Morgunblaðið - 26.02.2015, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2015
Bandarískir fjölmiðlar hafa að und-
anförnu fjallað um nýuppgötvaða
veiru, Bourbon-veiruna, sem sögð er
bráðdrepandi. Guðrún Sigmunds-
dóttir, yfirlæknir sóttvarna hjá
Embætti landlæknis, segir að veiran
sé á rannsóknarstigi og að hún sé
ekki skilgreind sem heilsuvá.
Veiran dregur nafn sitt af Bour-
bon-sýslu í Kansasríki í Bandaríkj-
unum, en íbúi þar fann skógarmítil á
öxl sinni síðasta vor og lést 11 dög-
um síðar. Fyrir skömmu komust
læknar við háskólasjúkrahúsið í
Kansas að þeirri niðurstöðu að nýrri
skæðri veirutegund væri um að
kenna og hún hefði borist með mítl-
inum. Áþekk veira hefur valdið
dauðsföllum í Asíu og Afríku, en
þetta er í fyrsta skipti sem hennar
verður vart á Vesturlöndum. Guðrún
segir vel fylgst með skógarmítlum
hér á landi, en samkvæmt vef Nátt-
úrufræðistofnunar eru þeir að öllum
líkindum orðnir landlægir hér á
landi. „Bit þeirra valda helst tveimur
sjúkdómum; Lyme-sjúkdómi og
mítilborinni heilabólgu,“ segir Guð-
rún. „Enginn hefur smitast af mítil-
bornum sjúkdómi hér á landi svo vit-
að sé og Bourbon-veirunnar hefur
ekki orðið vart hér.“
Vel fylgst með þróun mála
Að sögn Guðrúnar er Bourbon-
veiran enn á rannsóknarstigi. „Við
erum aðili að alþjóðlegu viðvör-
unarkerfi og fáum tilkynningar um
það sem talið er heilsuvá. Það er
ekki nóg að ný veira greinist til þess
að teljast það,“ segir Guðrún. „En
við fylgjumst vel með því sem er að
gerast.“ annalilja@mbl.is
Nýuppgötvuð veira er
sögð vera bráðdrepandi
Ljósmynd/Erling Ólafsson - ni.is
Skógarmítill Hann hefur tekið sér
bólfestu hér og veldur sjúkdómum.
Bourbon-veiran
berst með mítlum
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar undir-
býr kröfu til atvinnuvegaráðuneyt-
isins um að fella niður lögbýlisrétt á
eignarlandi bæjarins í þéttbýli. Í
öðrum tilvikum hefur verið ákveðið
að leita eftir sjónarmiðum rétthafa,
svo sem landeigenda og ábúenda til
hins sama.
Mosfellsbær er gamalt sveita-
samfélag en hluti þess hefur breyst
smám saman í þéttbýli. Haraldur
Sverrisson bæjarstjóri segir að við
skoðun embættismanna hafi komið í
ljós að enn teldust gamlar bújarðir
lögbýli þótt íbúðarhúsin stæðu ein
eftir við húsagötur, eins og hver
önnur hús.
Umræddur listi um lögbýli var
skoðaður þegar rætt var um að setja
reglur um hænsnahald í þéttbýli.
Ákveðið var að skilyrða hænsnahald
og leyfisbinda. Ekki mátti hafa hana
í hænsnahópnum. Það er í samræmi
við reglur ýmissa annarra bæjar-
félaga um hænsnahald í þéttbýli.
Íbúar í nágrenni við bæinn Suður-
Reyki höfðu kvartað undan hanagali
sem ónáðaði þá. Kom í ljós að bær-
inn er lögbýli og slíkrar reglur geta
ekki náð til hans. Nú er unnið að
lokafrágangi reglnanna hjá Heil-
brigðiseftirliti Kjósarsvæðis.
Mismunandi skilyrði
Tæplega 20 bæir eru á lista sem
lögmaður Mosfellsbæjar hefur tekið
saman yfir lögbýli í núverandi eða
væntanlegu þéttbýli.
