Morgunblaðið - 26.02.2015, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2015
sögn Dounia Bouzar, forstöðumanns
hugveitunnar CPDSI sem beitir sér
fyrir aðgerðum til að koma í veg fyrir
að ungt fólk gangi til liðs við íslömsk
öfgasamtök. Bouzar segir að sumir
ungu mannanna séu atvinnulausir og
hafi ekki samlagast franska samfélag-
inu. Því fari hins vegar fjarri að það
gildi um alla Frakkana í samtökunum.
CPDSI rannsakaði bakgrunn 160
fjölskyldna sem höfðu leitað eftir að-
stoð vegna þess að börn þeirra gerð-
ust stuðningsmenn íslamskra öfga-
samtaka. Í ljós kom að um 80%
foreldra ungmennanna sögðust vera
trúlaus. Tveir þriðju fjölskyldnanna
tilheyrðu millistéttinni. Langflest ung-
mennanna, eða 91%, snerust á sveif
með öfgasamtökunum vegna áróðurs
á netinu. Moskur í Evrópu virðast því
gegna litlu hlutverki í innrætingunni.
Um 63% nýliða samtakanna voru á
aldrinum 15 til 21 árs.
Þrá spennu og sess í sögunni
Rannsóknin bendir einnig til þess
að ungu karlmennirnir sem snerust á
sveif með samtökunum hafi verið veik-
astir fyrir áróðri þeirra um að stríðs-
menn þeirra séu hetjur með heilagt
markmið. Stúlkurnar hafi á hinn bóg-
inn verið hrifnari af boðskap samtak-
anna um félagslegt réttlæti og aðstoð
við fátæka.
Sumir ungu mannanna ákváðu að
taka þátt í baráttu samtakanna til að
fá tækifæri til að upplifa raunverulega
bardaga í stað þess að sitja við tölvu og
spila stríðsleiki. Aðrir löðuðust að
samtökunum vegna spennunnar,
hættunnar og löngunar til að hafa vald
yfir öðrum.
Talið er að um 1.200 franskir ríkis-
borgarar hafi farið til Sýrlands og
Íraks til að berjast með liðsmönnum
Ríkis íslams, að meðtöldum þeim sem
hafa snúið aftur til Evrópu. Franska
dagblaðið Le Monde sagði fyrr í vik-
unni að 23% frönsku íslamistanna sem
berjast núna kæmu úr fjölskyldum
sem eru ekki múslímar.
Trúin ristir oft grunnt meðal ungu
mannanna sem ganga til liðs við sam-
tökin, að sögn Marks Sageman, geð-
læknis og fyrrverandi njósnara banda-
rísku leyniþjónustunnar CIA í
Pakistan. „Þeir eru að elta táldraum
og hafa varla nokkra þekkingu á ísl-
am,“ segir Sageman. „Flestir þeirra
vita ekkert um Kóraninn.“
Þetta gildir þó ekki um þá alla. Talið
er að sumir ungu mannanna hafi
gengið til liðs við Ríki íslams í von um
að öðlast sess í sögunni sem þátttak-
endur í því markmiði samtakanna að
sameina araba í eitt ríki, í eitt kalífa-
dæmi eins og var fyrstu aldirnar eftir
dauða spámannsins Múhameðs. Þeir
féllu fyrir draumnum um fyrir-
myndarríki íslamista, líkt og komm-
únistarnir sem drápu fólk í hrönnum í
þágu hugsjónarinnar um sæluríki ör-
eiganna á öldinni sem leið og nasistar í
þágu þúsund ára ríkis aría.
AFP
Hvers vegna? Fjölskyldur Amiru Abase og Shamima Begum á blaða-
mannafundi í Lundúnum um flótta stúlknanna frá Bretlandi til Sýrlands.
