Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Page 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Page 12
Þegar Fjölsmiðjan á Ak-ureyri var stofnuð 2007var um að ræða þriggja ára tilraunaverkefni. Að þeim tíma liðnum var ákveðið að halda áfram vegna þess hve vel tókst til. „Ungmennin geta fengið vinnu hér þangað til þau ákveða hvað þau vilja gera; fara aftur í skóla eða fá aðra vinnu,“ segir Erling- ur Kristjánsson, sem hefur veitt Fjölsmiðjunni forstöðu frá upp- hafi. Hann er nú með rúmlega 30 ungmenni í vinnu en auk Er- lings eru þrír fullorðnir fastráðn- ir. Starfsemin skiptist í fernt: „Það er nytjamarkaðurinn og umsýsla í kringum hann; við sækjum og sendum húsgögn, seljum þau og ýmsa aðra muni; í öðru lagi er það eldhús og mötuneyti þar sem við borðum morgun- og hádegismat og ýmsir sem vinna hér í nágrenninu koma líka og borða í hádeginu. Við erum líka með bílaþvottastöð þar sem við þvoum fyrir ein- staklinga og fyrirtæki og loks erum við með raftækjaverkstæði, þar sem aðalverkefnið nú er að skrúfa í sundur til endurvinnslu allar tölvur sem verða ónýtar á Akureyri,“ segir Erlingur. Að auki sinna starfsmenn Fjöl- smiðjunnar ýmsum smærri verk- efnum: brjóta saman pappakassa fyrir lítið fyrirtæki, pakka inn blöðum og tímaritum og sinna snjómokstri fyrir gamalt fólk. „Ég fer oft sjálfur með ef krakkarnir þekkja ekki aðstæður – og er eiginlega búinn að fá al- veg nóg af snjómokstri í vetur!“ segir Erlingur og hlær. Helsta markmið Fjölsmiðjunnar er að ungmennin læri að vinna. „Hér er engin meðferð í gangi en hægt að fá viðtal við mig eða fulltrúa Vinnumálastofnunar, sem er hjá okkur, en annars snýst málið um að ungmennin mæti í vinnu en hangi ekki heima hjá sér á bótum og geri ekki neitt.“ Fjölsmiðjan var fyrstu árin til hús við Óseyri en flutti um mitt ár í fyrra að Furuvöllum 13. „Þetta er miklu stærra, bjartara og fallegra húsnæði. Staðsetn- ingin er líka betri og aðgengið.“ Vinnumálastofnun og Akureyr- arbær greiða árlegan rekstr- arstyrk og laun ungmennanna og einnig leggur ráðuneyti mennta- mála fram styrk til rekstrarins. „Ég þarf að útvega afganginn, um 30% af rekstrarfénu,“ segir Erlingur. Matsala hefur smám saman orðið umfangsmeiri hluti starf- seminnar. „Matsalurinn var minni AKUREYRI Fjölbreytni í Fjölsmiðju FJÖLSMIÐJAN Á AKUREYRI FLUTTI Í NÝTT OG STÆRRA HÚSNÆÐI Á SÍÐASTA ÁRI. ÞETTA ER VINNUSTAÐUR FYRIR UNGT FÓLK Á ALDRINUM 16 TIL 24 ÁRA SEM ER ATVINNULAUST EÐA HEFUR EKKI VERIÐ Í SKÓLA. Menn taka hraustlega til matar síns í hádeginu, ekki síst á fimmtudögum, þegar einhver „sparimatur“ er á boðstólum. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Erlingur Kristjánsson hefur veitt Fjölsmiðjunni forstöðu frá upphafi. Starfsmenn Fjölsmiðjunnar bera fram kræsingar í hádeginu á fimmtudaginn. 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.2. 2015 *Ætli ég hafi ekki heimsótt Geysissvæðið tíu, tutt-ugu sinnum á síðasta ári – og borgaði aldrei.Ögmundur Jónasson á Alþingi sl. mánudagLandið og miðinSKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is UM ALLT LAND VESTMANNAEYJAR Áhöfnin á Gullbergi VE færði fi vikunni, að sögn Eyjafrétta á safnið en segja má að h ólanum Kirkju HÖRGÁRSVEIT Snorri Finnlaugsson, fjármálastjóri Steypustöðvarinnar ehf. í Reykjavík, hefur veri ráðinn sveitarstjóri í Hörgársveit í stað Guðmundar Sigvaldasonar sem sagði star lausu í desember. Snorri er fæddur 1960, giftur Sigríði Birgisdóttur og eru þau bús í Hveragerði. Snorri hefur störf í vor. Hann hefur lengi unnið að sveitarstjórnarmá var m.a. bæjarritari á Dalvík 1982–1986, bæjarfulltrúi á Álftanesi 1998–2005, sat e sveitarstjórn í Árborg og var forseti bæjarstjórnar og bæjarráðsmaður á Álftan 010 til ágúst 2012, þegar sveitarfélagið sameinaðist Garðabæ.2 UR og nemendur (FAS) æfa nú söngleikinn ir Stefán Sturlu em jafnframt er leikstjóri. b ð á lö frumflutningur á verkinu, v Leikarar eru um tuttugu, auki koma nemendur að ö Tónlistin í leikritinu verðu STRANDABYGGÐ ð allri tir eru a niður rtið, sem er so glegt, a ekki nennt því, sem er enn sorglegra, rétt á heimasíðu Strandabyggðar! „Vinduri auðar og snjórinn kemur og fer til skiptis m tilheyrandi svellbunkum og ófærð. Það er dimmt og kalt. Þorrablótið er búið og langt er í góu.Visa nkingar jólanna eru komnir, Lífshlaupið er byr hu froskahopp í skelfilegri feb lt í lagi, það styttist í Hörmu agd ar kóróna allan viðbjóðinn h r... Á Hörmungardögum verð ðið upp á leikhús, málþing, kökur, heimalærd hryllingsmyndir, pub-quiz, mat og fyrirlestur svo eitt sé nefnt SKAGAFJÖRÐUR Vinnumálastofnun hefur sagt upp húsnæði sínu á Faxatorgi 1 á Sauðárkróki og óskar eftir því að sveitarfélagið láti stofnuninni í té aðstöðu án t eta farið mikill hluti af þjónustu sto nu. Byggðarráð Skagaf sk stofnunarinnar en furðar sig þó á því að ríkis úsnæði og leggi á sama tíma fram slíka ósk.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.