Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Síða 57
menn fagna og gleðjast á allt að því öfga-
fullan hátt, með sterkri líkamstjáningu.“
Rakel segist ekki áhugasöm um knatt-
spyrnu sem slíka en samtöl hennar við
áhugamenn hafi verið afar áhugaverð.
„Mér finnst gaman að skoða hvernig fas
venjulegra dagfarsprúðra karlmanna breyt-
ist yfir leikjum, þeir æsast upp við að horfa,
öskra og bölva og taka tap nærri sér. Fót-
bolti er ákveðinn vettvangur samskipta og
ég skoðaði það í mínu nánasta umhverfi.“
Út frá ímyndum karlmennsku
Hún umbreytir þessum tilfinningum sem
birtast í fréttamyndum í fagurfræðilega
hluti, í málverk.
„Jú, ég skoða þetta út frá ímyndum karl-
mennskunnar, hvernig leikmennirnir eru
óhræddir við líkamlega snertingu og að
sýna væntumþykju, með mikilli leikrænni
tjáningu. Og þeir gera það fyrir framan tugi
þúsunda manna og vita að milljónir eru að
fylgjast með í sjónvarpi.
Ég tek ljósmyndirnar og breyti engu
hvað varðar stellingarnar en ég strípa þetta
allt til að skoða tilfinningar og afhjúpa þær;
ég fjarlægi allt sem tengir tilfinningarnar
við íþróttina, völlinn, boltann og áhorf-
endur.“
Rakel er að sýna í fyrsta skipti í Hverf-
isgalleríi og segir það mikinn heiður og
gaman að vinna með frábæru fólki sem þar
stjórnar. „Þá eru mjög góðir listamenn þar
fyrir sem ég lít upp til og gaman að fá að
vinna á sama vettvangi og þeir.“
„Menn fagna og gleðjast á allt
að því öfgafullan hátt, með
sterkri líkamstjáningu,“ segir
Rakel um fótboltamyndirnar
sem hún notar í málverk sín.
Morgunblaðið/Ómar
8.2. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Þeir sem eru á höfuðborg-
arsvæðinu um helgina ættu
að gera sér dagamun og
upplifa einhver þeirra áhuga-
verðu atriða eða sýningar sem settar
hafa verið upp í tengslum við hina
fjölbreytilegu Vetrarhátíð.
2
Á laugardag kl. 13 til 16
verður haldið í Þjóðar-
bókhlöðu málþing og sýning
um Hafstein Guðmunds-
son, hönnuð, bókagerðarmann,
prentsmiðjustjóra og bókaútgefanda.
Þá verður líka opnuð sýningin
„Prentsmiðjueintök“ með bókum frá
öllum prentsmiðjum frá um 1530.
4
Ömurleg brúðkaup var
opnunarmynd franskrar kvik-
myndahátíðar á dögunum og
líka sú vinsælasta. Hún var í
kjölfarið tekin í almennar sýningar í
Háskólabíói og hefur verið sýnd fyrir
fullu húsi – fáið ykkur miða …
5
Á sunnudag klukkan 14 mun
Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti, ganga
ásamt Hörpu Þórsdóttur
forstöðumanni um sýningu á fatnaði
úr forsetatíð sinni, sem er í Hönn-
unarsafni Íslands. Þá gefst einstakt
tækifæri til að heyra sögur um það
sem fram fór bak við tjöldin, til að
mynda um hefðir varðandi fataval.
3
Í Skotinu í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur í Grófarhúsinu
hefur verið opnuð sýning á
markverðu ljósmyndaverkefni
eftir Siggu Ellu, myndröðinni „Fyrst
og fremst er ég“. Hún samanstendur
af portrettmyndum af 21 einstaklingi
með Downs-heilkennið.
MÆLT MEÐ
1
þeirri seinni, hún er hraðari og ég gerði
meira spennandi útgáfur af lögunum en fyrir
nýju söguna samdi ég alveg nýja tónlist. Það
var rosalega mikilvægt að gera eitthvað nýtt
því eftir áttunda þátt í síðustu seríu var ég
orðinn leiður á aðalþemalaginu, ég verð að
viðurkenna það,“ segir Ólafur.
– Þetta er tilfinningaþrungin tónlist, líkt
og þættirnir. Raftónlist með strengjum, er
það rétt lýsing?
„Eða strengjatónlist með rafi,“ svarar
Ólafur að bragði.
Ólafur segist hafa fengið mun fleiri til-
boð um að semja tónlist við sjónvarpsþætti
og kvikmyndir eftir að hafa hlotið
BAFTA-verðlaunin. Tilboðin séu líka
stærri og áhugaverðari en áður. „Ég er í
raun og veru ekki búinn að ákveða neitt
hvað ég ætla að gera. Mig langar ekki að
gera bíó eða sjónvarp alveg strax aftur,
þetta er búin að vera svo mikil vinna,“ seg-
ir Ólafur. „Maður þarf frelsi til að gera
sínar eigin plötur á milli og mig langar að
gera það næst,“ segir hann. Hann hafi ver-
ið nærri því að taka að sér stærðarinnar
verkefni, tónlist fyrir PlayStation-tölvuleik
sem hefði tekið hann heilt ár að vinna.
„Degi fyrir undirskrift fríkaði ég út og
hætti við. Ég sá fyrir mér enn eitt árið sem
ég hefði ekki tíma til að anda, með umboðs-
manninn á bakinu að ýta á eftir plötu,“ segir
Ólafur og hlær. Verkefnin séu næg, að fylgja
eftir Chopin-verkefninu, sinna hljómsveitinni
Kiasmos sem hann skipar með Janusi Rasm-
ussen og vinna að næstu sólóplötu. Ólafur
segir umboðsmann sinn hafa rétt fyrir sér í
því að ekki megi líða of langur tími milli
platna. „Ég er að byrja að hugsa um næstu
plötu,“ segir Ólafur og hlær.
Ólafur Arnalds segist vera að ögra klassíska heiminum á vissan hátt, í samstarfinu við píanóleikarann Alice Söru Ott. Þau eru hér við upptökur.
Ljósmynd/Héðinn Eiríksson