Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.2. 2015
Á skemmtilegri ljósmyndasýningu í Þjóð-minjasafninu þessa dagana má sjá myndirKristins Guðmundssonar sem hann tók í
miðbæ Reykjavíkur á árunum 1975-1985. Flest
húsanna þekkja Reykvíkingar á mínum aldri og
eldri af eigin raun þar sem þau hýstu verslanir eða
þjónustu en sum eru af íbúðarhúsum. Myndefnið
er skemmtilega afmarkað við einstök hús, ekki
fólk, bíla eða umhverfið í kring. Myndir frá gam-
alli tíð vekja gjarnan góðar minningar. Mér þætti
hins vegar með ólíkindum ef þessar myndir vektu
söknuð eða eftirsjá einhverra eftir gamla tím-
anum. Nánast öll verslunarhúsin eiga það sam-
merkt að hafa verið byggð af litlum efnum, ljót og
þess utan í algerri niðurníðslu. Þau fáu reisulegu
íbúðarhús sem myndirnar sýna voru klædd báru-
járni sem hékk saman af gömlum vana. Ég man
vel hversu ömurlegt var að ganga í gegnum ryð-
mengað Grótaþorpið á 8. og 9. áratugnum. Mér
þykir með ólíkindum hversu lengi hið niðurnídda
ástand „var látið viðgangast“. Bæði borgaryfir-
völd og eigendur hinna niðurníddu húsa sýndu
ótrúlegt langlundargeð í garð ömurleikans.
Er frjálshyggjumönnum eins og mér vandi á
höndum þegar kemur að skipulagsmálum í íbúða-
byggð? Getum við fett fingur út í það hvernig ein-
stakir fasteignaeigendur ráðstafa fasteignum sín-
um, hvernig þeir hagnýta eignir sínar eða hvernig
þeir kjósa að láta húsin sín líta út? Löggjöf heim-
ilar vissulega afskipti stjórnvalda af eignarrétti
fasteignaeigenda í tilteknum tilvikum en er rétt að
játa stjórnvöldum slíkan rétt? Mér finnst blasa við
að svara þessu játandi þegar um er að ræða hag-
nýtingu eignar sem snertir með beinum hætti rétt
annarra, til dæmis nágranna. Þannig tel ég frá-
leita þá þróun sem orðið hefur í vesturborginni
með því að gömlum íbúðarhúsum í gróinni íbúða-
byggð er breytt í gisitiheimili með sérlegu sam-
þykki borgaryfirvalda og þrátt fyrir málefnaleg
og rökstudd mótmæli nágranna. Ég tel líka þá
skyldu fylgja eignarrétti að fasteign að eigninni sé
haldið þannig til haga að aðrir hafi ekki ama af.
Hús í niðurníðslu hefur ótvírætt áhrif á verðmæti
aðliggjandi eigna, ef ekki beint fjárhagstjón þá
hefur það í öllu falli í för með sér miska. Eignar-
rétturinn friðhelgi kemur ekki í veg fyrir afskipti
annarra í þessum tilvikum.
En svo er það ósmekklega fólkið. Er með ein-
hverjum hætti hægt að koma böndum yfir það og
stöðva fráleitar útlitsbreytingar á húsum? Vernd
og friðun húsa verðskuldar sérstaka umfjöllun af
hálfu frjálshyggjumannsins, í næsta pistli.
Frelsi fasteignaeigandans
* Umburðarlyndi í garðniðurníðslu og ljótleikaer oft meira en ég tel eðlilegt.
Þar er ekki bara við skipu-
lagsyfirvöld að sakast.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigga@sigridurandersen.is
Stefán Pálsson, sagnfræðingur
og spurningahöfundur Útsvars
með meiru, vakti athygli á lestr-
arbókum yngstu kynslóðarinnar
og skrifaði á Fa-
cebook í vikunni:
„Kæru höfundar
léttlestrarbóka:
Gæti verið að
börn lærðu hrað-
ar að lesa ef persónurnar hétu
ekki allar Bíbí, Gógó, Sísí og
Dodo? Og er nauðsynlegt að
segja frá Sólu sem sér sóla? –
Þetta er Stebbi-stóð-á-ströndu
fyrir börn.“
Félagar hans á samskiptamiðl-
inum hentu sér út
í umræðurnar og
Þorvaldur
Sverrisson,
stefnumót-
unarstjóri hjá aug-
lýsingastofunni Jónsson & Le-
’macks, skrifaði: „Ég gafst upp á
Sísí af því ég skildi ekki af hverju
hún sagði so-so-so. Veit ennþá
ekkert hvað stúlkan var að fara.“
Það virðist vera að fjölga í hópi
notenda á Twitter og Lára
Björg Björnsdóttir, almanna-
tengill hjá KOM,
skrifaði sína fyrstu
færslu þar í upp-
hafi árs en sú nýj-
asta hljómar á
þessa leið: „Mér
finnst algjörlega nöts að skrifa
„Gott að heyra“ á fb-síðu lögg-
unnar þegar einhver týndur finnst
heill á húfi. #hvað #enekkihvað
#aha.“
Þórunn Elísabet Bogadóttir,
aðstoðarritstjóri Kjarnans, gladd-
ist yfir aukinni þátttöku kvenna í
spurningakeppni framhaldsskól-
anna í vikunni og skrifaði á Twit-
ter: „Mikið er gaman að sjá kepp-
endur af báðum
kynjum í #gettu-
betur. Og viti
menn, þrátt fyrir
þetta koma enn
rétt svör við
spurningum!“
Einhverra hluta vegna auglýsti
Jón Axel Ólafsson, útgefandi hjá
Eddu, eftir skyrframleiðanda á
Twitter í vikunni og skrifaði: Ég er
að leita að skyrframleiðanda sem
getur framleitt fyrir mig ca. 4 til
5.000 tonn á ári fyrir Skandinavíu-
markað. Vitiði um einhvern
gó …“ endaði hann færsluna sína
á. Tobba Marinósdóttir nýtur
lífsins í fríi á Balí þessa dagana
með eiginmanni sínum Karli Sig-
urðssyni og dóttur en lenti í mið-
ur skemmtilegri lífsreynslu í vik-
unni en á Facebook sagði hún frá
atvikum: „Við lentum í ránstilraun
áðan! Þjófurinn ætlaði að gera sér
innkaupapokann okkar að góðu
en þrátt fyrir að
vera snöggur og
fingralangur dugði
það ekki til. Að-
vífandi kom búð-
ardama með kúst
sem sló til þjófsins sem var kom-
inn á skrið með varninginn. Kalli
gargaði og ég reyndi að rífa í pok-
ann og sparka til hans. Hvað ap-
inn ætlaði að gera við bleiur, bjór
og moskítókerti veit ég ekki!“
AF NETINU
Vettvangur