Morgunblaðið - 07.03.2015, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2015
✝ Kolbeinn Sig-urjónsson
fæddist í Hafn-
arfirði 17. júlí
1960. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 20. febr-
úar 2015.
Foreldrar hans
voru Sigurjón
Steinþór Júlíusson
skipstjóri, f. 9.10.
1929, d. 20.2.
1988, og Ásgerður M. Sveins-
dóttir saumakona, f. 23.3.
1928, d. 26.1. 2005. Systkini
Kolbeins eru: Einar, f. 30.6.
1953, Dóra, f. 1.10. 1956, d.
19.6. 2006, Hrefna, f. 14.1.
1959, og Halla, f. 1.2. 1963.
Samfeðra eru: Rósa, f. 25.2.
1973, og Júlíus, f. 26.10. 1976,
sem faðir hans átti með seinni
eiginkonu sinni, Arndísi Krist-
insdóttur, f. 4.11. 1932.
björnssonar í Garðabæ, en sjó-
mennskan varð hans ævistarf
sem hann stundaði í hartnær
40 ár. Hana hóf hann með föð-
ur sínum, en Sigurjón var
skipstjóri og útgerðarmaður í
Hafnarfirði og átti bátinn Sig-
urjón Arnlaugsson GK 16.
Kolbeinn flutti á Sauð-
árkrók 1979 þar sem hann
kynntist eiginkonu sinni sum-
arið 1980. Þau keyptu sína
fyrstu íbúð 5. maí 1981 á Víði-
grund 4. Þau giftu sig á sjó-
mannadaginn, 1. júní 1996, og
hafa þau búið í Birkihlíð 3 frá
september 1986.
Sjómennskuna stundaði
hann lengst af á togurum
gerðum út frá Sauðárkróki,
eða frá árinu 1981, en frá 1.
september árið 2007 var hann
á togaranum Brimnesi RE 27
hjá útgerðarfélaginu Brimi hf.
Hans líf og yndi var fjöl-
skyldan og samvera með henni
og var hann einstaklega dug-
legur að halda sambandi við
alla stórfjölskylduna.
Útför Kolbeins fer fram frá
Sauðárkrókskirkju í dag, 7.
mars 2015, kl. 14.
Eftirlifandi eig-
inkona Kolbeins er
Kristín L. Lúð-
víksdóttir, f. 3.9.
1962. Foreldrar
hennar voru Guð-
rún Jakobsdóttir,
f. 7.5. 1930, d.
21.1. 2003, og
Lúðvík Magn-
ússon, f. 19.8.
1925, d. 2.9. 2003.
Kolbeinn og
Kristín eignuðust þrjú börn,
elstur er Atli Freyr, f. 21.3.
1984. Þá Guðrún Ása, f. 30.1.
1989, sambýlismaður hennar
er Elvar Pálsson, f. 30.5. 1989,
og yngstur er Fannar Logi, f.
15.8. 1992.
Kolbeinn ólst upp í Garða-
bæ og sótti barna- og grunn-
skóla þar. Hann fór snemma
að vinna, meðal annars á véla-
verkstæði Sigurðar Svein-
Horfinn er á braut þú ynd-
islegi eiginmaður minn og besti
vinur og stórt skarð hefur verið
höggvið í litlu fjölskylduna okkar
við ótímabært fráfall þitt. Sökn-
uðurinn er mikill, en í sorginni er
dýrmætt að ylja sér við minn-
ingar og myndir af fjölskyldu
okkar og vinum.
Þú varst einstakur maður,
traustur, glaðlyndur, nákvæmur
og vandvirkur, bæði í orðum og
gjörðum. Umhyggja þín var aug-
ljós, og varst þú góðmennskan
uppmáluð og alltaf tilbúinn að
rétta hjálparhönd ef einhvern
vantaði aðstoð. Líf þitt og yndi
var fjölskyldan, samvera með
henni, og varst þú einstaklega
duglegur að halda sambandi við
alla stórfjölskylduna. Lagðir
mikið á þig að hóa henni saman
við hin og þessi tækifæri. Á
sumrin átti útilegulífið allan okk-
ar hug. Við áttum gjarnan fleiri
nætur að heiman en heima á
sumrin.
Minningarnar sem ég á um
þig mun ég geyma um ókomna
tíð. Við áttum svo ótalmargar
góðar stundir saman og er ég
óendanlega þakklát fyrir að hafa
fengið að njóta nærveru þinnar.
Ég kveð þig hér með litlu ljóði
sem á vel við þig, elsku Kobbi
minn.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Þín eiginkona,
Kristín.
Elsku pabbi. Ég trúi því að
þér líði vel þar sem þú ert núna;
hjá afa, ömmu og Dóru frænku.
