Morgunblaðið - 26.02.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2015
Menn hafa lengi haft þungaráhyggjur af stöðu Alþingis og
er þá einkum átt við virðingu þess.
Þessi mikilvægastofnun þarf að
tróna hátt í sér-
hverri mælingu á
trausti.
En eftir síðustufréttir eiga við orð karlsins,
sem sagði við svipað tækifæri, að
staðan væri ekki alvarleg, en á hinn
bóginn vonlaus.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttirhefur flutt frumvarp til laga
varðandi námslán.
Segir þar að lán skuli falla niðurvið lát ábyrgðarmanns.
Samþykki Alþingi þessa hug-mynd þingmannsins hljóta
námsmenn framvegis að taka mjög
„strategiskar“ ákvarðanir þegar
þeir velja sér ábyrgðarmenn.
Þegar Sigríður Ingibjörg varspurð hvort hún væri að leggja
til að upphaflegur lántaki þyrfti
ekki að standa skil á láni félli
ábyrgðarmaður hans frá, sagði hún
að það væri góð spurning.
Sigríður Ingibjörg var spurð umþað, hvort þetta nýtilkomna og
óvenjulega ákvæði væri sett í laga-
frumvarp af greiðasemi við nafn-
greindan samþingmann hennar.
Svaraði hún því til að þetta hefðiekkert með greiðasemi við
þann þingmann að gera „enda á
hann ekki inni hjá mér greiða og ég
myndi ekki beita mér fyrir laga-
breytingum til þess að gera fólki
greiða“.
Sigríður Ingi-
björg Ingadóttir
Greiða greiðar fyrir
þingstörfum?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 25.2., kl. 18.00
Reykjavík 3 slydda
Bolungarvík 1 alskýjað
Akureyri 1 snjókoma
Nuuk -15 skýjað
Þórshöfn 5 skýjað
Ósló 2 skýjað
Kaupmannahöfn 3 skýjað
Stokkhólmur 5 léttskýjað
Helsinki 3 skýjað
Lúxemborg 3 skúrir
Brussel 5 súld
Dublin 12 súld
Glasgow 7 skúrir
London 11 léttskýjað
París 7 alskýjað
Amsterdam 7 skýjað
Hamborg 7 léttskýjað
Berlín 7 léttskýjað
Vín 7 skúrir
Moskva 2 léttskýjað
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 13 léttskýjað
Barcelona 18 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 12 léttskýjað
Aþena 13 léttskýjað
Winnipeg -23 léttskýjað
Montreal -7 snjókoma
New York 0 heiðskírt
Chicago -4 skýjað
Orlando 17 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:47 18:36
ÍSAFJÖRÐUR 8:58 18:34
SIGLUFJÖRÐUR 8:41 18:17
DJÚPIVOGUR 8:18 18:04
Eir öryggisíbúðir ehf.
Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík. | (522 5700 milli 8:00 og 16:00 virka daga
Vandaðar öryggisíbúðir Eirar til leigu í Grafarvogi, Reykjavík
Eirborgir, Fróðengi 1-11, 112 Reykjavík
Eirarhús, Hlíðarhúsum 3-5, 112 Reykjavík
Nánari upplýsingar í síma 522 5700 virka daga milli kl. 8 og 16
og í gegnum netföngin: edda@eir.is, sveinn@eir.is
Öryggisíbúðir Eirar til leigu
í Grafarvogi Reykjavík
• Rólegt og notarlegt umhverfi með aðgengi að metnaðarfullri
aðstöðu og þjónustu með það að markmiði að einstaklingurinn geti
búið lengur heima
• Öryggisvöktun allan sólarhringinn
• Aðgengi að mötuneyti og félagsmiðstöð
• Góðar gönguleiðir í nágrenninu
Ísland er 225 ferkílómetrum minna
en almennt var talið, samkvæmt nýj-
um mælingum Loftmynda ehf. á
strandlínum. Niðurstaðan er sú að Ís-
land er 102.775 ferkílómetrar að
stærð, en samkvæmt upplýsingum á
heimasíðu Landmælinga Íslands
mældist landið 103.000 km2. „Þetta er
nálgun á þá tölu sem yfirleitt kemur
út þegar flatarmál Íslands er mælt.
Hún er sett fram til almenns fróð-
leiks,“ segir Magnús Guðmundsson,
forstjóri Landmælinga Íslands. Bæt-
ir hann við að í mælingu þeirra frá
2006 hafi landið mælst 102.695 km2 og
að séu niðurstöðurnar háðar mismun-
andi aðferðum við mælingar og
hvernig strandlínan sé skilgreind.
Fram kemur í frétt Loftmynda ehf.
að mælingar þeirra, sem gerðar séu
með háupplausnar-loftmyndum, gefi
nákvæmari niðurstöðu en eldri mæl-
ingar. „Með þessari aðferð er hægt að
mæla stærð Íslands nákvæmar en
hægt hefur verið áður auk þess sem
einfaldara verður að endurmæla
strandlínuna síðar,“ segir í fréttinni.
Heildarlengd strandlínu Íslands
(meginland) er samkvæmt mælingu
Loftmynda ehf. 6.542,4 kílómetrar.
Við þessar mælingar þeirra var reikn-
uð út ný miðja landsins sem færist frá
því sem áður hefur verið talið um 120
metra. Ný miðja landsins er við aust-
ari Jökulsá, austan Illviðrahnjúka
norðan Hofsjökuls eða á 64°59’09.2"
Norður 18°35’04.6" Vestur.
Stærð Íslands mæld nákvæmar
Heildarlengd strandlínunnar mælist
6.542,4 kílómetrar Miðjan færist
Ljósmynd/Loftmyndir
Breyting Strandlínan eins og hún
hefur verið á kortum Landmælinga
er teiknuð sem gul, en ný mæling
Loftmynda er sýnd sem rauð lína.
Tæplega sextugur maður var í vik-
unni dæmdur í tveggja ára og átta
mánaða fangelsi fyrir vörslu barna-
níðs og brot á vopnalögum. Hann
var á reynslulausn vegna kynferð-
isbrot gagnvart þroskaskertum pilti.
Jón Sverrir Bragason var stöðv-
aður af tollgæslunni í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar þann 1. ágúst 2014,
vegna gruns um að tölvur og minn-
islyklar sem hann hafði meðferðis
innihéldu ólöglegt myndefni. Var
hald lagt á munina og við rannsókn
mun hafa komið í ljós mikið magn af
barnaklámi.
Jóni Sverri var með dómi Hæsta-
réttar 26. ágúst 2014 gert að sæta
farbanni til 16. september 2014 og
hefur hann síðan sætt farbanni óslit-
ið frá þeim tíma. Með dómi Hæsta-
réttar 20. maí 2010 var hann dæmd-
ur í fangelsi í þrjú ár og sex mánuði
fyrir að hafa í nokkur skipti tælt
dreng meðan hann var á aldrinum
13-15 ára til kynmaka með því að
notfæra sér þroskaskerðingu hans,
reynsluleysi af kynlífi og tölvufíkn.
Jón Sverrir fékk reynslulausn 7.
desember 2012 í tvö ár á eftir-
stöðvum refsingar, 420 dögum. Þeir
eru inni í refsingu hans nú og er all-
ur dómurinn óskilorðsbundinn.
Var með
barnaklám
Brotamaður á
reynslulausn