Morgunblaðið - 26.02.2015, Side 9

Morgunblaðið - 26.02.2015, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2015 Ný sending • Hnepptar peysur • Heilar peysur • Buxur • Bolir Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Vinsælu velúrgallarnir Stærðir S-xxxxL TAX FREE af öllum snyrtivörum í febrúar Glæsilegur sundfatnaður nýkominn í hús Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Opnum í dag Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is með glæsilega vorvöru! KJÓLADAGAR 20–50% AFSLÁTTUR Laugavegi 63 • S: 551 4422 www.laxdal.is Skoðið laxdal.is/kjólar Hringvegi 1 í gegnum Selfoss, Austurvegi, var lokað formlega í gær vegna vegaframkvæmda. Um- ferðinni er beint um aðrar smærri götur í bænum á meðan gangandi umferð er heimil um vinnusvæðið. Skipta á um jarðveg og lagnir og útbúa nýjar stéttir og miðstæði við ofanverða Tryggvagötu sem liggur þvert á Austurveginn í miðbæ Sel- foss. Verktakafyrirtækið Borgarverk sér um framkvæmdina og segir Óskar Sigvaldason, framkvæmda- stjóri Borgarverks, að skila eigi verkinu í ágúst og tíu starfsmenn vinni nú að því. Lokun Austurvegar er fyrsti áfangi verksins. Morgunblaðið/Malín Brand Austurvegur á Selfossi nú lokaður Lögreglumanninum sem í lok síð- asta árs hlaut dóm í Hæstarétti fyrir líkamsárás og brot í starfi verður vikið frá störfum frá og með næstu mánaðamótum. Mann- inum var tilkynnt þetta í gær á fundi með Sigríði Björk Guðjóns- dóttur, lögreglustjóra á höfuðborg- arsvæðinu. Dómur féll í Hæstarétti um miðj- an desember en maðurinn var ákærður vegna handtöku konu í miðborg Reykjavíkur í júlí árið 2013. Í dómi Hæstaréttar sagði m.a. að lögreglumaðurinn hefði farið of- fari við handtökuna og beitt kon- una meira valdi en tilefni var til. Myndskeið af handtökunni var birt á netinu og var það upphafið að málinu. Sigríður Björk staðfesti frávikn- ingu mannsins í samtali við mbl.is í gær og sagði að unnið hefði verið að ákvörðun á undanförnum vikum. Maðurinn var sendur í leyfi frá störfum sumarið 2013 og hefur hann verið á hálfum launum þann tíma skv. reglum um embættismenn. Lögreglumanninum vikið frá störfum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.