Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Qupperneq 54
M
argir sem hafa heyrt að við
séum að sýna verk eftir 85
málara hafa átt bágt með
að trúa því,“ segir Hafþór
Yngvason, forstöðumaður
Listasafns Reykjavíkur, brosandi þegar hann
er spurður út í tvískipta sýninguna sem er
kölluð Nýmálað. Fyrri hluti hennar var opn-
aður í tveimur sölum Hafnarhússins á safna-
nótt í gærkvöldi, föstudagskvöld, með verk-
um 27 listamanna. Seinni hlutinn, Nýmálað
II, verður síðan opnaður í báðum sölum
Kjarvalsstaða 28. mars næstkomandi, með
verkum 58 listamanna. Hafþór er sjálfur sýn-
ingastjóri ásamt Kristjáni Steingrími Jóns-
syni, myndlistarmanni og deildarforseta
myndlistardeildar Listaháskóla Íslands.
Hafþór bætir við að allt séu þetta áhuga-
verðir listamenn sem þeir geti staðið með.
„En vissulega er þessi fjöldi fréttnæmur,“
segir hann. „Margir eiga eftir að koma á
sýningarnar með það í huga að þetta hljóti
að vera einhver vitleysa. Skoðanir um valið
og verkin eiga að vera skiptar og það er
áhugavert.“
Sýningarstjórarnir hafa bent á að undan-
farin ár hafi verið mikil gróska í málaralist
víða um heim og hafi nýjar áherslur og fjöl-
breytnin í málverki samtímans vakið eft-
irtekt. Ísland sé engin undantekning þar á
enda hafi listamenn á öllum aldri, sem að-
hyllast ólíkar liststefnur og hugmyndafræði,
valið málverkið sem sinn helsta listmiðil.
Þessi tvískipta sýning á að veita yfirsýn yfir
þennan margbreytileika málverksins en svo
víðtæk úttekt á íslensku samtímamálverki
hefur ekki verið gerð áður.
Öll frá síðustu tveimur árum
„Þessi tala, 85 listamenn, byggist í raun á því
hvað við getum komið verkum margra lista-
manna fyrir á sýningunum,“ segir Hafþór
um framkvæmdina þegar hann gengur með
blaðamanni um sali Hafnarhússins.
„Það var ekki endalaust hægt að bæta
fólki við en við héldum alltaf áfram að finna
fólk sem gat verið með.
Undirliggjandi er spurningin hvenær mál-
verk sé málverk, því það teygist í ýmsar átt-
ir og tengist öðrum miðlum í listum. Við
ákváðum hins vegar að skoða málverkið frek-
ar þröngt, ekki fara út í að skoða mörk þess.
Ég er orðinn þreyttur á þeim frasa sem oft
má sjá í sýningarskrám og veggtextum, að
listaverk „reyni á þolrif miðilsins“. Það er
orðið ansi þreytt enda er sú barátta orðin
fimmtug,“ segir hann og brosir. „Þessi sýn-
ing snýst um það hvað listamenn eru að gera
með málningu á flöt.“
– Þrátt fyrir síendurteknar spár um dauða
málverksins er fólk að mála myndir, og um
land allt, eins og hér má sjá.
„Það er alveg rétt. Einhverjir kunna að
telja að hér séu einungis örfáir sérvitringar
að mála og sumir þeirra vel þekktir, menn
eins og Helgi Þorgils sem almenningur veit
af. Hugmyndin að sýningunni kviknaði hins
vegar við það að ég sá sýningu á verkum ís-
lensks listamanns sem ég þekkti ekki en
gerði fjári góð verk. Ég fór að spyrjast fyrir
um hann og fékk góðar upplýsingar en velti
um leið fyrir mér að ég var að sjá hér og
hvar góð málverk eftir listamenn sem sýna
ekki mikið og fór að taka þessi nöfn saman.
Fljótlega var ég kominn með langan lista og
fékk þá Kristján Steingrím í lið með mér,
hann hefur góða yfirsýn yfir myndlistar-
senuna og veit ótrúlega vel hvað fólk í þess-
um geira er að fást við.“
– Þið hafið valið að sýna verk fólks af öll-
um kynslóðum sem tekst á við ólíka stíla.
