Morgunblaðið - 26.02.2015, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.02.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2015 Málið nú snýst um skipulag mið- bæjarins. Verið er að gera upp um- rætt hús, en hugmyndin var að það yrði fært annað í því skyni að opna svæðið frá göngugötunni og Skáta- gilinu niður að gamla hafnarsvæðinu og menningarhúsinu Hofi. Ljóst er nú að húsið verður ekki fært í bráð.    Bærinn mun hafa hafnað því fyr- ir nokkrum misserum að kaupa hús- ið og ljóst að síðan hefur það hækkað mikið í verði. Ragnar Sverrisson kaupmaður, einn helsti bar- áttumaður fyrir breyttu skipulagi á svæðinu, og samfylkingarmaður, er foxillur við Loga Má Einarsson, odd- vita flokksins í bæjarstjórn fyrir að svíkja málstaðinn.    Ragnar segir að skv. skipulaginu verði húsið að víkja, Logi aftur á móti að heimilt sé að flytja húsið. Það sé allt annað mál. Ragnar gagn- rýnir leiðtogann líka fyrir að hafa tekið að sér, sem arkitekt, að hanna breytingar á húsinu og krefst þess að hann víki úr bæjarstjórn. Logi svarar því til að vinna fyrirtækis hans, Kollgátu, snúist ekki um mikla hagsmuni og þar sem ekki hafi verið hægt að meina eiganda hússins að gera við það hafi Kollgáta tekið verkið að sér eftir að til stofunnar hafi verið leitað.    Áskell Örn Kárason er skák- meistari Akureyrar 2015. Síðasta umferð á Skákþingi Akureyrar, þess 78. í röðinni, var tefld á sunnudag- inn. Þátttakendur voru 21, sá yngsti 10 ára en sá elsti 73 ára.    Keppni var hnífjöfn. Meistari fyrra árs, Jón Kristinn Þorgeirsson, hafði hálfs vinnings forskot fyrir síð- ustu umferð, en mátti þá lúta í lægra haldi fyrir Akureyrarmeistaranum 2011, Smára Ólafssyni. Á meðan tókst Áskeli Erni að leggja Ólaf Kristjánsson að velli og skjótast fram úr Jóni.    Þess má geta að Áskell var nú með í mótinu í fyrsta sinn í 30 ár, en hann varð einmitt meistari síðast ár- ið 1985! Áskell fékk sex vinninga af sjö mögulegum, en Jón Kristinn, sem er aðeins 15 ára, hlaut fimm og hálfan vinning. Morgunblaðið/Skapti Umdeilt hús Braunshús er það litla fyrir miðri mynd. Menningarhúsið Hof og gamla hafnarsvæðið í fjarska. Má Braunshús fara eða á það að fara? Gegn heimilisofbeldi Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á Norð- urlandi eystra, og Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri. ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Akureyrarbær og embætti lög- reglustjórans á Norðurlandi eystra hefja senn sameiginlegt átak gegn heimilisofbeldi. Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri og Eirík- ur Björn Björgvinsson bæjarstjóri undirrituðu yfirlýsingu þess efnis í gær.    Þetta sameiginlega verkefni hefst 1. mars næstkomandi. Árang- ur verður metinn að ári liðnu. Unnið verður í samráði við hagsmuna- samtök og aðra sem geta lagt verk- efninu lið.    Fyrirmyndin er verkefnið Að halda glugganum opnum, samstarfs- verkefni lögreglu og félagsþjónustu á Suðurnesjum, sem miðar að því að bæta rannsóknir í málum er varða heimilisofbeldi og koma fleiri málum í gegnum refsivörslukerfið. Mark- miðið er að fyrstu viðbrögð lögreglu verði markvissari, úrræði eins og nálgunarbann og brottvísun af heim- ili verði betur nýtt og þolendur og gerendur fái betri stuðning.    Lítið hús við göngugötuna hefur valdið titringi í Samfylkingunni á Akureyri undanfarið. Um er að ræða hús númer 106 við Hafnarstræti, þar sem Brauns-verslun var fyrir margt löngu og gjarnan nefnt eftir henni. Mikið annríki er þessa dagana hjá flugtæknideild Landhelgisgæslunn- ar á Reykjavíkurflugvelli. Aldrei hafa fleiri vélar verið í skýlinu en auk flugflota Landhelgisgæslunnar er þar einnig vél Isavia af gerðinni Beech B-200 í viðhaldi og skoðun á henni er að ljúka, segir á heimasíðu Gæslunnar. Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF er nú í reglubundinni skoð- un eftir langa útiveru í landamæra- eftirliti fyrir Frontex á Miðjarðar- hafinu en vélin kom nýverið til landsins eftir ríflega tveggja mánaða úthald. Að auki er ein af þremur þyrlum stofnunarinnar TF-SYN í stórri skoðun sem komin er vel af stað. Hinar tvær þyrlur Landhelgisgæsl- unnar TF-LIF og TF-GNA hafa nú farið í gegnum stórar reglubundnar skoðanir og eru tilbúnar til verkefna. Flugöryggi verði fylgt „Mikil ábyrgð fylgir því að við- halda og reka loftför og hefur flug- tæknideild Landhelgisgæslunnar það hlutverk að fylgja eftir ítarleg- um viðhaldsáætlunum sem sérsniðn- ar eru að hverri vél fyrir sig og tryggja það að viðhald sé fram- kvæmt samkvæmt lögum og reglum og flugöryggi sé tryggt eins og best verður á kosið,“ segir í frétt á heima- síðunni. Ljósmynd/Gæslan Þröng á þingi Allir fermetrar nýttir í flugskýli Landhelgisgæslunnar. Aldrei fleiri vélar í skýli Gæslunnar  TF-SIF komin til landsins að nýju YOUR TIME IS NOW. CREATE A FIRST IMPRESSION THAT DEMANDS A SECOND LOOK. Tíminn tignarlega túlkaður á hvítri perluskel. Umgjörðin er prýdd 72 demöntum sem ramma inn fíngerða tunglstöðuskífu og nákvæma skeiðklukku. Kvenlegt úr sem sendir skýr skilaboð um styrk og sjálfsöryggi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.