Morgunblaðið - 06.02.2015, Side 39

Morgunblaðið - 06.02.2015, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2015 Söngkonan Regína Ósk er flytjandi og textahöfundur lagsins „Aldrei of seint“. María Björk Sverrisdóttir samdi textann ásamt Regínu og lagið ásamt Marcus Frenell. Sarah Reeve samdi síðan enskan texta við lagið. „Við Marcus sömdum lagið í fyrra,“ segir María, sem ásamt Marcusi hefur unnið saman að tónsmíðum síðustu átta árin en þau hafa átt lag í Söngvakeppni Sjónvarpsins á hverju ári síðustu fimm árin. Hún segir að undirbúningur fyrir laugardaginn gangi vel. „Núna er kjóllinn hennar Regínu Óskar í smíðum og við erum að vinna að sviðsumgjörð- inni. Ég vil ekki segja of mikið en það verður mikið vetrarævintýri uppi á sviði.“ Aðspurð segir María Björk að hún hafi fengið Regínu Ósk til þess að syngja lagið því henni fannst röddin hennar eiga heima í laginu. Hún segir að þátttaka í Eurovision hafi aldrei verið neinn ákveðinn draum- ur hennar sem tónlistarkonu. „En Eurovision er svolítil baktería. Ég fór með Jóhönnu Guðrúnu til Rússlands árið 2009 og var fram- kvæmdastjóri þess atriðis frá A til Ö. Það var voðalega gaman því allt gekk upp. Ég hefði gaman af því að prófa aftur. En auðvitað er mark- miðið að komast í úrslitin hér, svo er allt annað bara bónus,“ segir María. 900-9904 Reynsluboltinn Regína Ósk syngur lagið Aldrei of seint. „Eurovision er svolítil baktería“ Bjarni Lárus Hall mun flytja lagið „Brotið gler“ en hann samdi lagið ásamt Axel Árnasyni. Hann segir að mörg ár séu síðan lagið varð fyrst til en lokaútgáfan af því varð til á síðasta ári. „Þetta er eldgamalt lag frá mér en við Axel byrjuðum að vinna í því saman 2009. Þá var ég kominn með gítarriffið og söng- línuna en það vantaði viðlag og við sömdum það saman. Svo í fyrra var komin lokamynd á lagið, okkur fannst það gott, þannig að við ákváðum að prófa að senda það inn í Söngvakeppnina,“ segir Bjarni en þetta er í fyrsta skipti sem hann tekur þátt í Söngvakeppninni. „Brotið gler“ er ekki samið sér- staklega fyrir Eurovision og Bjarni segir það aldrei hafa verið neinn sérstakan draum sinn að taka þátt í keppninni. „En þetta er bara söng- lagakeppni eins og margar aðrar og maður gerir þetta á sínum for- sendum. Þetta er bara lag sem ég fíla og myndi setja á hvaða plötu sem er,“ segir Bjarni. 900-9905 Bjarni Lárus Hall syngur lagið Brotið gler í keppninni. Ekki tekið þátt í keppninni áður „Lagið fjallar um að reyna að njóta lífsins og vera hamingjusamur, ekki láta amstur dagsins og neikvæðni í heiminum fara í taugarnar á sér.“ Þetta segir söngvarinn Daníel Óli- ver Sveinsson um lagið „Fyrir alla“ sem samið var og tekið upp í Stokk- hólmi. „Við mættum í upptökuver til að taka upp önnur lög með öðrum höfundum en svo heyrðum við þetta „beat“ hjá vini okkar Jimmy. Hann leyfði okkur að taka upp lagið og við sömdum okkar melódíu og enskan texta á staðnum,“ segir Daníel Óli- ver. „En svo fékk umboðsmaðurinn okkar þá flugu í hausinn að senda lagið í Söngvakeppnina og ég bara hoppaði inn í stúdíó til að taka upp nýjan texta á íslensku sem ég samdi ásamt Einari Ágústi Víðissyni. Allt ferlið gekk bara eins og í sögu.