Samkvæmt ákvæðum jarðalaga
getur atvinnuvegaráðuneytið fellt
niður lögbýlisrétt ef eigandi óskar
eða ef lögbýli fullnægir ekki lengur
skilyrðum til að vera lögbýli, til
dæmis vegna þess að það hafi ekki
lengur aðstöðu til að stunda land-
búnað. Lögmaðurinn telur að Mos-
fellsbær geti krafist niðurfellingar
lögbýlisréttar þeirra jarða sem á
hans landi standa. Þar er um að
ræða Álafoss, Hamrafell, Helgafell
1, Láguhlíð, Leirvogstungu, Leir-
vogsvatn, Sólheimakotsland og Sól-
heima. Gert er ráð fyrir að lögbýlis-
réttur umræddra býla verði felldur
niður, samkvæmt minnisblaði hans.
Ekki er hægt að fella niður ein-
hliða lögbýlisrétt á jörðum í eigu
Mosfellsbæjar þar sem aðrir eiga
rétt, til dæmis ábúendur eða leigu-
takar. Á þeim lista eru Hulduhólar,
Norður-Reykir 1, Skálatún og
Varmaland. Bæjarráð hefur sam-
þykkt að láta kanna afstöðu rétthaf-
anna til þess að lögbýlisrétturinn
verði felldur niður.
Hins vegar er ekki hægt að fella
niður lögbýlisrétt á jörðum í eigu
annarra án samþykkis þeirra. Það
síðastnefnda á meðal annars við
Suður-Reyki 3 þar sem hanarnir
eiga heima. Samkvæmt því verður
ekki hróflað við þeim nema með fullu
samþykki bændanna. Auk Suður-
Reykja á þetta ákvæði við Ása, Efri-
Hvol 1, Reykjamel 13, Teig, Blika-
staði og spildu 2 úr Lágafelli.
Lögbýlisréttur
verði felldur
niður í þéttbýli
Kemur þó ekki í veg fyrir ónæði
vegna hanagals frá Suður-Reykjum
Morgunblaðið/Golli
Lögbýli Langt er síðan búskapur
var stundaður á Álafossi.
Lögbýli
» Um 4.200 lögbýli eru í ábúð
á Íslandi, samkvæmt upplýs-
ingum á vef Bændasamtaka Ís-
lands. Um 3.200 bú
framleiða búvörur.
» Atvinnuvegaráðherra veitir
leyfi til stofnunar lögbýlis. Með
lögbýli er átt við jörð sem hef-
ur þann húsakost og það land-
rými eða aðstöðu að unnt sé
að stunda þar landbúnað eða
aðra atvinnustarfsemi.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Stefnt er að opnun 68 herbergja hót-
els á Tjarnarvöllum í Hafnarfirði í
sumar og eru framkvæmdir innan-
dyra hafnar.
Félagið JFK
fasteignir keypti
fasteignina
Tjarnarvelli 3 í
ársbyrjun en hún
er í eigu fjárfest-
anna Kolbeins
Össurarsonar og
Jóns Friðgeirs
Þórissonar. Kol-
beinn segir kaup-
verðið trúnaðar-
mál en gefur þó upp að það hafi verið
hagstætt. Félagið sem átti húsið var
í eigu kröfuhafa. Húsið var byggt
2006 og 2007 og hefur staðið autt.
Fleiri íhuga að opna hótel
„Það er búið að selja lóðirnar í
kring og er uppbygging í götunni að
fara á fullt. Með því mun þjónustu-
stigið í hverfinu hækka. Það hefur
verið grínast með það í bankageir-
anum að þegar húsið Tjarnarvellir 3
yrði selt og færi í notkun væri krepp-
unni formlega lokið,“ segir Kolbeinn
sem hefur haft spurnir af því að fleiri
íhugi að opna hótel í hverfinu.
Kolbeinn segir leigusamning hafa
verið undirritaðan við líkamsræktar-
keðjuna Reebok Fitness vegna leigu
á stórum hluta fyrstu hæðar hússins.
