Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Qupperneq 17
ÖSKUDAGURINN NÁLGAST ÓÐFLUGA
Grímubúningar fyrir
þau yngstu
ÖSKUDAGUR ER ÁN EFA EINN SKEMMTILEGASTI DAGUR ÁRSINS. ÞEGAR ÖSKUDAGUR ER
ANNARS VEGAR ER STÓRA OG EINA SPURNINGIN SÚ, Í HVAÐA GERVI Á AÐ BREGÐA SÉR
Í ÁR? ÞAÐ GETUR VERIÐ SKEMMTILEGT AÐ GERA MEIRA ÚR DEGINUM SJÁLFUM MEÐ ÞVÍ
AÐ GEFA SÉR TÍMA TIL AÐ FÖNDRA EIGIN BÚNING. HÉR KOMA NOKKRAR TILLÖGUR AÐ
BÚNINGI.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Kalli í Up!
Þessi bræðir öll hjörtu.
Skemmtilegt gervi gamla fýlupúkans
Kalla í teiknimyndinni Up! frá framleið-
endum Disney og Pixar. Auðvelt að útbúa
með litríkum blöðrum og svipuðum fata-
stíl. Gleraugunum svipar einnig til 3D gler-
augnanna sem fást í kvikmyndahúsum og
eru eflaust til á mörgum heimilum. Aðeins
þarf að þrýsta glerinu út og þá eru
gleraugun komin. „Göngugrindina“
er hægt að setja saman úr rörum
eða gömlu kústskafti.
Hákarl
Eiga ekki allir gráa joggingpeysu?
Því það þarf einstaklega lítið til að
umturna peysunni í svalan hákarl.
Stíft hvítt efni sem fæst í föndurbúðum er það
eina sem þarf til og smá bútur af gráu slíku efni.
Tennur eru klipptar út og saumaðar á hettuna og
hvítt stykki saumað framan á peysuna. Ugginn á
hákarlinum er klipptur út úr gráa efninu og
saumaður á bakið á peysunni. Augað á
hákarlinum má teikna á með tússpenna
eða klippa úr svörtu efni og sauma á.
Að sjálfsögðu er betra að vera í
gráum joggingbuxum við.
Snigill
Kuðungurinn er búinn til úr
brúnum pappír, hann krumpaður
saman og rúllað upp í kuðung. Pappír
bætt við þar til stærðin er komin og gott
er að líma pappírinn með límbandi á
meðan kuðungurinn er byggður.
Að lokum er límbyssa notuð til að
festa pappírinn saman. Festið
síðan kuðunginn við bút úr
pappakassa og festið
bönd þar á.
Lítill ungi
Gulu uppþvottahanskana
má nota í fleira en að vaska upp
óhreint leirtau. Litlir fætur komast
auðveldlega ofan í hanskana og
smellpassa sem litlir ungafætur. Á
hvíta lambhúshettu er fest
útklippt rautt efni og ef það helst
ekki uppi er snjallt að fylla upp
með klósettpappír eða
bómull.
Legókubbur
Þessi glæsilegi legókubbur
er límdur saman úr pappakassa.
Tapparnir geta verið úr hverju sem
er, t.d. gömlum klósettrúllum. Hafið
neðsta hluta kubbsins opinn og
notið matardisk til að mæla út
fyrir haus og hendur. Málið í
uppáhaldslitnum.
Ugla
Hér er á ferðinni sæt ugla.
Auðvelt er að sauma búkinn
sem eru litlir bútar klipptir út úr
sama munstri. Annaðhvort er hægt
að kaupa nokkra efnabúta af mismun-
andi lit og klippa til eða þá að
nota gamla boli af heimilinu sem
ekki eru í notkun. Grímuna
má búa til úr hörðum
pappír.
8.2. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Hvar og hvenær? Kex Hostel, Skúlagötu 28. Sunnudag. Fyrri tími kl. 13
og seinni kl. 13.30. Nánar: Heimilislegir sunnudagar halda áfram á Kexinu
en nú um helgina mun Álfrún Helga Örnólfsdóttir, jógakennari og stór-
leikkona, stýra jóga fyrir alla fjölskylduna. Ókeypis inn og allir velkomnir.
Krakkajóga á Kexinu* Hlutirnir sem gera mig öðruvísi eruhlutirnir sem einkenna mig, Grísling.
Gríslingur úr Bangsímon.
Tækninni hefur farið gríðarlega hratt fram undanfarin ár. Börn og unglingar
eru flest á kafi í nýjustu tækni, á internetinu og í smáforritum sem sum hver
geta verið þeim skaðleg á einn hátt eða annan. Mikilvægt er að fræða börnin
um æskilega notkun á smáforritum.
Snapchat er ljósmynda og myndbandsforrit þar sem hægt er að
senda skilaboð til valdra aðila sem aðeins endast í nokkrar sek-
úndur og hverfa svo. Hugsunin á bak við forritið er í raun sú að
hægt er að senda hvers kyns myndir og jafnvel djarfar eða neyð-
arlegar án þess þó að móttakandi geti geymt þær. Það er hins
vegar ekki raunin því að móttakandi getur tekið skjáskot af sendingunni og geymt.
Tinder er nokkurskonar stefnumótaforrit. Það virkar þannig að
notandi stillir aldursbil og kynhneigð og forritið leitar upp alla
þá einstaklinga sem uppfylla skilyrðin í nánasta umhverfi. Ef
notanda líkar við ákveðinn aðila sem líkar einnig við viðkomandi
þá opnast samskiptagluggi. Ótal manns nota forritið og er það
ekki ætlað börnum og unglingum af augljósum ástæðum.
Vine er myndbandsforrit þar sem notandi tekur upp sex sek-
úndna myndbönd. Smáforritið er vinsælt meðal unglinga og
dæmi eru um að unglingar hafi náð heimsfrægð fyrir mynd-
bönd sín. Hver man ekki eftir unga manninum sem heimsótti
Smáralind hér um árið? Þá varð uppi fótur og fit og margir
slösuðust við það að reyna að berja unga manninn augum. Unglingar leggja
ýmislegt á sig til að fá viðurkenningu og ná vinsældum. Í fyrra tóku ungmenni
upp á því að kveikja í sér til þess eins að taka það upp á myndband fyrir Vine.
FORELDRAR FRÆÐI BÖRN SÍN UM SNJALLSÍMANOTKUN
Þrjú skaðleg smáforrit
Ármúla 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn.is | www.gahusgogn.is
GÁ húsgögn ehf. er traust fyrirtæki sem hefur verið á
íslenskum markaði um árabil. Við leggjum áherslu á
stílhrein, vönduð húsgögn og góða þjónustu.
Við tökum málin þín
í okkar hendur
Sérsmíðum fyrir heimili og fyrirtæki