Löndin sem þeir koma frá:
Frakkland
1.200
Spánn
50-100
Ítalía
80
Þýskaland
500-600
Austurríki
100-150
Sviss
40
Belgía
440
Holland
200-250
Svíþjóð
150-180
Noregur
60
Írland
30
Danmörk
100-150
Finnland
50-70
SÝRLAND
ÍRAK
Heimildir : ICSR/ISD
Áætlaður fjöldi skv. rannsókn ICSR, óháðrar stofnunar
sem rannsakar róttækar hreyfingar í heiminum
Konur sem
hafa farið til
Íraks og
Sýrlands frá
Evrópu
Fjöldi evrópsku
íslamistanna að
meðtöldum þeim
sem hafa snúið
aftur til Evrópu
Evrópsku konurnar sem
hafa gengið til liðs við
Ríki íslams, samtök íslamista,
taka ekki þátt í árásum eða
ofbeldisverkum samtakanna,
að sögn ISD
Evrópskir íslamistar í Sýrlandi og Írak
Bretland
500-600
550 (Institute
of Strategic Dialogue)
Drónar sveimuðu yfir París í fyrri-
nótt. Þetta var önnur nóttin í röð
sem óþekkt flygildi sáust á lofti í
frönsku höfuðborginni, að sögn
franskra fjölmiðla. Notkun dróna
er bönnuð yfir París á næturnar.
Ekki er vitað með vissu hversu
margir drónar voru á ferðinni í
fyrrinótt en fimm tilkynningar bár-
ust, annars vegar frá almennum
borgurum og hins vegar frá lög-
reglu.
Nóttina áður sást til fimm dróna í
borginni og hefur lögregla ekki
haft uppi á þeim sem stjórnuðu
þeim. Fyrsti dróninn sást nálægt
sendiráði Bandaríkjanna í borginni.
Drónar flugu einnig yfir Eiffel-
turninn og torgið Place de la Con-
corde. Talið er líklegt að þeir sem
stjórnuðu tækjunum þekkist.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
dularfullir drónar sjást á flugi yfir
Frakklandi. Þann 20. janúar síðast-
liðinn sveimaði flygildi yfir bústað
forseta Frakklands í París. Áður
sást til um tuttugu dróna fljúga ná-
lægt kjarnorkuverksmiðju.
FRAKKLAND
Dularfullir drónar flugu yfir París
tvær nætur í röð þrátt fyrir bann
Oft er margt um manninn í járnbrautarlestunum á Indlandi eins og sjá má
á þessari mynd sem var tekin af lest í útjaðri Nýju-Delí. Ríkisstjórn Ind-
lands kynnti í gær áform um að auka fjárfestingar í lestakerfi landsins um
að minnsta kosti 25%. Stjórnin segir þetta mögulegt vegna minnkandi elds-
neytiskostnaðar lestakerfisins sem er ríkisrekið og það fjórða stærsta í
heiminum.
Lágt olíuverð kemur ferðalöngum á Indlandi til góða
AFP
Boðar auknar fjárfestingar
í indverska lestakerfinu
Morgunblaðið gefur út þann
12. mars glæsilegt
sérblað um HönnunarMars
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARFRESTUR
AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 12,
mánudaginn
9. mars.
NÁNARI
UPPLÝSINGAR
GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Hátíðin verður haldin
víðs vegar um Reykjavík
þar sem saman koma
íslenskir hönnuðir og
sýna fjölbreytt úrval
nýrrar íslenskrar hönn-
unar og arkitektúrs af
margvíslegu tagi.
HönnunarMars
DesignMarch
Reykjavík 12.-15.03.2015
K
ra
ft
av
er
k
Hágæða heyrnatól sem hlotið hafa
marg-víslegar viðurkenningar fyrir hljómburð
og hönnun. Hægt að tengja saman þannig að 2 eða fleiri
geti hlustað úr sama tækinu.
Fjarstýrð símsvörun og hljóðnemi fyrir „hands free“ símtöl.
Tvær gerðir og ótal litir...
U R B A N E A R S • H Á G Æ Ð A H Ö N N U N • H L J Ó M F Y L L I N G & G Æ Ð I
Skólavörðustíg 12 • sími 578 6090
www. minja.is • facebook: minja
TVÆR GERÐIR:
PLATTAN kr. 10.800
HUMLAN kr. 9.900