Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Side 50

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Side 50
H ún hefur ferðast mikið um landið og hefur brennandi áhuga á íslenskri náttúru og umgengni við hana. Þess vegna lá beint við að Magnea Magnúsdóttir ritaði sig inn í land- græðslufræði í Landbúnaðarháskóla Ís- lands. Nám sem hún lauk með meistara- gráðu árið 2013. Landgræðslufræði er tiltölulega ný fræðigrein í heiminum þrátt fyrir að Ís- lendingar hafi stundað landgræðslu með góðum árangri um áraraðir m.a. til að hefta jarðvegseyðingu og græða upp beit- arhaga og búi yfir mikilli þekkingu á þessu sviði. Menntaðir landgræðslufræð- ingar hér á landi eru teljandi á fingrum annarrar handar, að sögn Magneu. Hún spáir því þó að þeim muni fjölga jafnt og þétt á næstu árum enda verkefnin ærin og áhuginn greinilega að aukast. Landgræðslufræði snúast um aðferðir við að endurheimta fyrri landgæði, það er að segja gróður sem horfið hefur vegna rasks af einhverjum sökum, svo sem vegna fram- kvæmda. Á heiðum er það til dæmis mosi, lyng, birkikjarr eða hvaða gróður sem var þar fyrir. „Aðferðirnar sem notaðar eru nýtast líka vel í þéttbýlinu, vilji menn lág- marka umhirðu á svæðum. Vera þá með gróður sem ekki þarf að sinna mikið, svo sem mosa sem ekki þarf að klippa,“ segir Magnea. Skógfræðingur hafði umsjón með land- græðslumálum hjá Orkuveitu Reykjavíkur áður en Magnea kom til starfa fyrir þrem- ur árum. „Hún var að gera mjög góða hluti en þegar hún réði sig í aðra vinnu var hringt í mig. Ég var þá að vinna að mastersverkefninu mínu uppi á Hellisheiði, í kringum virkjunina, og Orkuveitan vissi af mér. Aðstoðaði mig raunar og styrkti verkefnið. Segja má að ég hafi verið grip- in á heiðinni.“ Hún hlær. Bæði áhugi og vilji Magnea segir Orkuveituna lengi hafa haft mikinn áhuga á landgræðslu; það er að laga til eftir sig, og segir fleiri fyrirtæki geta tekið hana sér til fyrirmyndar. „Hér er ekki bara áhugi, heldur líka vilji til að gera vel í þessum efnum og það var al- gjör draumur fyrir mig að fá starf þar sem menntun mín nýtist svona vel. Hér er ég með stóran leikvöll til að þróa mínar aðferðir. Það er þörf fyrir fólk með þessa menntun og þekkingu enda er Ísland mjög raskað land. Bæði eftir beitarálag, fram- kvæmdir og ferðamenn. Það er mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að gera okkur grein fyrir því að við eigum ekki endalausa villta náttúru. Við þurfum að passa upp á hana.“ Eftir að Orka náttúrunnar, ON, var sett á laggirnar í fyrra færðist Magnea þangað og ber nú starfstitilinn landgræðslustjóri ON. Hún segir þetta rökrétt enda rík áhersla á umhverfismál hjá ON. „Áhuginn á landgræðslu er samt mjög almennur inn- an samstæðunnar. Veituhluti Orkuveitunnar er til dæmis í allskonar verkefnum sem tengjast landgræðslu og ég hef verið að ráðleggja þeim. Landgræðsla tengist að sjálfsögðu vatnsbúskap mjög náið enda allra hagur að hann sé sem heilbrigð- astur.“ Mikið á vettvangi Auk landgræðslu er Magnea með umhverf- is og öryggismál virkjana ON á sinni könnu. Hún er mikið á vettvangi að gera tilraunir og fylgjast með framgangi mála. Hún er bæði með starfsaðstöðu í höf- uðstöðvum ON á Bæjarhálsi og í Hellis- heiðarvirkjun. Á sumrin bætist henni góð- ur liðsauki sumarstarfsmanna sem sinna ýmsum verkefnum undir handleiðslu Magn- eu. Áhuginn er víðar en á Bæjarhálsinum. Magnea hélt fyrirlestur um árangurinn af sínu starfi á vorfundi Samorku í fyrra og fékk mikil viðbrögð. Var spurð spjörunum úr. „Fólk sýndi þessu ósvikinn áhuga sem er mjög ánægjulegt.