Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Page 56
56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.2. 2015
Írsku listamennirnir Joe Scullion og Sinéad
Onóra Kennedy opna á laugardag klukkan 15
sýninguna Samansafn / Assemble í kompunni
í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Þau útskrifuðust
frá National College of Art and Design í Du-
blin á Írlandi árið 2013 og hafa dvalið í List-
húsinu á Ólafsfirði undanfarna mánuði og
unnið að list sinni.
Scullion og Kennedy vinna alla jafna mál-
verk og skúlptúra en hafa tileinkað teikning-
unni tímann í Listhúsinu.
Þessi sýning þeirra sýnir Alþýðuhúsið sem
kraftmikinn stað til samkomu fólks alls stað-
ar að. Teikningarnar virðast við fyrstu sýn
gefa til kynna stíft, vélrænt ferli, en þegar bet-
ur er að gáð kemur í ljós hvað þær eru frjáls-
ar.
ALÞÝÐUHÚSIÐ Á SIGLUFIRÐI
SAMANSAFN
Frá Siglufirði. Forvitnilegar sýningar hafa verið
settar upp í Alþýðuhúsinu á síðustu árum.
Básúnuleikarinn Carlos Caro Aguilera nam á
Spáni en kennir nú á hljóðfæri sitt í Kópavogi.
Carlos Caro básúnuleikari kemur fram á ein-
leikstónleikum í Kaldalóni í Hörpu á morgun,
sunnudag, klukkan 16, í tónleikaröðinni Tón-
snillingar morgundagsins. Ástríður Alda Sig-
urðardóttir leikur með á píanó.
Á efnisskránni eru verk eftir Sulek, Saint-
Saëns, Guilmant, Hindemith og Reiche.
Carlos Caro Aguilera er fæddur árið 1988
í Almería á Spáni. Hann flutti til Íslands í júlí
2013 og starfar sem básúnukennari hjá
Skólahljómsveit Kópavogs. Hann lauk B.Mus-
gráðu 2010 frá Tónlistarháskólanum í Murcia
á Spáni og meistaragráðu vorið 2013 frá
Konunglega tónlistarháskólanum í Brussel.
TÓNLEIKAR Í KALDALÓNI
BÁSÚNULEIKUR
Sýning Thoru Karlsdottur,
„Skilyrði: Frost“, verður
opnuð í vestursal Lista-
safnsins á Akureyri í dag,
laugardag, klukkan 15.
Á sýningunni er snjór-
inn í aðalhlutverki. Hann
er óútreiknanlegur og
breytir landslaginu; skapar
nýja fleti, veitir birtu og
býr til skugga. Nýjar
myndir birtast á meðan þær gömlu leggjast í
dvala enda er freistandi fyrir listakonuna að
nýta snjóinn í listsköpun og þau ótal tækifæri
og möguleika sem hann skapar.
Thora Karlsdottir er útskrifuð frá Ecole
d‘Art Izabela B. Sandweiler í Lúxemborg og
Europäische Kunstakademie Trier í Þýska-
landi. Hún hefur haldið átta einkasýningar á
Íslandi og erlendis og tekið þátt í fjölmörgum
samsýningum víða um lönd.
Sýningin er í röð átta vikulangra sýninga.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI
FROST THORU
Thora
Karlsdottir
Í
þessum verkum má segja að ég skoði
fótbolta sem félagslega athöfn,“ segir
Rakel McMahon myndlistarkona um
sýningu sína, View of Motivation, sem
verður opnuð í Hverfisgalleríi, Hverf-
isgötu 4, klukkan 17 í dag, laugardag. Þetta
er fyrsta sýningin sem sett er upp í gall-
eríinu eftir að ÞOKA gallerí sameinaðist því
og nýir listamenn bættust hóp listamann-
anna sem voru þar fyrir.
Rakel hefur lokið námi í myndlist og list-
kennslufræðum við LHÍ og í hagnýtri jafn-
réttisfræði við HÍ. Hún sýnir nú röð mál-
verka á pappír þar sem myndefnið er
knattspyrnumenn sem ímynd karlmennsk-
unnar. Menn sem hika ekki við að sýna
sterkar tilfinningar á velli, þar sem sjá má
kossa, faðmlög, flengingar og öskur; knatt-
spyrnuvöllurinn er hrærigrautur tilfinninga.
