Morgunblaðið - 06.02.2015, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2015
PPáley Borgþórsdóttir tók við lögreglustjóraembættinu í Vest-mannaeyjum í byrjun árs, en hún hafði áður starfað sem lög-maður og verið bæjarfulltrúi í Eyjum í níu ár. Breytingar urðu
á embættum sýslumanna og lögreglustjóra um áramótin þar sem verk-
efni þeirra voru aðskilin. „Þessi tími síðan ég byrjaði í þessu nýja starfi
hefur verið mjög skemmtilegur og ég er að fást við allskonar spenn-
andi verkefni. Ég tel þessa faglegu skiptingu embættanna vera til góðs
en með því að lögreglustjórar sinni löggæsluverkefnum, ákæruvaldi
og rannsóknum og því sem þeim tilheyrir er hægt að einbeita sér að
fullu að þeim verkefnum.“
Spurð um áhugamál þá segir Páley að undanfarið hafi vinnan tekið
mestallan sinn tíma. „Fjölskyldan er auðvitað áhugamál hjá mér sem
ég reyni að sinna vel en við eigum þrjú börn og því næ ég þar að blanda
saman áhugamáli og langmikilvægasta og skemmtilegasta verkefninu.
Svo finnst mér aldrei betra að slaka á en með góða bók. Nú er ég að
lesa skáldsöguna HHhH sem fjallar um morðtilræði við nasistaforingj-
ann Reinhard Heydrich en ég er einnig að lesa Hugrækt og hamingju
eftir Önnu Valdimarsdóttur. Ég er oftast með fleiri en eina bók á kant-
inum sem eru jafnólíkar og þessar tvær.“
Eiginmaður Páleyjar er Arnsteinn Ingi Jóhannesson en hann er for-
stöðumaður íþróttamannvirkja í Vestmannaeyjum. Börn þeirra eru
Borgþór Eydal 14 ára, Andrea Dögg 10 ára og Embla Sigrún tveggja
ára.
Páley verður stödd í Danmörku á afmælisdaginn. „Ég fer með þremur
góðum vinkonum að heimsækja þá fjórðu sem býr í Árósum. Þar ætlum
við að eiga notalegar stundir og það verður án efa mikið hlegið. Ég ætlaði
að fela mig í Danmörku svo enginn tæki eftir því að ég yrði fertug en nú
eruð þið á Mogganum alveg búin að eyðileggja það,“ segir Páley og hlær.
Páley Borgþórsdóttir er fertug í dag
Ljósmynd/Kristbjörg Sigurjónsdóttir
Fjölskyldan Á fermingardegi Borgþórs Eydal, 5. apríl 2014.
Lögreglustjóri í
Vestmannaeyjum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Selfossi Benjamín
Emil Símonarson
fæddist 25. febrúar
2014. Hann vó
3.595 g og var 51
cm langur. For-
eldrar hans eru
Símon Geir Geirs-
son og Eydís Berg-
lind Baldvinsdóttir.
Nýr borgari
B
ragi fæddist í Stykkis-
hólmi 6.2. 1930: „Þegar
ég fæddist var móðir
mín vinnukona í Prests-
húsinu í Stykkishólmi
og þótt húsið hafi verið byggt 1895 er
það samt svo að ég mun vera eina
manneskjan sem hefur fæðst í þessu
fallega húsi.
Móðir mín var meðal ellefu krakka
sem tóku fullnaðarpróf hjá Jóhann-
esi úr Kötlum 1922, en meðal bekkj-
arsystkina hennar var Steinn Stein-
arr skáld. Síðar sagðist Steinn hafa
hótað Jóhannesi barsmíðum fyrir að
kenna sér að lesa.
Móðir mín giftist og flutti að Litlu-
tungu í Rangárvallasýslu þegar ég
var sex ára en ég varð eftir sem fóst-
ursonur prestshjónanna, Ingigerðar
Ágústsdóttur og séra Sigurðar Ó.
Lárussonar.
Fósturbróðir minn var Sigurður
Reynir Pétursson hrl. en æsku- og
unglingsárin í Stykkishólmu voru
sannkölluð hamingjuár.“
Bragi Jósepsson, prófessor emeritus – 85 ára
Í sumarblíðu Greta og Bragi með sonum sínum, Loga og Sigurði, mökum þeirra, Yuliu og Nicole. og Emil Logasyni.
Skólamaður og skáld
Afhending Barnabókaverðlaun afhent í Höfða árið 1987. Davíð Oddsson, þá
borgarstjóri, Kristín R. Thorlacius, frú Halldóra Eldjárn og Bragi Jósepsson.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
brokkoli.is
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Fjarðarkaup, Hagkaup og Melabúðinni
Brokkolítöflurnar - Cognicore® Daily
Inniheldur mikið magn af sulforaphane, en
dagskammturinn jafngildir meira en 1,5 kg af
lífrænt ræktuðum brokkolí spírum.
Að auki er viðbætt túrmeric og selenium.
Krö
ftug
ar a
f
sulf
orap
han
e!
Verndar og styrkir frumurnar | Margvísleg heilsubætandi áhrif | Hægir á öldrun
Sulforaphane ensímið í brokkolí býr yfir magnaðri
sérvirkni sem einn öflugasti „kveikjuþráður“
á varnarkerfi líkamans.
Það hjálpar líkamanum að auka framleiðslu
mikilvægra varnarefna sem hamla hrörnum
fruma, í heilanum, húðinni og öllum líkamanum.
Er varnarkerfið þitt virkt?
Styrkir samskipti fruma.
Hjálpar líkamanum að auka fram-
leiðslu náttúrulegra andoxunarefna.
Örvar framleiðslu detox ensíma.
Styrkir getu líkamans til að mynda
bólgueyðandi efni.