Það er svo margt sem hefur farið
í gegnum huga mér síðustu vik-
ur. Þú, pabbi minn, ert farinn.
Ég vil þakka þér fyrir allt gam-
alt og gott. Ég vil þakka þér fyr-
ir að hafa verið mér góður faðir
og hugsað um mig öll þau ár sem
við áttum saman og hjálpað mér
við allt sem ég hef þurft á að
halda. Ég vil þakka þér fyrir að
hjálpa mér með húsið mitt og allt
sem þú gerðir fyrir mig þar. Vil
þakka þér fyrir öll ferðalögin
okkar saman. Ég man fyrstu
ferðalögin þegar ég var lítill
drengur og við vorum í tjaldi.
Svo keyptum við tjaldvagn, þá
fellihýsi og loks hjólhýsi sem við
áttum frábæra tíma saman í; ég,
þú, mamma og systkini mín.
Ég gleymi aldrei siglingunni
sem við fórum í saman. Þegar við
og mamma fórum til Þýskalands
með þér. Í þrjá daga fyrir sigl-
inguna vorum við að veiða og það
var meiriháttar að sjá hvernig þú
vannst. Ég var með þér úti á
dekki að hjálpa þér að vinna en
það var eina skiptið sem ég fór
út á sjó og það á togara, það var
æðislegt að vera með þér. Þú
gerðir allt fyrir mig sem þú gast,
hvenær sem var. Ég hlakkaði
alltaf til þegar þú varst að koma
heim af sjónum. Ég var alltaf
niðri á bryggju, hvort sem það
var á Sauðárkróki eða í Reykja-
vik, þegar þú varst að koma í
land og hlakkaði alltaf jafnmikið
til að hitta þig. Þú varst minn
besti vinur, traustur eins og
klettur og verndaðir mig eins og
sjáaldur augna þinna. Ég minn-
ist reglulega lagsins sem við
hlustuðum mikið á saman og sér
í lagi í útilegum, Mýrdalssands
með GCD, og Reiðmanna vind-
anna með Helga Björns. Alltaf
hækkuðum við í botn þegar þessi
lög komu í útvarpinu eða annars
staðar. Eins minnist ég allra
hestaferðanna sem þú komst
með mér og afa í þótt þú hafir
aldrei haft neitt sérstaklega
gaman af þeim. Það skipti bara
aldrei máli hvað ég bað þig um,
alltaf varstu tilbúinn og stóðst
með mér í gegnum súrt og sætt.
Þú hringdir í mig á hverjum degi
og bauðst mér í heimsókn þegar
þú varst heima, þú hjálpaðir mér
alltaf með bílinn minn þegar eitt-
hvað var bilað. Ég elska þig
elsku pabbi, ég sakna þín meira
en nokkur orð fá lýst og mun
aldrei gleyma þér.
Ljósið flæðir enn um ásýnd þína:
yfir þínum luktu hvörmum skína
sólir þær er sálu þinni frá
sínum geislum stráðu veginn á.
Myrkur dauðans megnar ekki að hylja
mannlund þína, tryggð og fórnarvilja
– eftir því sem hryggðin harðar slær
hjarta þitt er brjóstum okkar nær.
Innstu sveiflur óskastunda þinna
ennþá má í húsi þínu finna –
þangað mun hann sækja sálarró
sá er lengst að fegurð þeirra bjó.
Börnin sem þú blessun vafðir þinni
búa þér nú stað í vitund sinni:
alla sína ævi geyma þar
auðlegðina sem þeim gefin var.
Þú ert áfram líf af okkar lífi:
líkt og morgunblær um hugann svífi
ilmi og svölun andar minning hver
– athvarfið var stórt og bjart hjá þér.
Allir sem þér unnu þakkir gjalda.
Ástúð þinni handan blárra tjalda
opið standi ódauðleikans svið.
Andinn mikli gefi þér sinn frið.
(Jóhannes úr Kötlum)
Þinn sonur,
Atli Freyr.
Elsku besti pabbi minn. Það
eru erfiðir tímar hjá mér þessa
dagana, þú ert farinn og kemur
ekki aftur.
