Morgunblaðið - 26.02.2015, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2015
Kristín Gunnarsdóttir er skurðhjúkrunarfræðingur á Landspít-alanum – háskólasjúkrahúsi, og hefur hún unnið á skurðstof-unni síðan 1989. „Ég er alltaf að læra eitthvað nýtt og það er
stöðug endurmenntun í gangi. Við erum framarlega á þessu sviði, við
Íslendingar.“ Um 30 skurðhjúkrunarfræðingar vinna á skurðstof-
unni. „Ég man ekki nákvæmlega hve mörg við erum og þó sé ég um
að gera vinnuskýrslur. Það eru líka ekki allir í fullu starfi hér.“
Kristín stundar golfið grimmt á sumrin. „Svo förum við hjónin allt-
af einu sínni til tvisvar á ári í golferðir til útlanda. Við fórum í haust til
Spánar og svo er ráðgert að fara í vor. Fyrir utan golfið þá er ég mik-
ið fyrir handavinnu, ég prjóna og sauma og svo mála ég líka olíu-
málverk. Ég teiknaði mikið sem barn og fór í myndlistarnám, bara af
áhuga, í Myndlistarskóla Kópavogs og er núna búin að vera í þrjú ár í
Myndlistarskóla Mosfellsbæjar.“
Eiginmaður Kristínar er Sigurjón Guðmundsson rafvirki hjá Orku-
veitunni. Þau eiga þrjú börn, Sigurbjörgu sem er einkaþjálfari, Anton
sem er tölvunarfræðingur og Svövu sem er ensku- og kennaranemi í
háskólanum en hún hefur lokið námi í japönsku. Þau Sigurjón eiga
sex barnabörn og það sjöunda er á leiðinni. Þau tvö elstu eiga þrjú
hvert og Svava á von á sínu fyrsta barni.
Kristín ætlar út að borða með manninum sínum í tilefni dagsins.
Kristín Gunnarsdóttir er 60 ára í dag
Í Hreiðrinu Kristín stödd á veröndinni fyrir utan sumarbústað þeirra
hjóna í Biskupstungum, þaðan sem farið er í útgerð á golfvertíðinni.
Stundar golf og
málar olíumálverk
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Mosfellsbæ Þórdís
Lilja Árnadóttir fædd-
ist 10. mars 2014 kl.
3.02. Hún vó 3.620 g
og var 50 cm löng. For-
eldrar hennar eru Sig-
ríður Ólöf Guðmunds-
dóttir og Árni Geir
Valgeirsson.
Nýr borgari
S
verrir fæddist að Svalbarði
í Ögurvík í Ögurhreppi
26.2. 1930 og ólst þar upp í
stórum hópi systkina til
14 ára aldurs er fjöl-
skyldan flutti til Ísafjarðar.
Sverrir gekk í Gagnfræðaskóla
Ísafjarðar þar sem Hannibal Valdi-
marsson var skólastjóri. Hann stund-
aði nám til stúdentsprófs við MA og
lauk síðan prófi í viðskiptafræði við
HÍ 1955.
Sverrir var fulltrúi hjá VSÍ 1955-
56, skrifstofustjóri hjá Versl-
unarmannafélagi Reykjavíkur 1956-
60, formaður og framkvæmdastjóri
Landssambands íslenskra versl-
unarmanna 1957-72, fulltrúi hjá dag-
blaðinu Vísi 1960-62 og fasteignasali
1962-71. Auk þess sinnti hann útgerð
með bræðrum sínum.
Sverrir var vþm. 1963-71, alþm.
Austurlandskjördæmis fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn 1971-88, forseti neðri
deildar 1979-83 og alþm. Reykjavíkur
fyrir Frjálslynda flokkinn 1999-2003.
Sverrir var forstjóri Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins 1975-83,
iðnaðarráðherra 1983-85, mennta-
málaráðherra 1985-87 og bankastjóri
Landsbanka Íslands 1988-98.
Sverrir var formaður Vöku, félags
lýðræðissinnaðra stúdenta 1954-55,
sat í Stúdentaráði HÍ 1954-55, for-
maður Stúdentafélags Reykjavíkur
1957-58 og sat í stjórn SUS 1953-57.
Hann sat í stjórn útgerðarfélaganna
Eldborgar hf., Ögra hf. og Vigra hf., í
stjórn Kirkjusands hf. og var stjórn-
arformaður útgerðarfélagsins Ög-
urvíkur hf. 1970-88.
Sverrir sat í Rannsóknarráði rík-
isins 1971-74, var fulltrúi í Norð-
urlandaráði 1975-83 og 1987-88 og sat
í milliþinganefndum og öðrum stjórn-
skipuðum nefndum um ýmis málefni,
sat í stjórn Sjóminjasafnsins 1979-83
og var formaður Frjálslynda flokks-
ins 1998-2003.
Sverri var veitt gullugla MA 1986,
gullstjarna Stúdentafélags Reykja-
víkur og gullstjarna LÍV og VR. Bók-
in Skýrt og skorinort. Minningabrot
Sverrir Hermannsson, fyrrv. alþm., ráðh. og bankastjóri – 85 ára
Fiskisaga Sverrir er alvöru veiðimaður. Hér lýsir hann fyrir Gretu, konu sinni, sporðstærð á þeim stóra sem slapp.
Orðhagur stjórnmála-
garpur úr Ögurvík
Pólitísk feðgin Sverrir og Margrét,
dóttir hans, með frjálslyndum.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isSmiðjuvegi 9, 200 Kópavogi ■ Sími 535 4300 ■ axis.is ■ Opið: mán. - fös. 9:00 - 18:00
Fataskápur
Hæð 2100 mm
Breidd 800 mm
Dýpt 600 mm
Tegund: Strúktúr eik
TIL Á LAGER
S KÁPATI LB OÐ
Verð58.900,-m. vsk.