Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Page 14
Þ
að er létt yfir frum-
herjum rokksins þegar
þeir mæta einn af öðr-
um til fundar við
Sunnudagsblað Morg-
unblaðsins í Salnum þetta eftirmið-
degi. Við veljum okkur borð í for-
salnum og það er sannarlega borð
við hæfi. „Við Steini giftum okkur
hérna í Salnum að Soka Gakkai
International-búddískum sið 20.10
2010 klukkan 20:10 og skrifuðum
einmitt undir pappírana við þetta
borð, ásamt leiðtoga SGI á Íslandi,
Eygló Jónsdóttur, og vottum,“ upp-
lýsir Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir og
eiginmaður hennar, Þorsteinn Egg-
ertsson, kinkar kolli. Bæði eru þau
í hópi frumherjanna sem syngja
munu úr sér lungun í Salnum á
sunnudaginn eftir viku.
„Þetta var fínn dagur. Óp-
erusöngvararnir Davíð Ólafsson og
Stefán Helgi Stefánsson voru með
konsert á eftir, þar sem þeir sungu
eingöngu texta eftir mig. Þeir tóku
ekki krónu fyrir og þar sem við
seldum inn fórum við heim með
fullt af peningum. Það eru ekki all-
ir sem gera það eftir brúðkaup,“
bætir Þorsteinn við. Sposkur á
svip.
Garðar Guðmundsson og Bertha
Biering eru líka mætt og nú bætist
Einar Júlíusson í hópinn. Beint frá
Keflavík. „Helvíti líturðu vel út!“
segir Þorsteinn. „Já, að utan. Þú
ættir að sjá mig að innan,“ svarar
Einar að bragði.
Dátt er hlegið.
Var ennþá í
sandkassanum
Frumherjar rokksins eiga það sam-
eiginlegt, svo sem nafnið gefur til
kynna, að hafa sungið sína fyrstu
tóna opinberlega á ofanverðum
sjötta áratugi síðustu aldar. Þegar
gullöldin stóð sem hæst. „Þá var ég
reyndar ennþá í sandkassanum,“
flýtir Bertha sér að segja. En hún
byrjaði kornung, skömmu síðar.
Sumir í hópnum drógu sig í hlé
eftir það, aðrir ekki. Eins og geng-
ur. Það var svo fyrir rúmum þrjá-
tíu árum að hópurinn ákvað að
sameina krafta sína í sýningu á
skemmtistaðnum Broadway og hef-
Einar Júlíusson, Jóhanna Fjóla
Ólafsdóttir, Garðar Guðmunds-
son, Bertha Biering og Þorsteinn
Eggertsson bregða á leik í Salnum.
Verðum að þessu fram
á grafarbakkann
ÞRETTÁN FRUMHERJAR ROKKSINS Á ÍSLANDI MUNU SYNGJA Á TÓNLEIKUM Í SALNUM Í KÓPAVOGI SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 15. FEBRÚAR KL. 20. HÓPURINN HEFUR KOMIÐ
REGLULEGA SAMAN SÍÐUSTU ÁR OG EKKERT LÁT ER Á EFTIRSPURNINNI. SVO HAFA ÞAU BARA SVO OFBOÐSLEGA GAMAN AF ÞESSU SJÁLF.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.2. 2015
Rokk og ról
Söngvarar í Salnum verða: Anna Vilhjálms,Bertha Biering, Einar Júlíusson, JóhannaFjóla Ólafsdóttir, Garðar Guðmundsson,Helena Eyjólfsdóttir, Mjöll Hólm, Rúnar
Guðjónsson, Sigurður Johnnie, Stefán Jónsson
(Stebbi í Lúdó), Þorsteinn Eggertsson, Þorvaldur
Halldórsson og Þór Nielsen.
Stuðhljómsveitin PARTÝ leikur undir. Hana skipa
Ásgeir Óskarsson (trommur), Haraldur Þor-
steinsson (bassi), Vignir Þór Stefánsson (hljómborð)
og Vilhjálmur Guðjónsson (önnur hljóðfæri). Kynnir
kvöldsins er Ómar Ragnarsson.
Ýmsir fleiri söngvarar hafa tekið þátt í starfi hóps-
ins gegnum tíðina. Má þar nefna Harald G. Haralds,
Guðberg Auðunsson, Skafta Ólafsson, Sigurdór Sig-
urdórsson, Ragnar Bjarnason og Þorgeir Ástvalds-
son.
Nokkrir söngvarar, sem sungið hafa með hópn-
um, eru nú fallnir frá. Það eru Berti Möller, Óðinn
Valdimarsson, Astrid Jensdóttir og Jón Stefánsson.
FJÖLBREYTTUR HÓPUR
Kynnir kvöldsins, Ómar Ragnarsson, mun að líkindum
ekki halda aftur af sér, enda með rokkið í blóðinu.
Helena Eyjólfsdóttir kemur að norðan og heiðrar gesti
með nærveru sinni. Þau Einar Júlíusson eru systrabörn.