Í málverkunum sýnir Rakel leikmennina
nakta og úr samhengi leiksins í heimilislegu
umhverfi, þar sem finna má fyrir kynferð-
islegum undirtóni.
Mjög áhugavert myndefni
„Ég fór á allar helstu fótboltasíðurnar á
netinu að skoða ljósmyndir af leikmönnum á
velli,“ segir Rakel og bætir við að hún hafi
sótt ráð hjá eiginmanni sínum, bróður, föður
og fósturföður, sem allir eru áhugamenn um
knattspyrnu, hvar hún ætti að skoða myndir
frá leikjum. „Margar myndir eru birtar frá
hverjum leik og þar má sjá sigurvegara og
þá sem tapa, mjög áhugavert myndefni sem
ég valdi úr og vann áfram með. Í þessum
myndum birtist allur tilfinningaskalinn;
RAKEL MCMAHON SÝNIR Í HVERFISGALLERÍI
Fótboltamenn velt-
ast um í stofunni
„Í ÞESSUM MYNDUM BIRTIST ALLUR TILFINNINGASKALINN,“ SEGIR RAKEL
MCMAHON UM MYNDIR AF FÓTBOLTAMÖNNUM SEM HÚN MÁLAR EFTIR.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
Menning
Tónlistarmaðurinn og tónskáldið ÓlafurArnalds og þýsk-japanski píanóleik-arinn Alice Sara Ott snúa bökum sam-
an á hljómplötunni The Chopin Project, eða
Chopin-verkefninu, sem kemur út 16. mars
nk. á vegum fyrirtækisins Mercury Classics
sem er í eigu Universal. Ott er þekktur pí-
anóleikari þótt ung sé að árum, fædd 1988
og stóð til að hún léki með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands árið 2008 í Japan. Hætt var við
þá tónleikaferð þegar efnahagshrunið skall á
og ekkert varð af tónleikunum.
Á plötunni eru valin verk eftir Chopin tek-
in óvenjulegum tökum, að sögn Ólafs. „Ég
fékk þessa hugmynd, að vinna með Chopin-
verk, þar sem ég er mikill aðdáandi hans.
Ég er búinn að heyra þessi verk hundrað
sinnum á hundrað mismunandi plötum í
sömu útgáfunni. Það eina sem er öðruvísi er
að manneskjan túlkar lagið með sínum hætti,
spilar það öðruvísi en það er alltaf sami
hljómurinn. Þessar plötur eru alltaf settar
upp eins og safnplötur, allar noktúrnur
Chopins eða allir valsarnir, þær eru aldrei
hugsaðar eins og nútímaplötur eru, eins og
verk sem byrjar á byrjun og endar á endi,“
segir Ólafur. Hann hafi því ákveðið að gera
slíka plötu sjálfur. „Þá framleiði ég plötuna
eins og maður gerir í dag með það í huga að
upptökutæknin sjálf eigi þátt í tónlistinni.
Það er allt í lagi að breyta píanóinu, allt í
lagi að spila þetta allt í einu á hljóðgervil,
búa til eitthvað öðruvísi. Inn á milli samdi ég
ný verk sem eru byggð á hans verkum, tók
mótíf og bjó til eitthvað nýtt úr þeim og
tengdi alla plötuna saman þannig að hún
varð heildstætt verk, frá byrjun til enda,“
segir Ólafur.
Bútasaumur
Spurður hvaða verk eftir Chopin séu tekin
fyrir segir Ólafur þau flest noktúrnur, næt-
ursöngva, nokkrar prelúdíur og eina sónötu.
„Ég tók m.a.s. bara búta, ekki heil verk, bút
sem ég fíla úr einu verki sem passar rosa-
lega vel á undan öðrum búti úr öðru verki,
þannig að hægt væri að búa til uppbyggingu
sem býr til dýnamíska plötu,“ segir Ólafur.
– Þú ert að ögra klassíska heiminum?
„Já, á vissan hátt. Ég setti mér ákveðin
mörk, t.d. að ég myndi aldrei breyta hans
verki. Ég get gert nýtt verk sem er byggt á
verki eftir hann en ég myndi aldrei taka pí-
anóverk eftir hann og breyta A í G,“ segir
Ólafur sposkur.