„Já, og öll verkin eru frá síðustu tveimur
árum þannig að listamaðurinn verður að vera
virkur í núinu. Flestir eiga hér eitt til þrjú
verk, sem eiga að sýna hvað þau eru að fást
við. Hér í Hafnarhúsinu er síðan 55 ára ald-
ursmunur milli elsta og yngsta listamanns-
ins.“
Hafþór bætir við að skiptingin milli hinna
tveggja hluta sýningarinnar hafi ráðist af
einkennum salanna sem sýnt er í. Salirnir í
Hafnarhúsinu séu grófari, með ómáluðum
gólfum og súlum en salir Kjarvalsstaða séu
hannaðir fyrir málverk. „Hingað inn völdum
við því verk sem eru flest frekar expressjón-
ísk í efnismeðferð. Í A-salnum eru flest verk-
in fígúratíf á einhvern hátt, þótt í þorra mál-
verka nú sé blandað saman fígúratífu og
abstrakti. Í F-salnum eru hins vegar mest-
megnis geómetrísk abstraktverk sjö lista-
manna. Arnar Herbertsson er þeirra elstur.“
Á síðustu áratugum hefur umræðan um
þennan miðil, málverkið, oft verið nokkuð
sérkennileg, og fræðimenn sem hafa viljað
vinna sér rými hafa gjarnan haft það á horn-
um sér, hafa meðal annars sagt það gam-
aldags og borgaralegt.
Bregðast við samtíð sinni
„Ég hef lesið mikið um málverkið upp á síð-
kastið, til dæmis skemmtilega bók með við-
tölum við þýska listamanninn Gerhard Richt-
er. Hann er af kynslóð Pers Kirkebys og
fleiri, sem voru að mála af kappi á 7. ára-
tugnum þegar mörgum fannst málverkið
ekki vera að bregðast við samtímanum og
væri of ópólitískur miðill á þessum pólitísku
tímum. Einn spyrillinn innir Richter eftir því
hvað hann hafi gert. „Ég hélt áfram að
mála,“ svaraði hann einfaldlega. Þannig hef-
ur það einfaldlega verið, fólk hefur haldið
áfram að mála. Þessi umræða hefur annars
oft verið talsvert á eftir hér á landi. Hér var
deilt um abstraktmálverkið á 5. og 6. áratug-
um og það hneykslaði þegar sumir fóru aftur
að mála fígúratíft á 6. og 7. áratugnum –
þetta var löngu á eftir sömu hræringum í
löndunum í kringum okkur. En það má líka
alveg spyrja hvað sé nútímalegt við aðra
miðla. Hér í safninu er nú sýning á verkum
eftir Cory Artangel, listamann sem vinnur
mikið með tölvuleiki og nær mjög vel til
ungra listamanna. Þar eru meðal annars
skjáverk sem hann talar um sem málverk.
Við höfum vissulega mikinn áhuga á hans list
hér í safninu en engu að síður er augljóst að
fullt af fólki heldur áfram að mála. Ég tel að
þegar fólk sér sýninguna greini það mörg
merki þess hvernig þessir listamenn bregð-
ast við samtíð sinni.
„Skoðanir um valið og verkin
eiga að vera skiptar og það er
áhugavert,“ segir Hafþór.
Fyrir aftan hann er verið að
setja upp verk eftir Ómar
Stefánsson og Úlfar Karlsson.
Morgunblaðið/Einar Falur
SÝNING Á FYRRI HLUTA YFIRGRIPSMIKILLAR ÚTTEKTAR Á SAMTÍMAMÁLVERKINU OPNUÐ Í HAFNARHÚSINU
Koma 85 málurum fyrir
„VISSULEGA ER ÞESSI FJÖLDI FRÉTTNÆMUR,“ SEGIR HAFÞÓR YNGVASON, FORSTÖÐUMAÐUR LISTASAFNS REYKJAVÍKUR OG ANNAR SÝNINGARSTJÓRA
VIÐAMIKILLAR YFIRLITSSÝNINGAR Á SAMTÍMAMÁLVERKINU SEM KALLAST NÝMÁLAÐ. HAFÞÓR LÆTUR AF STÖRFUM Í HAUST, EFTIR TÍU ÁR Í SAFNINU.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.2. 2015
Menning