Morgunblaðið - 26.02.2015, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.02.2015, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2015 REYKJAVÍK HÁALEITI OG BÚSTAÐIR H EI MS ÓKN Á HÖFUÐBO R G A R S V Æ Ð IÐ 2015 Smáíbúðahverfið í austurhluta Reykjavíkur var á sínum tíma til- raun til að leysa mikinn húsnæð- isvanda í borginni. Fólk hafði streymt til höfuðborgarinnar á stríðsárunum og þar varð mikil húsnæðisekla. Að tillögu nefndar á vegum borgaryfirvalda var ákveðið árið 1951 að heimila byggingu smá- hýsa í útjaðri borgarbyggðarinnar, í Sogamýrinn norðan Hæðargarðs. Borgaryfirvöld auglýstu lóðir og aðstoðuðu síðan fólk á ýmsa lund, gerðu lóðir byggingarhæfar, lögðu götur og ræsi. Færri fengu lóðir en vildu. Þær voru 200 í boði, en umsækjendur urðu rúmlega 400.Vegna gjaldeyr- isþrenginga leyfðu stjórnvöld í fyrstu ekki byggingu stærri húsa en 80 fermetra. Framkvæmdir hóf- ust af krafti haustið 1952. Heilu fjölskyldurnar lögðu nótt við dag við að byggja húsin og var ekki óal- gengt að sjá alla fjölskyldumeðlimi grafa grunna og slá upp fyrir hús- unum. Þó urðu flestir að fá fag- menn til hinna vandasamari verka. Lán til framkvæmda voru lítil sem engin. Urðu flestir að treysta á eigið fé eða lánsfé frá vinum og vandamönnum. Þrátt fyrir þetta gengu byggingarframkvæmdir vel og hverfið þótti sýna hvílíku grett- istaki mætti lyfta þegar dugmiklir einstaklingar og bæjaryfirvöld tækju höndum saman. Smáíbúða- hverfið var nánast fullbyggt árið 1955 og var þá fjölmennasta hverfi Reykjavíkur utan gömlu byggð- arinnar og bjuggu þar þá rúmlega fjögur þúsund manns. Þar naut sín fram- tak einstaklinga Smáíbúðahverfið á sér merka sögu Morgunblaðið/Kristinn Smáíbúðahverfi Teigagerði er ein hinna fallegu gatna í þessu hverfi. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Grensásvegurinn sunnan Miklu- brautar sker í sundur skólahverfi. Oft er ekið þarna í gegn á tals- verðum hraða og slíkt skapar slysa- hættu. Krafa íbúa um úrbætur er skýr enda hafa óskir um slíkt lengi verið uppi,“ segir Kristín Soffía Jónsdóttir, borgarfulltrúi Samfylk- ingar. Hún situr í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur og þar voru nýlega samþykktar hönn- unartillögur um þrengingu Grens- ásvegar milli Miklubrautar og Bú- staðavegar. Í dag er fyrrnefndur hluti Grensásvegar fjórar akreinar fyrir bíla, tvær í hvora átt.Nú er ætlunin að fækka reinum til hvorrar áttar í eina. Hvort farið verður í fram- kvæmdir ræðst þó meðal annars af þeim sjón- armiðum um mál- ið sem vænt- anlega koma fram á hverfisfundi sem haldinn verður í næstu viku. Segja má því að nú sé verkefnið á gula ljósinu. Og segi íbúar já, kviknar grænt ljós og allt fer af stað. Að sögn Stefáns Agnars Finns- son, yfirverkfræðings hjá umhverf- is- og skipulagssviði Reykjavík- urborgar, er nokkuð síðan fyrirhugaðar breytingar á Grens- ásvegi voru hannaðar. Í dag er raun- ar frágangur útboðsgagna einn eftir. Kostnaður við verkefnið er áætlaður 160 milljónir króna og yrðu þeir fjár- munir sóttir í 350 milljóna króna pott sem eyrnamerktur er gerð hjól- reiðastíga. Hjólastígar til beggja hliða Framkvæmdin er í stuttu máli sagt sú að í stað tveggja akreina verði útbúinn 2,5 metra breiður hjólastígur, beggja vegna til hliðar við tveggja metra breiða gangstétt. Hvor akrein verður 4,5 metra breið og hjóla- og göngustígur í sömu Morgunblaðið/Júlíus Breytingar Horft yfir Grensásveg til norðurs. Áformað er að breyta götunnni með öryggi og umhverfi í huga. Ein akrein í hvora áttina  Grensásvegur í gerjun  Skilyrði sköpuð svo ökumenn hægi ferðina  160 millj. kr verkefni fjármagnað úr hjólreiðastígapotti Kristín Soffía Jónsdóttir Samkvæmt nýju aðalskipulagi Reykjavíkur, sem gildir til 2030, mun íbúðum í Háaleitis- og Bú- staðahverfi fjölga um 850 á tíma- bilinu. þar af verða 550 á Kringlu- svæði og við Sléttuveg,. Í kynningu á þessum áformum segir að gert sé ráð fyrir að núver- andi grunn- og leikskólar geti tekið við auknum fjölda nemenda, en gera megi ráð fyrir að hlutfall barna yngri en 16 ára lækki í hverf- inu þegar líða tekur á skipulags- tímabilið. Veruleg fjölgun íbúða í Álftamýrarskólahverfi, þ.e. á Skeifusvæðinu, er sögð kalla á end- urskoðun á mörkum skólahverfa. Þá segir að atvinnuhúsnæði geti stækkað um 95 þúsund fermetra. Frekari stækkun atvinnuhúsnæðis geti orðið að skipulagstímabili loknu. Nýbyggingarnar við Sléttuveg verða blanda fjölbýlis og sérbýlis. Áhersla er á 2. til 4. hæða hús. Sam- tals verða þarna um 250 nýjar íbúð- ir. Í grennd við Kringluna verða byggðar 150 nýjar íbúðir og fleiri í næsta nágrenni. Á Skeifusvæðinu, við Múla og Suðurlandsbraut, er gert ráð fyrir allt að 300 nýjum íbúðum. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Háaleitishverfi Talsverð fjölgun íbúða er framundan í borgarhlutanum. Byggðar verða 850 íbúðir á næstu árum  Huga þarf að mörkum skólahverfa HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS EKKISLEIKJA MALBIKIÐ Í FROSTINU! -NAGLADEKKIN UNDIRHJÓLIÐ FÁST ÍGÁP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.