Morgunblaðið - 07.03.2015, Síða 8

Morgunblaðið - 07.03.2015, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2015 Formaður Samfylkingarinnarsegir að hann „næri reglulega efa“ sinn um hvort aðild að ESB sé rétt fyrir Ísland. Og ekki nóg með það, hann „er stöðugt að reyna að endurvekja“ efann. Þessi mikla innri glíma hlýtur að taka á en sem betur fer fyrir for- manninn eru efa- semdirnar þó ekki meiri en svo að hann segir skoðun sína þá „í dag að það sé langflest sem mælir með því að aðild að ESB sé farsæl leið fyrir Ísland og stærsta ástæðan fyrir því er sú að Ísland væri skelfilegur staður án ávinningsins af Evrópusamrun- anum. Ísland hefur breyst á þann hátt að það er eiginlega óþekkj- anlegt, atvinnulíf hér og mannlíf frá 1990. Það er fyrst og fremst fyrir opnun landsins og EES- samninginn.“    Þetta er á ýmsan hátt sérstökröksemdafærsla. Formaðurinn telur Ísland hafa þróast mjög í rétta átt án þess að vera aðili að ESB en dregur þá ályktun að þess vegna sé þörf á aðild en ekki að hún sé óþörf.    Hitt er ekki síður sérstakt aðformaðurinn skuli álíta að Ís- land væri „skelfilegur staður“ ef EES-samningurinn hefði ekki kom- ið til. Hann telur að þá væri hér eins umhorfs og árið 1990 og væntanlega að þá hafi Ísland verið „skelfilegur staður“.    En hvernig var þróunin næstualdarfjórðunga á undan? Var allt eins árið 1965 og árið 1990 hér á landi? Eða eins árið 1940 og árið 1965?    Formaðurinn mætti að ósekjunæra efann ögn betur áður en hann tjáir sig næst um aðild Ís- lands að ESB. Árni Páll Árnason Skelfilegur staður? STAKSTEINAR Veður víða um heim 6.3., kl. 18.00 Reykjavík 2 skýjað Bolungarvík 3 skýjað Akureyri 3 skýjað Nuuk -17 léttskýjað Þórshöfn 8 skúrir Ósló 7 heiðskírt Kaupmannahöfn 7 súld Stokkhólmur 6 skýjað Helsinki 1 slydda Lúxemborg 8 heiðskírt Brussel 8 skýjað Dublin 10 skýjað Glasgow 8 upplýsingar bárust ekki London 12 heiðskírt París 11 heiðskírt Amsterdam 7 léttskýjað Hamborg 8 skýjað Berlín 7 heiðskírt Vín 6 léttskýjað Moskva 2 skýjað Algarve 18 heiðskírt Madríd 17 heiðskírt Barcelona 13 heiðskírt Mallorca 16 heiðskírt Róm 11 léttskýjað Aþena 17 skýjað Winnipeg -8 léttskýjað Montreal -12 heiðskírt New York -6 heiðskírt Chicago -8 léttskýjað Orlando 17 alskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 7. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:15 19:03 ÍSAFJÖRÐUR 8:24 19:05 SIGLUFJÖRÐUR 8:07 18:48 DJÚPIVOGUR 7:46 18:32 Ísfisktogarinn Ottó N. Þorláksson RE er kominn aftur á veiðar eftir að hafa verið frá veiðum í rúma þrjá mánuði vegna bilunar í aðalvél. Togarinn var að veiðum suðvestur af Reykjanesi en kom til hafnar í Reykjavík í gær- morgun. „Við fórum í prufutúr sl. föstudag eftir viðgerðina og allt gekk svo vel að skipið tók ís sl. laugardag og í framhaldinu fór það á veiðar. Aflabrögðin hafa verið góð, aðalvélin hefur gengið án vandræða og við erum mjög ánægðir með hvernig til tókst með viðgerðina,“ segir Gísli Jónmundsson, skipaeftirlitsmaður hjá HB Granda, í samtali við heimasíðu fyrirtækisins. Hann hafði yfirumsjón með viðgerðinni. Bilunin, sem varð í lok nóvembermánaðar sl., fólst í því að höfuðlega í aðalvél skipsins gaf sig. Einnig urðu skemmdir á sveifarási