Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.2. 2015
Tíska
Morgunblaðið/Sigurborg
Baum und Pferdgarten
Rikke Baumgarten og Helle Hestehave, yfirhönn-
uðir Baum und Pferdgarten, hafa undanfarin ár náð
að byggja upp vel mótað fyrirtæki sem nú er með
þeim stærstu í tískunni í Danmörku.
Baum und Pferdgarten sýndi öðruvísi línu að þessu
sinni sem einblíndi mun meira á textíl en munstur,
sem hafa verið áberandi hjá tískuhúsinu undanfarin
ár. Mikið var um lagskiptan fatnað og áhersla á
gallaefni og rúskinn.
Þá mátti strax sjá nokkrar ómissandi flíkur í fata-
skápinn næsta vetur svo sem græna rúskinnskjól-
inn og þykku dimmbláu kápuna.
TÍSKAN Í KAUPMANNAHÖFN
Glæst og gleðileg
tískuvika
TÍSKUVIKUNNI Í KAUPMANNAHÖFN LAUK Í SÍÐUSTU VIKU EN ÞAR SÝNDU STÆRSTU
HÖNNUÐIR DANMERKUR LÍNUR SÍNAR FYRIR NÆSTA VETUR. ÞAÐ ER ALLTAF UPPLIFUN
AÐ TAKA ÞÁTT Í TÍSKUVIKUNNI OG FYLGJAST MEÐ ÞESSU STÓRA, VEL SKIPULAGÐA
BATTERÍI SEM TÍSKUVIKAN Í KAUPMANNAHÖFN ER ORÐIN, STÆKKA OG VERÐA ENN
BETRI. TÍSKUVIKURNAR EINKENNAST ÁVALLT AF MIKLUM GLAMÚR OG GLÆSILEIKA,
SÝNINGUM KOKTEILBOÐUM, GÓÐUM MAT OG FRÁBÆRRI STEMNINGU.
BLAÐAMAÐUR SUNNUDAGSBLAÐSINS VAR Á STAÐNUM
OG SÝNIR HÉR BROT AF ÞVÍ BESTA AF SÝNINGUNUM.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Designers Remix
Charlotte Eskildsen hjá Designers Remix er
alltaf með puttann á púlsinum. Í ár sýndi hún
rokkaða línu með 70’s-ívafi. Rík áhersla á
vandaðan og á sama tíma óhefðbundinn textíl
gaf vetrarlínunni fullkominn heildarsvip. Lit-
irnir voru í heildina fremur mildir með áber-
andi tónum inn á milli eins og bláa litinn sem
vakti gríðarlega lukku. Klæðileg hátíska er
hugtak sem lýsir línunni og jafnvel tískuhúsinu
líka enda vel þróað og faglegt fyrirtæki.
Ganni
Ganni er orðið eitt eftir-
sóknarverðasta merkið í
skandinavískri tísku.
Ganni var kosið merki
ársins af dönsku útgáfu
tískutímaritsins Elle með
sinn ofursvala karakter og
óhefðbundnu strauma.
Línan í ár var rokkuð og
aflöppuð í senn sem gerði
hana bæði klæðilega og
flotta fyrir hverja konu
með sjóðandi heitu ívafi.