Tilhugsunin ein um að þetta
sé veruleikinn er óraunveruleg
en ég verð að sætta mig við orð-
inn hlut og halda áfram. Þú varst
mér svo margt, þú gerðir svo
mikið fyrir mig og mömmu og
systkinin mín, þau Atla og Guð-
rúnu. Tímarnir sem við áttum
saman á Brimnesi RE 27 árin
2012 og 2013 eru mér meira virði
en orð fá lýst, þú kenndir mér
eins mikið og hægt var á stuttum
tíma hvernig skal gera við netin
og mun ég halda heiðri þínum á
lofti um ókomin ár fyrir dugnað,
manngæsku og ást sem þú sýnd-
ir mér og öllum sem þér kynnt-
ust. Ég á eftir að hugsa til þín
alla daga með gleði og sorg í
hjarta og bera höfuðið hátt hvar
sem ég kem og minnast þín fyrir
hvað þú varst. Minningin um
hversu góður kokkur þú varst,
hversu hjálpsamur þú varst,
hversu góður maður þú varst og
heill fram í fingurgóma er mér
hvatning og mun ég feta í þín
spor hvar sem ég get komið því
við alla tíð. Allir fengu hjá þér
tækifæri hversu ungir, gamlir,
leiðinlegir eða skemmtilegir þeir
voru, þú gafst öllum séns og allir
elskuðu þig, þú í raun gerðir allt
sem góðan mann prýðir og að
besta pabba í heimi. Þú varst og
verður alltaf pabbi minn og þeg-
ar ég verð svo lánsamur að eign-
ast mína konu og börn mun ég
kynna þau fyrir þér sem besta
afa í heimi, segja þeim gaman-
sögur af okkur og því sem við
upplifðum saman. Þegar við hitt-
umst á ný gerir þú mér greiða og
grillar eins og eitt stykki úrbein-
að lambalæri og brúna sósu með
kartöflum og við förum í gegnum
árin sem við misstum af saman
og tengjumst okkar sterku bönd-
um á ný.
Elsku pabbi ég kveð þig með
söknuði, miklu táraflóði og sorg í
hjarta og lofa þér því að halda
fast utan um mömmu og systkini
mín.
Far þú í friði elsku besti
pabbi.
Þinn sonur,
Fannar Logi.
Elsku pabbi minn. Það er mér
svo fjarri að ég skuli sitja hér og
skrifa minningargrein um þig.
Tilfinningarússíbaninn sem er
búinn að einkenna nánast allt ár-
ið 2015 er sá stærsti sem ég hef
upplifað. Ég á mjög erfitt með að
sætta mig við það sem búið er að
gerast og ég hreinlega hef ekki
hugmynd um hvernig lífið mun
halda áfram. Einhvern veginn
kemur samt alltaf nýr dagur og
tíminn flýgur áfram.
Þar sem þú varst sjómaður
finnst mér oft bara eins og þú
sért úti á sjó og í raun er auð-
veldast að fela sig á bak við þá
hugsun. Ég á margar góðar
minningar um þig sem ég mun
halda í alla mína ævi. Að missa
pabba sinn er flestum mjög erfitt
en ég hefði aldrei getað ímyndað
mér hversu erfitt það er í raun.
Mann eins og þig er ekki hægt
að finna hvar sem er. Allt sem þú
gerðir og allt sem þú tókst þér
fyrir hendur var 110%. Þú varst
alltaf svo hress og skemmtilegur
og það sem þér fannst allra
skemmtilegast var að fá allt þitt
uppáhaldsfólk, bæði fjölskyldu
og vini, saman og hafa gaman.
Þá standa upp úr tvær rausn-
arlegar veislur sem þið mamma
hélduð; fimmtugsafmælið þitt og
útskriftarveislan hennar
mömmu. Það skipti þig svo miklu
máli að halda fjölskyldunni sam-
an og það sem mér finnst ennþá
skemmtilegra er að ég upplifi
það sama.
Mér hefur alltaf fundist gam-
an að tala um þig við annað fólk
og ég hef og mun alltaf vera stolt
af því að hafa þau forréttindi að
kalla þig pabba minn. Þú sagðir
oft við mig: „Guðrún, þú átt
besta pabba í öllum heiminum?
Er það ekki, er ég ekki besti
pabbi í öllum heiminum?“ Að
sjálfsögðu svaraði ég því játandi
og brosti allan hringinn. Ég veit
að ef ég hugsa eða geri hlutina
eins og þú hefðir gert er ég að
gera rétt.
Sárast af öllu finnst mér að þú
hafir ekki upplifað afahlutverkið
vegna þess að ég veit að þú hefð-
ir orðið mjög góður afi og dekrað
við barnabörnin í hvívetna. Ég
man að einu sinni þegar ég bjó á
Akureyri birtist þú allt í einu,
ákvaðst að taka smárúnt og
kíkja í heimsókn. Rétt áður en
þú fórst aftur heim spurðirðu
hvort þú mættir nokkuð fá
Dimmu aðeins lánaða með þér á
Krókinn. Það sem þú gast stjan-
að við hana var ótrúlegt og hún
kunni sko alveg á þig. Hún vissi
nákvæmlega að með því að horfa
bara aðeins á þig fékk hún eitt-
hvað gott að éta, hvort sem það
var úr ísskápnum eða að þú
hreinlega eldaðir eitthvað fyrir
hana.
Börnin mín munu fá að heyra
margar sögur af Kobba afa og ég
mun reyna mitt besta í að vera
þeim foreldrið sem þú varst mér.