og öðrum vél- búnaði. Samið var við Stálsmiðjuna – Framtak um að sjá um viðgerðina og brugðið var á það ráð að fá notaða vél frá Hollandi. Úr henni var hægt að nýta vélarblokkina, sveifarásinn og botnrammann auk annarra hluta. Þetta er blokk frá árinu 2005 og annar vélbúnaður er frá 2002. Þetta eru því nánast nýir hlutir ef miðað er við aðalvélina úr Ottó sem er frá 1978 og búið var að keyra frá 1981, segir á heimasíðu HB Granda. Ottó N. Þorláksson RE Ottó til veiða eftir mikla viðgerð á aðalvél Ljósmynd/HB Grandi Háskerpurásir á myndlyklum, svo- kallaðar HD-rásir, eru í eigu síma- fyrirtækjanna. Viðræður RÚV og 365 við þau um að bæta fleiri HD- rásum við ganga hægt. Útsendingar frá íþróttaviðburðum í háskerpu eru af skornum skammti hér á landi. Reyndar er það svo að háskerpa hér er aðeins helmings- háskerpa, sent er út í 720 x 1280 punktum en venjuleg háskerpa er í 1920 x 1080 punktum og munar ansi miklu á gæðum í mynd og hljóði. Munurinn er jafnmikill og á DVD- disk og VHS-spólu, segja kunnugir. Fjórar sjónvarpsstöðvar hér á landi senda íþróttaefni út í háskerpu; RÚV HD, Stöð 2 Sport HD, Stöð 2 sport 2 HD og Golfstöðin. Innlent og erlent íþróttaefni er sýnt á þessum stöðvum. RÚV 2-rásin, sem hét áður RÚV íþróttir, sendir ekki út í háskerpu en búist er við að það verði komið í lag á næsta ári samkvæmt upplýsingum frá RÚV. Nafni stöðvarinnar var breytt í byrjun ársins. Óskar Hrafn Þorvaldsson, sjón- varpsstjóri Stöðvar 2 sports, segir að draumurinn sé að bjóða áskrifendum enska boltans upp á háskerpuútsend- ingu, alveg sama hvaða lið þeir styðja. „Eins og ég skil þetta, þá er 365 búið að setja einhvern þrýsting á símafélögin. Við þurfum að treysta á að símafélögin vinni með okkur í þessum málum, þeir stjórna umferð- inni um afruglarana, háskerpurás- irnar eru nefnilega rásir í þeirra eigu. Ráðum ekki hraðanum Það hefur lengi verið vilji okkar í sportinu að fjölga HD-rásum. Helst þannig að sportrásir okkar, þrjú, fjögur og fimm, séu líka sendar út í HD eins og golfstöðin, sem er HD- rás. Það gengur hins vegar hægt og því miður ráðum við ekki hraðanum. Í hinum fullkomna heimi myndum við bjóða áskrifendum okkar upp á HD-rásir en það er erfitt eins og staðan er í dag og það er leiðinlegt,“ segir Óskar. Málið er flókið tæknilega en kostar 365 líka mikla peninga. Þannig þurfti fyrirtækið að sýna leik Liverpool og Burnley í opinni dagskrá á miðviku- daginn til að koma Liverpool í há- skerpu. Á sama tíma var leikur New- castle og Manchester United á Stöð 2 sport 2 og var hann sýndur í há- skerpu. Brugðu Óskar og félagar á það ráð að bjóða upp á þennan möguleika. Stuðningsmenn annarra liða eru vanir því að sjá liðið sitt í svokölluðu SD, en það eru mun minni myndgæði og minnir einna helst á gamla góða enska boltann þar sem Bjarni Fel. var að lýsa. Hvorki Síminn né Vodafone svör- uðu fyrirspurn Morgunblaðsins. benedikt@mbl.is Háskerpan í eigu símafélaganna  Símafyrirtækin stjórna umferðinni um myndlyklana og eiga háskerpurásir  Draumur 365 er að bjóða öllum stuðningsmönnum að sjá liðin sín í HD AFP Mun skýrara Daniel Sturridge var sýndur í háskerpu á miðvikudag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.