Morgunblaðið - 06.02.2015, Síða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér finnst þú ekki nógu opin/n
þessa dagana. Fullt af fólki á óuppgert við
þig, svo þú ferð að skulda enn öðrum.
20. apríl - 20. maí
Naut Frá og með deginum í dag munu
hæfileikar þínir til að vekja aðdáun annarra
ná hámarki og endast í mánuð. Hættu að
redda öðrum og reyndu að einbeita þér að
eigin málum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú vilt koma hlutunum í verk í dag
og gera þá almennilega. Leggðu áherslu á
að vera skýr og skorinorður.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Taktu enga áhættu því það skilar
þér engu þegar til lengri tíma er litið.
Sinntu því sem helst vekur áhuga þinn og
þá verða hlutirnir ekki eins flóknir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Um sinn skaltu varast að beina athygl-
inni að þér, nema þú sért með það á tæru
hvernig þú ætlar að taka á hlutunum. Sam-
starfsmaður þarf á aðstoð þinni að halda.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér finnst líf þitt vera komið í þær
skorður sem þér henta og nú megi engu
breyta. Að hugsa langt inn í framtíðina er
skemmtileg hugarleikfimi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur orku til að koma miklu í fram-
kvæmd í dag. Gefðu honum þann tíma sem
hann þarfnast og þá muntu fá að heyra
sannleikann.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér finnst þú hafa verið að-
krepptur í nokkurn tíma og langar til þess
að varpa af þér okinu. Einhver streitist tals-
vert á móti breytingum á sambandi við þig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ekki reyna að fela hina léttu og
jafnvel barnalegu hlið þína fyrir öðrum í
dag. Láttu vináttuna ekki blinda þér sýn í
þetta sinn.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ekki er gott að átta sig á því
hvar landið liggur í samskiptum við yfirboð-
ara núna. Gættu þín bara að ofmetnast
ekki.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér gengur vel að ræða mál sem
snerta sameiginlega ábyrgð við maka þinn.
Stattu upp og segðu hvers vegna fjöl-
skyldan er betur komin með þig innanborðs.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú vilt koma hlutunum í verk í dag
og gera þá almennilega. En það getur hins
vegar verið til hagsbóta á margvíslegan
hátt. Reyndu að forðast það og sýna þínum
nánustu hlýju og tillitssemi.
Þórarinn Eldjárn birti þessa vísuá Facebook-síðu sinni. Þegar
hann talar um ker og steypu skír-
skotar hann til myndarinnar af
blöndunartækjunum við baðkarið,
sem hann birti með vísu sinni.
Líf vort er aðeins eitt
en um það má lengi geipa
hvort það er kalt eða heitt
ker eða steypa.
Vísa eftir Æra-Tobba birtist hér í
Vísnahorni á mánudag. Sturla Frið-
riksson segist kunna einar sex vísur
eftir Æra-Tobba, – en þessa vísu
kann hann þannig:
Agara, gagar, urra rum,
illt er að vera í Flóanum.
Þambara, vambara, þrælsins klið,
þó er enn verra Ölfusið.
Hægt er að fylgjast með bæjar-
stjórnarfundum á Akureyri í beinni
útsendingu á N4. Hallmundur
Kristinsson fylgdist með slíkum
fundi á þriðjudagskvöld – og fann
„til ábyrgðar“:
Nú mun ég að markvissum hætti
móta hið göfuga starf;
til að kortleggja karllæga þætti
kynjaða vísnagerð þarf.
Björn Ingólfsson leikur sér hér
með limruformið:
Það gustaði um góðskáldið Óðin
þegar gleiður í salinn hann óð inn.
Þá viknuðu fljóðin
og funaði glóðin
er flutti hann þrumandi óðinn.
Hallmundur Kristinsson yrkir:
Margur í limranna línum
leikur að hugmyndum fínum;
sæmir hver sér.
Sjálfur ég er
stoltur af stuðlunum mínum.
Helgi R. Einarsson segir: „Þá
hefur maður kynnst 6u hætti og þá
er bara að reyna.
Í sögunni má Gamla Nóa greina
guðhræddan og vísan, andlegt lím.
Gutti lét á lundargeðið reyna.
Litla flugan hefur stuðla og rím.
Þvílík mæða, þú veist hvað ég meina
í þessu veðri að giftast veslings Grím-
u.“
Tíminn líður hratt. – Á mínum
sokkabandsárum kunnu allir strák-
ar á Laugaveginum þessa vísu:
Nú er úti veður vott,
verður allt að klessu;
ekki fær hann Grímur gott
að gifta sig í þessu.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ker eða steypa
og Grímur giftir sig
Í klípu
ENN EITT „GERÐU-OF-MIKIÐ-SJÁLFUR“
VERKEFNIÐ.
eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... dýrmæt.
HVERT GETUM VIÐ FARIÐ
Í SUMARFRÍIÐ OKKAR Í
ÁR, GRETTIR?
FYRIR UTAN LASAGNA-
VERKSMIÐJUNA
ÉG STEND
Á GATI
VEISTU HVERJU ÉG
SPYR MIG AÐ?
AF HVERJU ER
ALLTAF BARA
EITT TRÉ
Á EYÐIEYJUM?
HVERJU?
Reykjavíkurborg þótti stjórnlausþegar Jón Gnarr réð ferðinni
og hefur beinlínis siglt í strand síð-
an Dagur tók við stjórninni. Nýbirt
könnun Capacent bendir að minnsta
kosti til þess.
x x x
Stjórnleysi borgarinnar minnir áatvik sem sagt er frá í bókinni
Vestfirskir sjómenn í blíðu og
stríðu, Alþýðusögur í léttum dúr að
vestan, sem Vestfirska forlagið gaf
út fyrir skömmu í samantekt Hall-
gríms Sveinssonar og Bjarna G.
Einarssonar.
x x x
Sagan er þannig: „Þrjú skip semöll hétu Fagranes þjónuðu lengi
bændum í Ísafjarðardjúpi, hvert á
eftir öðru. Á miðskipinu með Fagra-
nesnafninu háttaði þannig til, að þar
sem stýrimaðurinn hafði talsvert að
gera í pappírsvinnu tók háseti að
nokkru leyti að sér stímvaktirnar á
móti skipstjóranum í Djúpferð-
unum.
x x x
Í vitlausu veðri um hávetursnemma á níunda áratug síðustu
aldar var gamli Faggi að koma inn-
an úr Djúpi. Hjalti M. Hjaltason
skipstjóri var niðri í borðsal að fá
sér næringu og í brúnni stóð stím-
vaktina Líndal heitinn Magnússon,
ævinlega kallaður Dalli og var lengi
háseti á skipinu.
x x x
Allt í einu hentist skipið til ogmiklir skruðningar heyrðust og
ætluðu alla að æra. Skipið var
strandað við Arnarnes í mynni
Skutulsfjarðar.
x x x
Hjalta skipstjóra brá svakalega ogtók stigann upp í brú í tveimur
skrefum og spurði Dalla hver djöf-
ullinn gengi á. Dalli svaraði í róleg-
heitum: „Við förum víst ekki lengra
í dag.““
x x x
Víkverji veltir því fyrir sér hvortborgarstjóri sé líka kominn á
endastöð.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Og ég segi yður: Biðjið og yður mun
gefast, leitið og þér munuð finna, kný-
ið á og fyrir yður mun upp lokið verða.
(Lúkasarguðspjall 11:9)
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Nýjar hagstæðar lausnir í innréttingum.
Nútímaleg hönnun, glæsilegt útlit og
örugg gæði frá fagmönnum.
Verktakar – húsbyggjendur
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA