Morgunblaðið - 07.03.2015, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2015
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég er búinn að verahundalabbari eða þaðsem á ensku heitir„Dog-walker“, hér í
Brooklyn í þrettán ár og kann því
afskaplega vel,“ segir Gunnar Sig-
urður Guðmundsson sem hefur bú-
ið í New York undanfarin tuttugu
ár.
„Ég ætlaði nú bara að vera hér
í eitt ár, en ílengdist aðeins,“ segir
hann og hlær, en hann kom þangað
upphaflega til að gæta barna, var
„Au-pair“-piltur.
„Ég var hjá íslenskri fjöl-
skyldu fyrsta árið mitt hér, hjá
henni Siggu í Blátt áfram og Dadda
diskó, passaði krakkana þeirra,
Benedikt og Erlu. Ég er þeim afar
þakklátur fyrir að hafa gefið mér
þetta tækifæri, ég var ósköp sein-
þroska strákur og þau voru mjög
góð við mig. Eftir það fór ég til
Kaliforníu og starfaði þar sem au-
pair í eitt ár, síðan aftur hjá Siggu í
hálft ár og að því loknu var ég hjá
bandarískri fjölskyldu í fimm ár.“
Þurfti að fá mitt frelsi
Gunnar var aðeins tuttugu og
tveggja ára þegar hann flutti í aðra
heimsálfu og segir ævintýraþrána
vissulega hafa togað í sig.
„Ég þurfti að komast eitthvað
í burtu frá Íslandi, ég hafði átt erf-
itt í skóla og ég er næstyngstur í
fimm systkina hópi, svo ég þurfti
að fá mitt frelsi. Ég þurfti að kom-
Viðrar 30 hunda
daglega í New York
Hann flutti frá Íslandi til New York aðeins 22 ára, af því hann vildi fara út fyrir
boxið og öryggið heima. Ekki stóð til að staldra lengi við en árin eru orðin tuttugu
og nú starfar Gunnar þar sem hundalabbari ásamt konu sinni. Þau sækja hunda
heim til fólks að morgni og sjá um þá yfir daginn, hreyfa þá og leika við þá. Gunn-
ar er mikill dýravinur og hann segir að Imba á Rauðsgili í Hálsahreppi, sem
hann var í sveit hjá sem strákur, hafi gefið honum gott veganesti út í lífið.
Vígalegur Gunnar með tveimur af vinum sínum sem hann passar á daginn.
Góðir vinir Hundunum semur ótrúlega vel og þeir kúra gjarnan saman.
Alltaf er eitthvað áhugavert um að
vera á öllum stöðvum Borgarbóka-
safnsins. Í dag verður haldin barna- og
unglingabókaráðstefna í Gerðubergi
þar sem fjallað verður um raunsæi í
barna- og unglingabókum undir yfir-
skriftinni Hvunndagshetjur á köldum
klaka.
Í barna- og unglingabókaútgáfu
undanfarin ár hefur fantasían verið
allsráðandi en nú verður breytinga
vart. Í erindum ráðstefnunnar verður
m.a. fjallað um endurnýjun raunsæis í
unglingabókum, hina geðþekku bræð-
ur Jón Odd og Jón Bjarna, sköpun
tengda bókum og fræðibækur fyrir
börn og ungmenni.
Fyrirlesarar eru Helga Birgisdóttir,
doktorsnemi í barnabókmenntum, rit-
höfundarnir Gunnar Helgason og Ill-
ugi Jökulsson og Kristín Ragna Gunn-
arsdóttir, bókmenntafræðingur og
teiknari.
Markmiðið með ráðstefnunni er að
stefna saman þeim aðilum sem bera
hag barna- og unglingabóka fyrir
brjósti, svo sem rithöfundum, fræði-
mönnum, kennurum, bókasafnsfólki,
foreldrum og öðrum áhugasömum.
Ráðstefnan er öllum opin og að-
gangur ókeypis.
Í Menningarhúsi bókasafnsins Gróf-
inni við Tryggvagötu verður á morgun,
sunnudag kl. 15-16, listasmiðja fyrir
börn á Barnadegi í Borgarbóksafninu.
Freyja Eilíf Logadóttir myndlistar-
maður ætlar að segja frá sýningunni
Litaðu og lærðu um íslenska nútíma-
list og leiðbeina börnum í endur-
vinnslu á íslenskri myndlist.
Litaðu og lærðu um íslenska nú-
tímalist er bókverk sem inniheldur 94
útlínuteikningar eftir verkum ís-
lenskra myndlistarmanna. Freyja Eilíf
Logadóttir teiknaði myndirnar, hann-
aði forsíðuna og gaf verkið út á út-
skriftarsýningu úr myndlistardeild
Listaháskóla Íslands í fyrravor. Sýn-
ingin og bókin fjalla á áhugaverðan
hátt um endurvinnslu myndlistar og
nálgun á listaverkum í gegnum hvers-
dagslega framsetningu á formi lita-
bókar sem bæði hentar börnum og
fullorðnum.
Vefsíðan www.borgarbokasafn.is
Hvunndagshetjur á köldum
klaka og listasmiðja fyrir börn
Helgarnar eru frábær tími fyrir fjöl-
skylduna til að gera eitthvað saman,
hvort sem það eru foreldrar og börn,
amma og afi og börn, nú eða systkini,
frænkur eða frændur. Í dag er kjörið
tækifæri, því þá verður haldinn hinn
árlegi örnámskeiðadagur nemenda-
og foreldrafélags Laugalækjarskóla,
sem gengur undir heitinu Öndin
2015. Dagskráin, sem verður kl. 13–
16, er fjölbreytt að vanda, má þar
nefna zumba, brjóstsykursgerð, fjár-
málafræði, skyndihjálp, eldað með
Ebbu og margt fleira.
Allir eru velkomnir og er fjöl-
skyldufólk úr hverfinu sérstaklega
hvatt til að mæta.
Þetta er fjölskyldudagur þar sem
nemendur og foreldrar geta, hvort
heldur sem er, miðlað þekkingu sinni
eða aukið við hana. Vakin er sérstök
athygli á danssmiðju fyrir litlu börn-
in, því allir finna eitthvað við sitt
hæfi. Námskeiðin eru að mestu leyti
ókeypis en sums staðar þarf að
greiða efniskostnað og því gott að
hafa með sér reiðufé.
Kaffihúsastemning verður á Önd-
inni 2015 því útskriftarnemar munu
sjá um sölu veitinga á meðan nem-
endur Laugó skemmta viðstöddum.
Síðustu ár hefur þetta verið ein-
staklega skemmtilegur dagur þar
sem nemendur og fjölskyldur þeirra
hafa notið dagsins saman.
Þetta er í þriðja sinn sem dagurinn
er haldinn og eru skólinn, nemendur
og foreldrar hæstánægðir með þenn-
an árvissa viðburð. Nánar um Öndina
2015 á heimasíðu skólans:
www.Laugalækjarskóli.is.
Kaffihúsastemning og nemendur skemmta gestum á Öndinni 2015
Morgunblaðið/Kristinn
Ebba Guðný Guðmundsdóttir Matgæðingur, heilsukokkur og mamma, hér
með börnum sínum í eldhúsinu en hún verður með örnámskeið í dag á Öndinni.
Zumba, brjóstsykursgerð, fjármálafræði, skyndi-
hjálp, eldað með Ebbu og ótalmargt fleira
LISSABON 16.-20. APRÍL
YNDISLEG SUÐRÆN BORG, HAGSTÆTT VERÐLAG, EIN
ÓDÝRASTA STÓRBORG EVRÓPU. ÍSLENSK FARARSTJÓRN.
Gisting í 4 nætur með morgunnmat.
NETVERÐ FRÁ 99.900 KR.
NÁNAR Á UU.IS
Innifalið er flug, gisting, flugvallarskattar, íslensk fararstjórn, 20 kg taska og handfarangur.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Gaman Börnin fá að lita og læra um íslenska nútímalist á morgun.