Morgunblaðið - 26.02.2015, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Eggert
Snjókoma Alda Villiljós og Sigga Dögg utan við Sjóminjasafnið þar sem viðburðurinn Sköpun/Genital verður.
er enn skömm og tabú í tengslum við
kynfæri. Sýningin okkar er innlegg í
því að breyta þessu og gera kynfæri
opinber án feimni eða skammar.
Húmor er líka mjög gott tæki til að
nálgast þetta málefni.“
Ákveðum margt um mann-
eskju út frá kynfæri
En sýningin snýst ekki aðeins
um kynfæri heldur líka um vanga-
veltur tengdar kyni. Sigga Dögg
verður með kynfæraljósmyndir og
vídeóverk, af því að hún vill að fólk
endurskoði hvaða hugmyndir það
hefur um kynfæri.
„Ég verð á staðnum og vil frá
viðbrögð frá áhorfendum. Ég ætla að
pönkast svolítið með þetta. Kynlíf er
oft kynfæramiðað, það fyrsta sem við
sjáum þegar börnin okkar fæðast eru
kynfæri þeirra og meira að segja áð-
ur en þau fæðast þá kíkjum við á
kynfærin. Þetta snýst svo mikið um
kynfæri og við virðumst ákveða svo
margt um manneskjuna út frá þessu
eina atriði. Mér finnst áhugavert að
velta upp spurningunni: Hvað þegar
kynfæri passa ekki inn í þetta fyr-
irfram gefna mót?“ segir Sigga Dögg
og bætir við að þegar hún hefur sýnt
unglingum kynfæramyndirnar þá
halda þau oft að ákveðið útlit kynfær-
is segi eitthvað um manneskjuna sem
það tilheyrir. „Til dæmis benda þau
oft á eina af píkumyndunum og
segja: Þetta er pottþétt píka á trans-
manneskju, konu sem fæddist með
typpi en fór í kynleiðréttingu. En
þegar ég segi þeim sannleikann, sem
er sá að þessi píka tilheyri mjög
frægri íslenskri konu sem er ekki
trans en hefur oft verið valin í topp
tíu sætin yfir fallegustu konur á Ís-
landi, þá verða þau mjög hissa. En
þannig komst þau að því að það er
ekki hægt að flokka kynfæri eftir
fólki eða öfugt. Rétt eins og það er
ekki hægt að sjá á píkumyndunum
hver þeirra tilheyrir lesbíu. Það er
gaman að taka kynfæraumræðuna í
allar áttir,“ segir Sigga Dögg og bæt-
ir við að blaðamaður frá Bandaríkj-
unum ætli að mæta á sýninguna og
fjalla um hana.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2015
Hópinn Sköpun skipa þau Anna
Rakel, Alda Lilja, Alda Villiljós,
Krista Hall, Sigga Dögg, Ýrúrarí.
Viðburðurinn þeirra Sköpun /
Genitalia, þar sem hægt verður
að skoða kynfæri í ólíkum form-
um og myndum, verður í Sjó-
minjasafninu úti á Granda.
Sýningin hefst á fimmtudag í
næstu viku hinn 12. mars og
stendur fram á laugardag.
Á föstudeginum verða þau
með sérstakt partí sem þau
kalla Kynfærakokteil, frá klukk-
an 17 til 19.
Kynfæri í ólík-
um formum
SJÓMINJASAFNIÐ
Á HÖNNUNARMARS
Í kvöld hefst hin árlega íslenska
bjórhátíð í fjórða sinn á Kex Hosteli
við Skúlagötu og stendur hún alla
helgina. Hátíðin er haldin í tilefni af
26 ára afmælisdegi íslenska bjórsins,
en þann 1. mars 1989 var almenn sala
á bjór leyfð eftir 74 ára sölubann.
Kex Hostel hefur boðið íslenskum
og erlendum bruggurum í heimsókn
til að kynna sig og sína framleiðslu
dagana sem hátíðin fer fram.
Öll helstu brugghús landsins taka
þátt í hátíðarhöldunum og munu
bruggarar frá Borg, Ölgerðinni, Ein-
stök, Vífilfelli, Steðja, Ölvisholti og
Kalda kynna starfsemi sína. Nokkur
erlend brugghús mæta með sína full-
trúa, frá Danmörku (To Øl, Mikkeller)
og Bandaríkjunum (Hopworks Urban
Brewery, Founders Brewing Comp-
any, Evil Twin Brewing og Two Roads
Brewing). Stefán Pálson og Höskuld-
ur Sæmundsson, höfundar bókarinn-
ar Bjór: Umhverfis jörðina á 120 bjór-
um, fara með bjórhugvekju laugardag
28. febrúar. Nánar: www.kexland.is
Íslenska bjórhátíðin á Kex
Hostel í fjórða sinn
Íslenskir og er-
lendir brugga
Morgunblaðið/Kristinn
Kex 2013 Mckean Banzer-Lausberg
og Eric Banzer-Lausberg skála.
FRAMÚRSKARANDI
Þú veist það um leið og þú sérð hann. Það er eitthvað einstakt við Range Rover Evoque. Hönnunin grípur þig
samstundis. Útlitið er loforð um ævintýri, þægindi og óbeislaða upplifun. Búnaðurinn er á heimsmælikvarða,
hvort sem um ræðir aksturseiginleika, fjöðrunarbúnað, drifkerfi eða afl.
Reynsluaktu Evoque og leyfðu honum að heilla þig. Hafðu samband í síma 525 8000 eða komdu í heimsókn.
www.landrover.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
7
5
8
6
*M
ið
að
vi
ð
up
pg
ef
na
r
vi
ðm
ið
un
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
da
um
el
ds
ne
yt
is
no
tk
un
íb
lö
nd
uð
um
ak
st
ri
.
RANGE ROVER EVOQUE – VERÐ FRÁ 7.690.000 KR.
4x4 - TD4 2,2 dísil, 9 þrepa sjálfskipting. Eyðsla 6,5 l/100 km.*
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000
www.facebook.com/siggadogg.is