Ólafur segist hafa beðið útgáfufyrirtækið
að stinga upp á píanóleikurum á þess snær-
um og sér hafi litist best á Ott. „Hún var
mjög spennt fyrir þessu strax, hún hefur
gert Chopin-valsaplötu sem er svolítið fræg
og er mín uppáhaldsupptaka af Chopin.“
Platan var tekin upp að mestu í hljóðveri
Ólafs og strengjahljóðfæraleikur í Hörpu.
– Ég sá viðtal við ykkur Ott á YouTube og
í því skorar þú á hana að leysa Rubik-kubb
á meðan þú veltir fyrir þér spurningu. Hún
var 20 sekúndur að því!
„Ég hef séð hana gera það hraðar, meira
að segja. Hún hitar upp fingurna með Ru-
bik-kubbnum, hún getur leyst hann svo hratt
að hún notar hann til að hita sig upp áður en
hún spilar á tónleikum,“ segir Ólafur. Ott
horfi einu sinni á kubbinn og geti svo leyst
hann án þess að horfa á hann.
Nýtt, endurútsett og uppfært
Ólafur hlaut í fyrra bresku BAFTA-
verðlaunin fyrir tónlistina sem hann samdi
fyrir ensku sjónvarpsþættina Broadchurch.
Sýningar á annarri þáttaröð eru hafnar og
samdi Ólafur einnig tónlistina við hana. Tón-
listin er nú komin út á diski á vegum Merc-
ury Classics og í bæklingi hans segir höf-
undur þáttanna og einn aðstoðarfram-
leiðenda, Chris Chibnall, að það hafi verið
afar mikilvægt að fá Ólaf aftur til verksins.
Það hafi sem betur fer reynst Ólafi jafn mik-
ilvægt. „Ég hefði átt mjög erfitt með að sjá
þættina með tónlist eftir einhvern annan,
það hefði verið ótrúlega skrítið,“ segir Ólafur
kíminn.
– Þar sem þetta er framhald fyrri þátta
hlýtur þú að byggja ofan á tónlistina sem þú
samdir fyrir fyrri syrpuna?
„Jú, við gerum það til helminga. Í annarri
seríu er kominn nýr söguþráður en líka hald-
ið áfram með þann gamla þannig að í þeim
hluta seríunnar sem snýst um þann gamla
byggði ég ofan á það sem ég var með í fyrri
seríunni en er búinn að endurútsetja það og
uppfæra aðeins. Það er allt annar fílingur í
ÓLAFUR ARNALDS VINNUR AÐ ÝMISKONAR TÓNSMÍÐUM OG UPPTÖKUVERKEFNUM
Öðruvísi Chopin
ÓLAFUR ARNALDS OG ALICE SARA OTT TAKA VERK EFTIR CHOPIN ÓVENJULEGUM TÖKUM Á VÆNTANLEGRI
PLÖTU, THE CHOPIN PROJECT. „ÉG MYNDI ALDREI TAKA PÍANÓVERK EFTIR HANN OG BREYTA A Í G,“ SEGIR
ÓLAFUR UM CHOPIN. HANN HAFNAÐI TILBOÐI UM AÐ SEMJA TÓNLIST VIÐ PLAYSTATION-LEIK.
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is
Ólafur fæddist árið 1986 og hóf sóló-
feril sinn árið 2006. Ári síðar kom út
sólóplatan Eulogy for Evolution en
fram að því trommaði Ólafur í nokkr-
um harðkjarna- og málmsveitum. Ólaf-
ur lærði trommuleik í tónlistarskóla og
nam um tíma tónsmíðar við Listahá-
skóla Íslands, sama ár og fyrsta sólóplat-
an kom út. Hann segist hafa haft svo
mikið að gera þá að hann hafi ákveðið
að hætta námi að lokinni einni önn. Það
hefur sannarlega ekki komið að sök,
Ólafur hefur hlotið mikið lof fyrir plöt-
ur sínar og tónsmíðar og búinn að landa
sjálfum BAFTA-verðlaununum fyrir tón-
list sína við Broadchurch.
ÓLAFUR ARNALDS
Trommari og verð-
launatónskáld