Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Side 30
ALLIR VITA AÐ HOLLUR OG GÓÐUR MORGUNMATUR ER GÓÐ
BYRJUN Á GÓÐUM DEGI OG Í RAUN MIKILVÆGASTA MÁLTÍÐ
DAGSINS. ÞESSI FYRSTA MÁLTÍÐ DAGSINS ÞARF EKKI AÐ VERA FLÓKIN
OG ER HAFRAGRAUTUR ÞVÍ ÁLITLEGUR KOSTUR. ÞAÐ ER ÞÓ
ÓTRÚLEGT HVAÐ LITLIR HLUTIR GETA GERT MIKIÐ FYRIR ÞENNAN
EINFALDA RÉTT SEM ER ALLS EKKI TÍMAFREKT AÐ ÚTBÚA.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Hafragrautur
á þrjá vegu
MIKILVÆGASTA MÁLTÍÐ DAGSINS
1½ dl haframjöl
1 dl vatn
½ dl mjólk
1⁄4 msk kanill
1 gráfíkja, skorin í litla bita
½ banani, stappaður
1⁄4 epli, saxað
1 msk hörfræ
kókosmjöl
bláber
hindber
banani
rúsínur
Haframjöli, vatni og mjólk blandað í pott. Kanil og fíkju bætt
við ásamt hálfum stöppuðum banana og söxuðum eplabitum.
Suðan látin koma upp og grautnum síðan hellt í skál. Hörfræjum
stráð yfir, kókosmjöli, rúsínum, berjum og niðurskornum ban-
ana.
Lúxusgrautur með ávöxtum
Getty Images/iStockphoto
Matur
og drykkir
Frábær viðbót í allan mat
*Hörfræ teljast til súperfæðu og eru einstaklega góð fyrirkroppinn. Þrátt fyrir smæð sína er talið að hörfræ getifyrirbyggt eða unnið á krabbameini og öðrum sjúkdóm-um. Hörfræ innihalda omega 3 fitusýrur, trefjar og ýmisvítamín og steinefni. Sagt er að best sé að mylja fræin áð-ur en þeirra er neytt og snjallt að henda þeim í blandara,eða saxa þau ef blandari er ekki til á heimilinu. Svo mega
fræin fara beint á skyrið, hafragrautinn, í smoothie, út á
salatið, í safann; möguleikarnir eru endalausir.
Bragðgóð
bananabomba
1 ½ dl haframjöl
1 dl vatn
½ dl mjólk
1 msk. chia-fræ
salt
1 banani stappaður
rúsínur, ljósar og dökkar
Haframjöl, vatn og mjólk sett í pott. Chia-
fræjum og salti bætt við og suðan látin koma
upp. Þá er stöppuðum banana bætt við og
hrært í. Grautnum hellt í skál og ljósum og
dökkum rúsínum skellt út á. Þessi er klass-
ískur og einstaklega ljúfur.
1½ dl haframjöl
1½ dl vatn
1 msk chia-fræ
½ msk kanill
½ epli skorið í teninga
ljósar rúsínur
1 msk kakónibbur
1-2 msk sykurlaust granóla-múslí
1 msk hörfræ
salt
Haframjöl og vatn soðið saman og smávegis
salti sáldrað yfir. Chia-fræjum bætt út í og suðan
látin koma upp. Kanil bætt við og hrært. Hafra-
grautnum hellt í skál og eplum, rúsínum, kakón-
ibbum og múslíi hellt yfir ásamt hörfræjum. Gott
er að saxa hörfræin áður en þeim er stráð yfir.
Minnir á dýrindis
eplaköku