“ Að- spurður hvort tónlistarhópurinn Ca- dem hafi leitt hugann að mögu- leikanum á því að komast alla leið í Eurovision segir Daníel að það hafi aldrei verið neitt meginmarkmið. „Markmið okkar er að hafa eins gaman og við getum og koma boð- skapnum í laginu út. Ef við fáum fólk til að dilla sér og líða vel og komast í gott skap á þessum 3 mínútum er takmarkinu náð. En ég ætla ekkert að ljúga því að það væri rosalega gaman að komast í úrslit og hvað þá til Vínarborgar,“ segir Daníel en hann er stóraðdáandi Eurovision. Ljósmyndir/Ólöf Erla Einarsdóttir 900-9906 Hópurinn Cadem samanstendur af Daníel Óliver, Emelie Schytz og Caroline Waldemarsson, en saman flytja þau lagið Fyrir alla. Markmiðið að allir dilli sér vinnumennsku erlendis og tekur að sér þjálfun meistaraflokks Vals. Leikstjóri er Árni Sveinsson. Ömurleg brúðkaup Þess má að lokum geta að franska gamanmyndin Ömurleg brúðkaup verður vegna fjölda áskorana sýnd áfram þó franskri kvikmyndahátíð sé lokið. Óli Þroskasaga þjóðhetju. „En amma hafði á öldunni gát og aflann úr fjör- unni dró“ er yfirskrift fyrirlesturs sem Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur og fram- kvæmdastýra Jafnréttisstofu, flytur í fyr- irlestrasal Þjóðminjasafnsins í dag kl. 12. „Í fyrirlestrinum mun Kristín fjalla annars vegar um langömmu sína Kristínu Magn- úsdóttur, 1859-1938, sem lengst af bjó í Vest- mannaeyjum og hins vegar móðurömmu sína Guðrúnu Guðmundsdóttur, 1895-1973, sem var frá Akranesi en bjó lengst af í Mosfellssveitinni og Reykjavík en einnig í Bandaríkjunum. Ævi þessara kvenna var ólík en báðar voru alþýðu- konur sem áttu það sameiginlegt að möguleikar til menntunar voru litlir,“ segir m.a. í tilkynn- ingu. Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröðinni „Margar myndir ömmu“ sem RIKK heldur í samstarfi við Þjóðminjasafnið og styrkt er af framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Aðgangur er ókeypis. Fyrirlestur um ömmu og langömmu Sagnfræðingur Kristín Ástgeirsdóttir. leikhusid.is Konan við 1000° – ★★★★ „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“ – Morgunblaðið Sjálfstætt fólk - hetjusaga (Stóra sviðið) Fös 6/2 kl. 19:30 17.sýn Lau 14/2 kl. 19:30 20.sýn Lau 21/2 kl. 19:30 22.sýn Lau 7/2 kl. 19:30 18.sýn Fim 19/2 kl. 19:30 Aukas. Fös 27/2 kl. 19:30 23.sýn Fös 13/2 kl. 19:30 19.sýn Fös 20/2 kl. 19:30 21.sýn Lau 28/2 kl. 19:30 24.sýn Ný sviðsetning frá sömu listamönnum og færðu okkur Engla alheimsins. Konan við 1000° (Kassinn) Sun 8/2 kl. 19:30 46.sýn Sun 15/2 kl. 19:30 lokas. Fim 5/3 kl. 19:30 Aukas. Fim 12/2 kl. 19:30 47.sýn Fim 26/2 kl. 19:30 Aukas. Athugið - síðustu sýningar. 5 stjörnu sýning - einstök leikhúsupplifun. Karitas (Stóra sviðið) Sun 8/2 kl. 19:30 32.sýn Sun 22/2 kl. 19:30 34.sýn Sun 8/3 kl. 19:30 36.sýn Sun 15/2 kl. 19:30 33.sýn Sun 1/3 kl. 19:30 35.sýn Athugið - síðustu sýningar. Seiðandi verk sem hlotið hefur frábærær viðtökur. Ofsi (Kassinn) Fös 6/2 kl. 19:30 Fös 13/2 kl. 19:30 Mið 11/2 kl. 19:30 Lau 14/2 kl. 19:30 Allra síðustu sýningar! Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan) Lau 14/2 kl. 13:00 Frums Lau 21/2 kl. 13:00 5.sýn Lau 28/2 kl. 13:00 9.sýn Lau 14/2 kl. 15:00 2.sýn Lau 21/2 kl. 15:00 6.sýn Lau 28/2 kl. 15:00 10.sýn Sun 15/2 kl. 13:00 3.sýn Sun 22/2 kl. 13:00 7.sýn Sun 1/3 kl. 13:00 11.sýn Sun 15/2 kl. 15:00 4.sýn Sun 22/2 kl. 15:00 8.sýn Sun 1/3 kl. 15:00 12.sýn Kuggur og félagar geysast nú upp á svið í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn! Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið) Lau 21/2 kl. 14:00 Frums. Lau 28/2 kl. 16:00 4.sýn Lau 14/3 kl. 14:00 7.sýn Lau 21/2 kl. 16:00 2.sýn Lau 7/3 kl. 14:00 5.sýn Lau 14/3 kl. 16:00 8.sýn Lau 28/2 kl. 14:00 3.sýn Lau 7/3 kl. 16:00 6.sýn Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS ★★★★ – SGV, MblHamlet – Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is Lísa og Lísa (Aðalsalur) Fös 6/2 kl. 20:00 AUKASÝNING! Fös 13/2 kl. 20:00 AUKASÝNING! Lau 7/2 kl. 20:00 AUKASÝNING! Lau 14/2 kl. 20:00 AUKASÝNING! ATHUGIÐ! Fjórar aukasýningar í febrúar! Martröð (Aðalsalur) Lau 21/2 kl. 21:00 Skepna (Aðalsalur) Sun 8/2 kl. 20:00 Uppsprettan (Allt húsið) Mán 9/2 kl. 21:00 Björt í sumarhúsi (Aðalsalur) Lau 14/2 kl. 13:00 Lau 14/2 kl. 15:00 Eldbarnið (Aðalsalur) Lau 7/2 kl. 14:00 Sun 15/2 kl. 14:00 Sun 1/3 kl. 14:00 Sun 8/2 kl. 14:00 Sun 22/2 kl. 14:00 Lína langsokkur (Stóra sviðið) Lau 7/2 kl. 13:00 Sun 22/2 kl. 13:00 Sun 15/3 kl. 13:00 Sun 8/2 kl. 13:00 Lau 28/2 kl. 13:00 Táknmálst. Lau 21/3 kl. 13:00 Lau 14/2 kl. 13:00 Sun 1/3 kl. 13:00 Sun 22/3 kl. 13:00 Sun 15/2 kl. 13:00 Sun 8/3 kl. 13:00 Lau 28/3 kl. 13:00 Lau 21/2 kl. 13:00 Lau 14/3 kl. 13:00 Sun 29/3 kl. 13:00 Táknmálstúlkuð sýning 28.febrúar kl 13 Dúkkuheimili (Stóra sviðið) Fös 6/2 kl. 20:00 Sun 15/2 kl. 20:00 Sun 8/2 kl. 20:00 Sun 22/2 kl. 20:00 Aðeins sýnt út febrúar Kenneth Máni (Litla sviðið) Lau 7/2 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00 Lau 28/2 kl. 20:00 Sun 8/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00 Fös 13/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00 Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni Öldin okkar (Nýja sviðið) Lau 7/2 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00 Sun 8/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 17:00 Lau 14/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00 5 stjörnu skemmtun að mati gagnrýnanda Beint í æð (Stóra sviðið) Lau 7/2 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00 Lau 28/2 kl. 20:00 Fös 13/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00 Fös 13/3 kl. 20:00 Lau 14/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00 Sprenghlægilegur farsi Ekki hætta að anda (Litla sviðið) Fös 6/2 kl. 20:00 9.k Lau 14/2 kl. 20:00 Aukas. Fim 19/2 kl. 20:00 Mið 11/2 kl. 20:00 aukas. Sun 15/2 kl. 20:00 11.k Sun 22/2 kl. 20:00 Fim 12/2 kl. 20:00 10.k Mið 18/2 kl. 20:00 12.k Fim 26/2 kl. 20:00 Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur Taugar - Íslenski dansflokkurinn (Nýja sviðið) Fös 6/2 kl. 20:00 Frums. Sun 15/2 kl. 20:00 3.k. Fim 26/2 kl. 20:00 5.k. Fim 12/2 kl. 20:00 2.k Sun 22/2 kl. 20:00 4.k. Tvö nýstárleg og óhefðbundin dansverk Dúkkuheimili –★★★★ , S.B.H. Mbl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.