Hjá þér fengu allir tækifæri,
sama hver fortíð fólks var. Það
sem mér finnst enn mikilvægara
er að þú kunnir að fyrirgefa
fólki, það vil ég tileinka mér og
kenna mínum börnum.
Ég hef alltaf verið hrædd við
dauðann en eftir að þú fórst,
elsku pabbi minn, er ég ekki
hrædd við hann lengur. Ég
hlakka til þegar minn tími kem-
ur og við hittumst á ný. En þar
til mun ég varðveita allar góðu
minningarnar sem ég á í hjarta
mínu. Elsku pabbi minn, ég kveð
þig með miklum söknuði og tára-
flóði.
Þín dóttir,
Guðrún Ása.
Í dag 7. mars kveðjum við
elskulegan bróður okkar. Elsku
Kobbi, þú sem kvaddir okkur
alltof fljótt hinn 20. febrúar sl. á
dánardegi föður okkar, það er
sárt að þú sért farinn frá okkur,
söknuðurinn mikill, hver hefði
trúað því að þú færir svona ung-
ur. Pabbi yfirgaf okkur alltof
snemma, aðeins 58 ára, en þú 54
ára.
Þú varst svo líkur pabba, þið
báðir svo yndislegir og góðhjart-
aðir að aðra eins öðlinga er erfitt
að finna. Báðir vilduð þið allt fyr-
ir alla gera.
Það var svo gott og gaman að
koma norður til þín og Stínu.
Alltaf svo vel tekið á móti okkur
og þú vildir alltaf fá alla fjöl-
skylduna til ykkar og alltaf var
gleðin við völd. Gott dæmi um
hvað það var gott að koma til
ykkar að alltaf fékk maður grill-
að læri að hætti Kobba, úrbeinað
og besta lærið í bænum. Það var
ansi gaman að vera með þér í
útilegum, það þótti þér ansi
skemmtilegt og mikið var brallað
Kolbeinn
Sigurjónsson
Hjartans þakkir til allra er heiðruðu
minningu ástkærrar eiginkonu, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SÓLVEIGAR ÁRNADÓTTUR,
Uppsölum,
Akrahreppi,
er lést miðvikudaginn 18. febrúar.
Guð blessi ykkur.
.
Árni Bjarnason og fjölskylda.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
KATRÍNAR R. MAGNÚSDÓTTUR,
hjúkrunarheimilinu Mörk,
áður til heimilis að Lynghaga 10,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu
Mörk fyrir alúð og góða umönnun.
.
Jón M. Björgvinsson,
Grétar Ó. Guðmundsson, Erla S. Kristjánsdóttir,
Inga Hanna Guðmundsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ELÍNAR ERNU ÓLAFSDÓTTUR
frá Lambhaga í Ölfusi.
Sérstakar kveðjur með þakklæti fyrir alúð
og góða umönnun til starfsfólks dvalar-
og hjúkrunarheimilisins Áss í Hveragerði.
.
Anna María Jónsdóttir, Benedikt G. Eggertsson,
Magnús Flosi Jónsson, Sigrún Ágústsdóttir,
Halldór Jónsson,
Ólöf Jónsdóttir, Steindór Gestsson,
Kristján Einar Jónsson, Kristín Ólafsdóttir
og fjölskyldur.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
HELGU KRISTÍNAR
KRISTVALDSDÓTTUR,
Skúlagötu 11, Stykkishólmi.
Guð blessi ykkur öll.
.
Tómas Magni Bragason,
Anna Ragna Bragadóttir,
Margrét Steinunn Bragadóttir, Valdimar Ólafsson,
Hólmfríður Jóna Bragadóttir, Geir S. Sigurjónsson,
Bogi Th. Bragason, Sólveig J. Ásgeirsdóttir,
Sigríður L. Braga Carson, William S. Carson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Yndislegur unnusti minn, faðir okkar, sonur,
bróðir, tengdasonur og mágur,
VALDIMAR RÚNAR GUÐMUNDSSON,
Hlíðarhjalla 51,
Kópavogi,
varð bráðkvaddur á heimili sínu
föstudaginn 27. febrúar. Útför hans verður
frá Fossvogskirkju mánudaginn 16. mars kl. 13.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á reikning barna hans,
0156-15-380687, kt. 300609-3330.
.
Daðey Arnborg Sigþórsdóttir,
Júlíus Elfar Valdimarsson,
Sunneva Valey Valdimarsdóttir,
Þóranna Þórðardóttir,
Margrét Unnur Akselsdóttir, Erik Andersson,
E. Ásrún Guðmundsdóttir, Árni Ragnarsson,
Sigþór Valdimar Elíasson, Sonja Elín Thompson,
Elfar Rafn Sigþórsson, Rakel Þorsteinsdóttir.