“ Spurð um brýn verkefni segir hún að breyta þurfi nálguninni við uppgræðslu og frágang gróðurs vegna framkvæmda. Grasfræ hafi langmest verið notuð til þessa. „Aðallega hafa verið notaðar fræ- blöndur erlendra grasfræja sem dreift hef- ur verið. Það þýðir aðnáttúrulegur gróður svæðanna er ekki alltaf endurheimtur. Möguleikarnir eru mun fleiri og þekkingin stöðugt að aukast. Dæmi um aðferðir til að endurheimta náttúrlegan gróður eru fræslægja, mosadreifing og flutningur á gróðurtorfum. Þegar byrjað er á fram- kvæmdum er allur gróðurinn til staðar, þetta er bara spurning um að halda upp á hann. Taka hann til hliðar og geyma svo hægt sé að setja hann aftur yfir þegar framkvæmdum er lokið. Orka náttúrunnar hefur verið dugleg við þetta og á allskyns gróður og undirlag á lager. Eins og hraun og mosa.“ Mikilvægt að búa sér í haginn Þess má til gamans geta að á síðasta ári greiddi Orka náttúrunnar björgunarsveitum fyrir að tína mosa ofan af svæði sem fara átti undir framkvæmdir og koma honum fyrir í frystigámi, þar sem um tvö hundr- uð fermetrar af mosa bíða átekta til vors- ins. Munu þá koma í góðar þarfir. „Það er mikilvægt að búa sér í haginn. Afganginn, sem ekki komst í gáminn, lögðum við í gjallhól sem útbúinn var á einu af bor- plönum okkar. Vonandi verður kominn þar fallegur hraunhóll eftir nokkur ár,“ segir Magnea. Stærsta verkefnið sem hún vinnur að um þessar mundir tengist framkvæmdum við svonefnda Hverahlíðarlögn. „Orka nátt- urunnar er að leggja lögn frá holum í Hverahlíð, sem boraðar voru fyrir nokkr- um árum, og er ætlunin að nýta gufuna í Hellisheiðarvirkjun. Þetta verkefni er í miðjum klíðum og ég sé um bæði um- hverfis- og öryggismálin enda leggjum við árherslu á að lágmarka sýnileika lagn- arinnar og ganga vel frá umhverfi.“ Eitt af hlutverkum hennar er að taka alla verktaka, sem koma að jarðvinnu á svæðinu, í umhverfisfræðslu. Kenna þeim að taka upp gróðurinn og þar fram eftir götunum. „Það er nýtt verklag hjá Orku náttúrunnar og Orkuveitunni og við setjum það sem skilyrði að allur gróður sé tekinn upp og hann nýttur í frágang. Verktakar hafa tekið þessu mjög vel og sýnt málinu áhuga. Sumir hafa meira að segja gert eitthvað svipað við sumarbústaðina sína. Öll reynsla nýtist í þessum verkefnum.“ Kunna á gröfurnar sínar Árstíminn skiptir vitaskuld máli í þessum efnum og Magnea viðurkennir að erfiðara sé að varðveita gróður sem fjarlægður er um miðjan vetur eins og í sumum tilfellum í Hverahlíðarverkefninu. „Það segir sig sjálft að auðveldara er að gera þetta að sumri en menn gera samt sem áður sitt besta. Þeir eru ótrúlega seigir þessi verk- takar. Kunna á gröfurnar sínar.“ Mesta furða er, að sögn Magneu, hversu vel hefur gengið að ná mosanum upp í frostinu og snjónum. Meðfram framkvæmdum vinnur Magnea að rannsóknum og gerir tilraunir. Lengi má nefnilega gott bæta. „Það er skilningur fyrir því að við þurfum að fikra okkur áfram með þessi fræði og þróa aðferðir. Þess vegna gef ég mér tíma til að sinna rannsóknum.“ Gripin á heiðinni ORKA NÁTTÚRUNNAR, DÓTTURFYRIRTÆKI ORKUVEITU REYKJAVÍKUR, LEGGUR METNAÐ Í AÐ ENDURHEIMTA GRÓÐUR Á FRAMKVÆMDASVÆÐUM MEÐ GÓÐUM ÁRANGRI, SVO SEM SJÁ MÁ Á LJÓSMYNDUM HÉR Á OPN- UNNI. VERKEFNINU ER STÝRT AF MAGNEU MAGNÚSDÓTTUR, EINUM AF SÁRAFÁUM LANDGRÆÐSLUFRÆÐ- INGUM Á ÍSLANDI. UM ER AÐ RÆÐA NÝJA FRÆÐIGREIN SEM NÝTUR VAXANDI HYLLI Í HEIMINUM. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Raskað svæði við Hellisheiðarvirkjun sumarið 2012. Sama svæði sumarið 2014 tveimur árum eftir að fræslægju af Hellisheiði var dreift yfir. Landgræðsla 50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.2. 2015

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.