Morgunblaðið - 26.02.2015, Page 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2015
2 VIKUR Á TOPPNUM!
VINSÆLASTA MYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG
www.laugarasbio.isSími: 553-2075
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS OG MIDI.IS
- bara lúxusMargrét Elísabet Ólafsdóttir, dokt-or í list- og fagurfræði, flytur í
kvöld, fimmtudag, klukkan 20, fyr-
irlestur um myndlist Corys Arc-
angel í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi.
Í fyrirlestrinum verður skyggnst
inn í hugmyndaheim listamannsins.
Arcangel sló í gegn upp úr síðustu
aldamótum. Hann hafði notað for-
ritun í listsköpun sinni í nokkurn
tíma og vakti svo athygli fyrir verk-
ið „Super Mario Clouds“ sem er
byggt á Nintendo tölvuleik. Að-
gangur á fyrirlesturinn er ókeypis.
Fyrirlestur um list Cory Arcangel
Nýmiðlalist Eitt verka Arcangel,
„Subway, @Heart-Denmark“, 2014.
Jóel Pálsson saxófónleikari býður
gítarleikurunum Guðmundi Péturs-
syni og Hilmari Jenssyni í það sem
þeir kalla „tónlistarlegan trekant“ í
Mengi í kvöld. Hefja þeir leik
klukkan 21. Efnisskráin verður
handahófskennd en þeir segja gesti
mega búast við „klóri, strokum,
ýlfri og stunum frá félögunum þar
sem togast á frjáls leikur og meitl-
aðar fyrirskipanir“.
Þríhyrningur spila-
manna í Mengi
Blásarinn Jóel Pálsson býður tveimur
gítarleikurum upp í hljóðfæraleik.
Benedikta Br. Alexandersdóttir
benedikta@mbl.is
Daybreak, nýr geisladiskur saxó-
fónleikarans Sigurðar Flosasonar
og danska Hammond-orgelleik-
arans Kjeld Lauritsen var nýlega
kynntur á útgáfutónleikum í Kaup-
mannahöfn en hann var hljóðrit-
aður þar í borg í september síðast-
liðnum. Auk þeirra félaga leika á
plötunni þeir Jacob Fischer á gítar
og Kristian Leth á trommur. Þá
héldu Sigurður og Lauritzen einn-
ig útgáfutónleika á Kex Hosteli.
Diskurinn fylgir í kjölfar disks-
ins Nightfall, sem kom út árið
2013 og hlaut góðar viðtökur bæði
hér á landi og í Danmörku. Út-
nefndi vefritið Jazznyt í Danmörku
hann til að mynda sem einn af tíu
bestu djassdiskum sem komu út í
Danmörku það ár.
Að sögn Sigurðar er diskurinn
rökrænt framhald af fyrra sam-
starfi hans við Lauritzen en þeir
hafa nú unnið saman undanfarin
þrjú til fjögur ár. „Við gerðum
Nightfall fyrir tveimur árum og
hann gerði það gott, fékk góða
dóma og seldist líka ansi vel ef
miðað er við almenna diskasölu í
heiminum. Okkur og útgefend-
unum fannst því kjörið að gera
meira og er nýi diskurinn því eins
konar framhald af þeim fyrri,“
segir Sigurður.
Alþjóðlega djassútgáfufyrirtækið
Storyville, sem hefur aðsetur í
Kaupmannahöfn, gefur út plötuna
og hefur samstarfið gengið vel að
sögn Sigurðar en Storyville gaf
einnig út plötu með Kaup-
mannahafnarkvartetti Sigurðar,
The Eleventh Hour.
Afslappaðir tónar
Innblástur nýju plötunnar, Day-
break, er sóttur í þá tónlist sem
djasstónlistarmenn kunna að spila
eftir tónleika, þegar áhorfendur
eru farnir. „Þetta er áframhald af
fyrri disknum en gerist enn síðar
um nóttina. Þetta er tónlist sem
maður getur ímyndað sér að tón-
listamenn spili þegar áhorfend-
urnir eru farnir heim og þeir spila
fyrir sjálfan sig. Þar er enginn að
sýna sig eða í samkeppni við aðra.
Tónlistin er því nokkuð afslöppuð
og hefur mildara yfirbragð en
margir aðrir djassdiskar,“ segir
Sigurður.
Unnið er með hina margreyndu
og traustur „amerísku söngbók“ á
disknum. Að sögn Sigurðar er
ótæmandi efni að finna í sjóði
klassískra bandarískra lagahöf-
unda og alltaf hægt að finna nýja
fleti á lögunum. „Þarna er gríð-
arlegur fjöldi laga sem hefur orðið
til á undanförnum áratugum svo
það er endalaust hægt að kafa of-
an í hana. Mörg þessara laga koma
úr söngleikjum og kvikmyndum,
en einhver eru gömul dægurlög,“
segir hann.
Viðtökurnar góðar
Sigurður segir ómögulegt að
segja til um hvort seinni platan nái
sömu vinsældum og sú fyrri. Þó
hafi þeir félagar fengið góðar við-
tökur við nýju lögunum á tónleik-
unum á Kex Hosteli á dögunum og
þar á undan í Danmörku. „Fólk
hefur sýnt okkur og plötunni
áhuga svo það er góð vísbending
um að við séum að gera eitthvað
rétt. Við erum að minnsta kosti
ánægðir með plötuna,“ segir Sig-
urður.
Sigurður er með mörg járn í
eldinum þessa dagana, eins og
endranær, en hann starfar sem
kennari við Listaháskóla Íslands
auk þess sem hann sinnir ýmsum
verkefnum á sviði tónlistar. Und-
anfarin ár hefur hann starfað mik-
ið í Danmörku með tónlistarfólki
þaðan, líkt og Lauritzen og djass-
söngkonunni Cathrine Legardh.
Tónarnir eftir
að áhorfendur
fara heim
Ný plata Sigurðar Flosasonar og
Kjeld Lauritsen, Daybreak, komin út
Fyrri platan hlaut lof gagnrýnenda
Morgunblaðið/Golli
Djassspuni Félagarnir Sigurður og Lauritzen á útgáfutónleikum sínum í Kex Hosteli, studdir Andrési Þór Gunn-
laugssyni á gítar og Einari Scheving á trommur. Á plötunni leika þeir klassísk lög úr „amerísku söngbókinni“.