Á efri hæðum verður hótel og mun
Óli Jón Ólason, hótelhaldari á Hvols-
velli, sjá um reksturinn. Hótelið er
nú á teikniborðinu og hefur vinnu-
heitið Hótel Vellir. Lóðinni var upp-
haflega úthlutað undir hótel.
Hótelið verður þriggja stjörnu og
verður boðið upp á morgunmat.
Verður jafnframt opnuð veitinga-
aðstaða. Hluti af jarðhæð hússins fer
undir móttöku, veitingaaðstöðu og
ráðstefnusal á hótelinu.
Hentar íþróttafólki vel
Kolbeinn sér tækifæri í staðsetn-
ingunni og horfir þar til nálægðar við
flughermi Icelandair á völlunum og
íþróttamannvirkja á Ásvöllum.
„Sýnileiki hússins er mikill. Það
má segja að þetta svæði sé eins og
hlið inn á höfuðborgarsvæðið fyrir
meirihluta ferðamanna sem koma til
landsins. Aðgengið er því afar gott.
Mörg glæsilegustu íþróttamannvirki
landsins eru í nágrenninu. Sundlaug-
in á Ásvöllum er ein sú glæsilegasta í
heiminum. Stutt er í skíðasvæðið í
Bláfjöllum og hinum megin við göt-
una er einn helsti golfvöllur landsins.
Íþróttaaðstaðan í Kaplakrika er líka
í næsta nágrenni. Hótelið mun því
henta afar vel fyrir hópa sem koma í
æfingaferðir til Íslands,“ segir Kol-
beinn. „Nálægðin við Bláa lónið
skiptir líka miklu máli. Hafnarfjörð-
ur hefur miðbæ ólíkt Kópavogi,
Garðabæ og Mosfellsbæ. Miðbær
Hafnarfjarðar er í göngufæri en
Strandgatan og sjórinn hafa upp á
margt að bjóða fyrir ferðamenn,“
segir Kolbeinn Össurarson.
Morgunblaðið/Júlíus
Tjarnarvellir 3 í Hafnarfirði Húsnæðið var óinnréttað þegar JFK fasteignir keyptu það í byrjun ársins.
Opna 68 herbergja
hótel á Völlunum
Annar eigandi JFK fasteigna sér tækifæri í Hafnarfirði
Kolbeinn
Össurarson
Haft var eftir Björgu Jóns-
dóttur, rekstrarstjóra KEX hos-
tels, í Morgunblaðinu í gær að
vegna hækkandi fasteignaverðs
í miðborg Reykjavíkur muni
ódýrari gisting leita í úthverfin.
Spurður út í þetta sjónarmið
segir Kolbeinn að hægt verði að
bjóða ódýrari gistingu á Völl-
unum en í miðborg Reykjavíkur.
Leiguverð sé enda mun lægra.
Samkeppnisstaða hótelsins
verði því góð.
„Það er verið að byggja mikið
af dýrum hótelum í miðborg
Reykjavíkur. Verð á gistingu þar
mun taka mið af byggingar-
kostnaði. Það er mikil aukning í
framboði flugsæta til landsins
hjá lággjaldaflugfélögum. Það
er því ekki víst að hingað sé
fyrst og fremst að koma fólk
sem vill lúxus. Við getum verið
miklu ódýrari en miðbæjarhót-
elin. Það er ekkert launungamál
að fermetrinn er hér miklu ódýr-
ari en í miðbæ Reykjavíkur. Hót-
elið mun því geta keyrt á sann-
gjarnara verði en borgar-
hótelin,“ segir Kolbeinn.
Gistingin
verði ódýrari
LÆGRI LEIGA SKILAR SÉR
Ferköntuð
fermingarveisla!
Afhentir fulleldaðir á flottum bökkum
með ljúffengum sósum til hliðar.
Sendu Simma og Jóa póst á simmiogjoi@fabrikkan.is
og þeir græja Fabrikkusmáborgara í veisluna þína!
www.fabrikkan.is