant-
inum og sérvínsbúðum.
Brennvín flutt út í gámavís
„Við fórum inn á Ameríkumarkað í
upphafi síðasta árs eftir nokkra mán-
aða undirbúning. Það eru margir
flottir barir á þessum lista og fram-
reiða margir hverjir orðið sérstaka
Brennivínskokteila. Mýktin í ís-
lenska vatninu, kúmenbragðið og
einstakur þáttur vörunnar í íslenskri
áfengissögu gerir Brennivínið svo
sérstakt,“ segir Óli Rúnar sem tekur
fram að Brennivín sé flutt út í gáma-
vís, líkt og bjórinn.
Hann segir mikil tækifæri fyrir
Brennivínið í Kanada og í Manitoba-
fylki – þar sem margir Vestur-
Íslendingar búa – en þar sé þegar
hafin sala á vörunni. Börum og veit-
ingahúsum sem bjóða upp á Brenni-
vín í Kanada fjölgi jafnt og þétt.
Ölgerðin flytur einnig út Brenni-
vín til Þýskalands, Noregs, Svíþjóðar
og Færeyja. Það er selt í Viking-
Line-ferjunum í Noregi og í System-
bolaget í Svíþjóð, þ.e. í sænska „rík-
inu“, og á einstaka börum í Svíþjóð.
Bjórinn seldur í einnota kútum
Útflutningur Ölgerðarinnar á bjór
hefur einnig aukist mikið milli ára.
Fyrirtækið flutti fimmfalt meira
út af bjórnum Bríó í fyrra en árið áð-
ur og er Kanada helsti markaðurinn.
Bjórinn er seldur í hálfs lítra dós, á
flöskum og einnota kútum á markaði.
Óli Rúnar segir bjórinn kominn í
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. 14–16
Opnun kl. 17,
föstudaginn 6. febrúar
Allir velkomnir
Várlongsul · málverkasýning
Listmuna
uppboð
Áhugasamir geta
haft samband
í síma 551-0400
Síðustu forvöð til að
koma með verk á næsta
uppboð er 20. febrúar
Finleif Mortensen
6. - 22. febrúar
Laugavegi 34 101 Reykjavík | Sími: 551 4301 | gudsteinn.is
20% afsláttur
af jakkafötum og stökum jökkum
Guðsteins Eyjólfssonar sf
V E R S L U N
Stjórn UMFÍ og framkvæmdastjóri félagsins, Sæmundur
Runólfsson, hafa komist að samkomulagi um starfslok
Sæmundar. Lætur hann af störfum þann 30. apríl næst-
komandi eftir um 23ja ára starf en hann hóf störf árið
1992. „Ég er afar þakklátur fyrir að hafa unnið hjá ung-
mennafélagshreyfingunni þennan tíma og innan hennar
á ég marga af mínum bestu vinum. Ég geng stoltur frá
borði því ég tel hreyfinguna standa vel. Starfið hefur
verið fjölbreytt og það veitt mér tækifæri til að koma að
mörgum verkefnum sem hafa skipt miklu máli fyrir ís-
lenskt samfélag,“ segir Sæmundur í tilkynningu.
Hættir hjá UMFÍ eftir 23 ára starf
Sæmundur
Runólfsson