Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Síða 32
Hrein fæða áfram
Berglind Guðmundsdóttir, best
þekkt sem manneskjan á bak við
hið geysivinsæla matarblogg
Gulur, rauður, grænn og salt,
segir að hrein fæða sé áfram
efst á baugi í matargerðinni.
„Maður finnur að fólk er
mikið að spá í hvernig það geti gert fæðu-
val sitt hreinna, með hráefnið óunnið
og eins nálægt upprunanum og hægt er
og þetta er bara að aukast núna og veruleg
umræða og áhugi á þessu að manni finnst um
þessar mundir.“ Á það bæði við um kjöt, fisk, græn-
meti og allt sem til fellur á matseðilinn.
Hamborgarinn sívinsæli á að fá upplyftingu á árinu.
Enginn ætlast til þess að hamborgarabrauðið sé lagt
til hliðar þrátt fyrir LKL-æðið á síðasta ári en nú á
að prófa eitthvað nýtt á milli og útbúa til dæmis
humarhamborgara.
Þetta segja alvitringarnir á BBC, matarhlutanum,
og leggja til að gott sjávarfang sé notað ásamt fallegu
salati til að útbúa hamborgara á föstudagskvöldi.
Einnig eigi að taka hefðbundnar samlokur skrefi
lengra, nota ýmsar gúrmesósur og meðlæti sem til-
heyrir allajafna kannski fínni réttum á veitingastöð-
um. Þá megi auðvitað stinga kjúklingabringum og al-
vöru nautakjöti í brauðið. En árið 2015 er sem sagt
ár tilraunamennskunnar í hamborgarafræðunum.
Tilraunir með hamborgarann
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.2. 2015
Matur og drykkir
E
ins og á við um allt annað sem tengist okkar
daglegu neysluvenjum fara hlutir í tísku og eru
svo lagðir til hliðar um stund. Þetta á að sjálf-
sögðu líka við um matreiðslu, hráefnið, veitinga-
staðina og allt er viðkemur mat. Mikið hefur verið
skrifað undanfarnar vikur um hvað er áberandi um
þessar mundir í „matartískunni“ eða er að detta inn á
vinsældalistann. Að sjálfsögðu er þetta einfaldlega til-
finning hverju sinni en gefur þó einhverja mynd. Hér til
hliðar má sjá nokkur atriði sem matarskríbentar þekktra
blaða og tímarita hafa skrifað undanfarið um það sem
þau kalla „matartrendin“ og auk þess er íslenskt inn-
legg inn í þá umræðu.
Auk þess sem nefnt er hér til hliðar má nefna að as-
ískir réttir af öllum gerðum verða áfram mjög vinsælir
á veitingastöðum vestanhafs, við verðum óspör á sterkt
og afgerandi krydd, baunum er komið fyrir í alls kyns
réttum sem við hefðum ekki áður notað þær í, við fáum
okkur hádegismat um kvöld, það er að segja – lúx-
usútgáfa af flottum eggja-, beikon- og pylsuhádegisverði
er snædd að kvöldi til og Pinterest segir að samkvæmt
þeirra myndum sé tekíla greinilega „hið nýja“ vodka.
MATARSPEKINGAR UM ALLAN HEIM
Matur sem
er móðins
ASÍSKUR MATUR ER Á BLÚSSANDI SIGLINGU,
GRÆNMETIÐ SKAL SÚRSAÐ, SÚPAN GERÐ FRÁ
GRUNNI OG BLÓMKÁL Á ALLA DISKA, SEGJA
SPEKINGAR UM TÍSKUMATINN ÞESSA DAGANA.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Ostrur koma víða við sögu í
matartískuumfjöllun þessar vik-
urnar. Í fjölmiðlum allt frá Banda-
ríkjunum til Indlands en þá er það
einkum umfjöllun um hvað er efst
á baugi á veitingahúsunum.
Ostrur eru mörgum Íslend-
ingum framandi matur og margir
hafa kannski frekar bragðað þær
erlendis en hérlendis. Þær fást þó
stundum innfluttar í betri fisk-
búðum og eru sannkallaður hátíð-
armatur.
Ágætis uppskriftir má finna á ís-
lenskum uppskriftasíðum en þá er
heldur ekki úr vegi ef fólk hyggur á
borgarferðir á árinu að gera vel
við sig og panta sér ostrumáltíð.
Lostætið ostrur
Breska tímaritið Entrepreneur segist svo sem ekki hafa neitt á
móti ólífuolíu en það sé kominn tími til að líta í aðrar olíubornar
áttir. Nú sé lag að skella avókadóolíu, graskersolíu og kókosolíu í
matinn, eða allar aðrar olíur gerðar úr grænmeti, hnetum og
fræjum.
Það þurfi heldur ekki að vera hræddur við að nota olíuna því
rannsóknir síðustu ár hafi gert fólki ljóst að þær innihalda holla
fitu sem gerir líkamanum ekkert nema gott. Það er því um að
gera að gefa sér smá tíma í matvörubúðinni í næstu ferð og tolla
í tískunni með því að grípa eitthvað annað en ólífuolíu með sér.
Hvílum ólífuolíuna
Kókospálmasykur
Breska blaðið The Telegraph er öflugt í
matarskrifum og oft sannspátt um hvað
verður vinsælast í matargerð. Blaðamenn þar
á bæ segja að meðan allt hafi snúist um kók-
osvatn á árinu 2014 sé það kókospálmasykur
núna og það sé hreinlega frábært því næring-
arefnaríkur sé hann. Bæði fullur af járni og
sinki.
Gott er að nota kókospálmasykur í bakst-
ur og blanda saman við heilkorna mjöl og
fleiri góð hráefni.