Morgunblaðið - 07.03.2015, Page 39

Morgunblaðið - 07.03.2015, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2015 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á neðangreindri eign í Bolungarvík verður háð á henni sjálfri, miðvikudaginn 11. mars nk. kl. 14.30. Þuríðarbraut 15, fasteignarnr. 212-1784, þingl.eig. Ufsir ehf., gerðar- beiðandi Sjóvá – Almennar tryggingar hf. Sýslumaðurinn á Vestfjörðum, 6. mars 2015. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Fífurimi 4, 204-0416, Reykjavík, þingl. eig. Sigurbjörg Helga Birgis- dóttir, gerðarbeiðendur Arion banki hf., Íbúðalánasjóður, Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf. og Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 11. mars 2015 kl. 11.30. Starengi 68, 222-4088, Reykjavík, þingl. eig. Kristey Jónsdóttir og Stefán Viðar Guðmundsson, gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg og Vörður tryggingar hf., miðvikudaginn 11. mars 2015 kl. 11.00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, 6. mars 2015. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Hallveigarstígur 4, 200-5684, Reykjavík, þingl. eig. Bogi Örn Emilsson, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf., Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., Reykjavíkurborg og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., fimmtudaginn 12. mars 2015 kl. 11.00. Rauðalækur 11, 201-6516, Reykjavík, þingl. eig. Stefán Óli Sæbjörns- son og Vala Sveinsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Tollstjóri, fimmtudaginn 12. mars 2015 kl. 10.30. Skerjabraut 9, 206-8183, Seltjarnarnesi, þingl. eig. Guðrún Helga Rúnarsdóttir, gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur og Sjóvá- Almennar tryggingar hf., fimmtudaginn 12. mars 2015 kl. 11.30. Stigahlíð 28, 203-1030, Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Margrét Þrastar- dóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna, fimmtudaginn 12. mars 2015 kl. 10.00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, 6. mars 2015. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Arnarhraun 2, 0101, (207-3314), Hafnarfirði, þingl. eig. Sóley Víglundsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Rúnar Þór Árnason, miðvikudaginn 11. mars 2015 kl. 14.30. Erluhraun 2b, 0101, (207-4589), Hafnarfirði, þingl. eig. Arnar Már Ólafsson og Steinunn Hildur Hauksdóttir, gerðarbeiðendur Hafnar- fjarðarkaupstaður og Landsbankinn hf., miðvikudaginn 11. mars 2015 kl. 15.00. Hjallabraut 21, 0102, (207-5523), Hafnarfirði, þingl. eig. Guðrún Ma- lena Ágústsdóttir og Guðjón Haukur Ingólfsson, gerðarbeiðendur Gildi - lífeyrissjóður, Hafnarfjarðarkaupstaður, Hjallabraut 21,húsfélag og Vörður tryggingar hf., miðvikudaginn 11. mars 2015 kl. 13.30. Hjallabraut 5, 0202, (207-5447), Hafnarfirði, þingl. eig. Ásta Guðríður Guðmundsdóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., miðvikudaginn 11. mars 2015 kl. 14.00. Hringbraut 21, 0101, (207-6055), Hafnarfirði, þingl. eig. Sigrún Kristinsdóttir, gerðarbeiðendur Hafnarfjarðarkaupstaður, Íbúðalána- sjóður og Vátryggingafélag Íslands hf., miðvikudaginn 11. mars 2015 kl. 11.00. Hringbraut 4, 0103. (207-6031), Hafnarfirði, þingl. eig. Ewa Zubrzycka, gerðarbeiðendur Hafnarfjarðarkaupstaður, Sjóvá-Almennar trygg- ingar hf. og Sýslumaðurinn á Blönduósi, miðvikudaginn 11. mars 2015 kl. 10.00. Hringbraut 4, 0204, (224-1968), Hafnarfirði, þingl. eig. Guðbjörg Aðalh. Haraldsdóttir, gerðarbeiðendur Hafnarfjarðarkaupstaður, Hringbraut 4, húsfélag ogTryggingamiðstöðin hf., miðvikudaginn 11. mars 2015 kl. 10.30. Hringbraut 51, 0101, (222-4024), Hafnarfirði, þingl. eig. Eygló Jónsdóttir, gerðarbeiðendur Hafnarfjarðarkaupstaður, Landsbankinn hf., Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Sameinaði lífeyrissjóðurinn og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., miðvikudaginn 11. mars 2015 kl. 11.30. Suðurgata 39b, 0101, (207-5740), Hafnarfirði, þingl. eig. Benedikta Björnsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 11. mars 2015 kl. 09.30. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, 6. mars 2015. Aukablað um bíla fylgir Morgunblaðinu alla þriðjudaga Mig langar að minnast afa míns, Oddbergs Eiríks- sonar, í nokkrum orðum. Afi var ein af stóru per- sónunum í mínu lífi. Hann var skipasmiður, einn eigenda Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur, hann var í pólitík og um skeið í bæjarstjórn Njarðvíkur, hann söng í kirkjukórnum og hann var vinmargur. Fyrir mér var hann afi. Ég ólst upp við að eiga gott skjól og nánast annað heim- ili hjá ömmu og afa í Njarðvík. Þær voru ófáar helgarnar sem ég tók rútuna til þeirra á föstu- degi til að vera þar um helgina og á sumrum var ég oft nokkrar vikur í einu hjá þeim. Alltaf var nægur tími fyrir stelpuna og þannig hefur það einnig verið öll mín fullorðinsár. Afi hafði mikla ánægju af því að ferðast, bæði innanlands og erlendis, og hafði farið víða. Oft fékk ég að vera með á ferðalög- um þeirra ömmu og afa hér heima. Þá var farið á bílnum og ekið um sveitir og oft langt inn á öræfi. Þau áttu vini víða um land og við gistum gjarnan hjá þeim en einnig var tjaldað. Við afi fór- um einnig í marga og skemmti- lega bíltúra um Suðurnesin, oft út að Garðskagavita sem var einn af uppáhaldsstöðunum mín- um. Í einum bíltúrnum stopp- uðum við og gengum á Þorbjörn og alltaf sagði hann mér frá staðnum og fólkinu. Amma og afi fóru einnig með mér á góð- viðrisdögum í „piknik“ á strend- urnar í Hraunsvík við Grindavík og í Sandvík úti við Hafnir. Eitt sinn þegar ég var lítil og sem oftar í sundi með afa gerðist það að ég hljóp frá honum og datt út í laugina. Afi brást snöggt við, veiddi mig upp úr og lét ekki þar við sitja. Hann skráði mig fjög- urra ára á sundnámskeið í Njarðvíkunum og nokkrum vik- um seinna var ég komin með bréf upp á að vera synd. Afi hafði ákaflega gott auga fyrir umhverfinu og náttúrunni og sótti þangað m.a. sérkenni- lega steina og rekavið. Hann hafði trú á að nýta mætti reka- við betur og lét t.d. gera parket á gólfið hjá sér á Grundarveg- inum úr því efni. Einnig fann hann skemmtilega steina sem hann nýtti á frumlegan hátt og það var eins með þessa hluti og staðina sem við heimsóttum að þeir áttu sér flestir skemmtilega sögu. Síðustu árin eftir að afi var orðinn einn var það ég sem bauð í bíltúr. Þá bjó afi í Reykjavík og þegar ég spurði hann hvert ferð- inni skyldi heitið þá var ósk hans nánast undantekningalaust á þá leið að við færum suðureftir. Í haust fórum við í okkar síðasta bíltúr um Reykjanesið og við stoppuðum við skipasmíðastöð- ina í Njarðvík. Við töldum skipin og bátana sem voru inni og á brautunum og afi var ánægður með hvað það voru mörg skip í slippnum og að það væri nóg að gera. Við spáðum í nöfn skip- anna, hvaðan þau væru og hverrar tegundar. Eftir góða heimsókn fórum við að vanda á Duushús og fengum okkur kaffi og köku áður en heim skyldi haldið. Í huga mér er þakklæti fyrir ástina og umhyggjuna sem afi umvafði mig alla tíð. Hans ferð er á enda eftir langa og góða ævi og ég er þess fullviss að vel hef- Oddbergur Eiríksson ✝ Oddbergur Ei-ríksson fæddist 15. september 1923. Hann lést 27. febrúar 2015. Odd- bergur var jarð- sunginn 6. mars 2015. ur verið tekið á móti honum fyrir handan af ömmu, ættingjum og vin- um sem á undan eru farnir. Guðrún H. Sveinsdóttir. Í dag kveð ég afa Oddberg. Minn glæsilega afa. Mér þótti hann afi alltaf svo virðu- legur maður og merkilegur. Kannski var það hvernig hann bar sig eða kannski vegna þess að hann átti hatta. Það er erfitt að segja, þannig var það bara. Afi var fróður maður enda las hann mikið og fékk ég oft að heyra sögur og einnig um tím- ann þegar hann var að alast upp. Bókaherbergið hans var fullt af fróðleik og alltaf fannst mér það merkilegt að vera þar inni og skoða. Mér er þó sérstaklega minnisstætt þegar afi var eitt skiptið búinn að kveikja upp í arninum í stofunni og hann sett- ist á stól þar fyrir framan og las upp úr bók fyrir mig. Ég man ekki hvort ég var eina barna- barnið þá að hlusta eða hvort aðrir voru á staðnum en ég man mjög sterkt að ég horfði á afa og hugsaði að hann gæti verið jóla- sveinninn, það vantaði bara fötin og skeggið. Minn kæri afi er nú kominn til ömmu og unir sér líklegast vel. Ætli þau grípi ekki í einn kapal eða svo. Takk fyrir allt elsku afi minn og skilaðu kveðju til ömmu. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðahnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Þórhildur. Mikinn öðling og höfðingja hefur Elli kerling nú að velli lagt. Oddbergur Eiríksson hefur lokið langri lífsgöngu. Ég sem þetta rita varð honum samferða spölkorn á ævileiðinni, það var ómetanlegt. Ég kynntist Oddbergi fljótt eftir að ég fluttist í Njarðvík- urnar, ungur maður og óreynd- ur. Það var margt sem stuðlaði að því að kunningsskapur okkar varð náinn og langur. Báðir vor- um við á vinstri kantinum í stjórnmálum, Oddbergur ein- dreginn sósíalisti, ég þjóðvarn- armaður og báðir höfðum við áhuga á að taka þátt í félagslegu stússi og urðum svo flokksbræð- ur þegar Alþýðubandalagið varð til. Við byggðum okkur svo hús hlið við hlið við Grundarveginn og höfðum um það nokkra sam- vinnu. Oddbergur var „þéttur á velli og þéttur í lund“ svo gripið sé til hendingar úr þekktum söng. Hann var skarpgreindur og hæfileikaríkur, fjölfróður um menn og málefni. Ég minntist áður á stjórnmál og félagsstörf. Á þeim vettvangi farnaðist honum vel og hann naut virðingar bæði samherja og andstæðinga. Hann var mikill unnandi góðra lista, bókmenntir, leiklist og myndlist voru í miklu uppáhaldi enda víðlesinn og fróður í þeim efnum. Við Oddbergur áttum það sameiginlegt að hafa áhuga á ferðalögum um Ísland – jafnt byggðir sem óbyggðir. Þegar efni leyfðu eftir húsbyggingarn- ar við Grundarveginn eignuð- umst við báðir rússajeppa – tor- færubíla þess tíma – og margar urðu ferðirnar langar og stuttar. Stundum voru fleiri með í för en alltaf var það Oddbergur sem var foringinn. Sumir menn eru einfaldlega fæddir foringjar. Ferðalög Oddbergs takmörk- uðust ekki við rússajeppann – fjarri því. Hann var röskur og þolinn göngumaður, gekk á Hvannadalshnjúk meðan sú leið var harla fáfarin og fór í margra daga gönguferðir um eyðibyggð- irnar í Fjörðum og á Horn- ströndum. Hann unni landi sínu af heilum hug, var annt um gróður þess og dýralíf. Ríkur þáttur í skapgerð Odd- bergs var lífsgleðin og lífsnautn- in – lífsnautnin í hinni góðu og jákvæðu merkingu þess orðs. Heimili þeirra hjóna, hans og Fjólu, var um langt árabil sama- staður þar sem fleiri eða færri úr stórum hópi vina og kunn- ingja hittust og glöddust saman. Þau voru samhent í því hjónin að taka vel á móti fólki, veita af rausn og gleðjast með glöðum. Þetta voru oft gáskafullar gleði- stundir þar sem var sungið og höfð uppi gamanmál. Stundum slegið á aðra strengi, lesin upp ljóð eða valdir kaflar úr bók og inn í þetta allt saman fléttuðust svo umræður um stjórnmál og trúmál, lífið og tilveruna, ekkert undan skilið. Oddbergur var söngmaður ágætur og sögumaður, hafði jafnan lag á því að draga fram skoplegu hliðarnar á hverju því sem bar á góma. Hann var hrif- næmur, bæði á stundum gleði og sorgar. Hann kunni manna best að gleðjast með glöðum og fáir miðluðu jafn ríkulega huggun og trausti á sorgarstundum. Og svo var Oddbergur skáld. Þegar hann vildi tjá hug sinn af einlægni þá brá hann fyrir sig ljóðformi án ríms. Þar náði hann þeim fágæta en eftirsóknarverða árangri að tjá í fáum, einföldum orðum hughrif og tilfinningar með eftirminnilegum hætti. Lítt hampaði hann þeim verkum og sýndi fáum. Þegar ég hugsa um Oddberg nú að leiðarlokum er mér efst í huga virðing fyrir fjölhæfum og skemmtilegum drengskapar- manni og þakklæti fyrir að hafa fengið að njóta samfylgdar hans á lífsleiðinni um skeið. Sigmar H. Ingason. Sem ungur maður fór Odd- bergur frá sínum heimaslóðum og til Njarðvíkur að nema þar skipasmíði. Þar varð síðan hans starfsvettvangur og ævistarf við að vinna við smíðar og viðhald bátaflotans á einn eða annan hátt. Oddbergur var einn stofnenda Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur og starfaði þar lengst af sinni starfsævi. Hann var virkur þátt- takandi í þeirri uppbyggingu sem þar átti sér stað og eftir að tekin var í notkun ný dráttar- braut var stöðin með fullkomn- ustu dráttarbrautum á landinu með geymslupláss fyrir rúmlega 30 báta á plani. Það var því oft mannmargt þegar stöðin var full af bátum sem þörfnuðust að- hlynningar og margar hendur þurfti til að vinna verkin. Var Slippurinn um tíma einn af fjöl- mennustu vinnustöðum á Suð- urnesjum og voru þar í vinnu allt að 100 manns þegar mest var um háannatímann og það voru margir sem stigu þar sín fyrstu spor á atvinnuferlinum. Oddbergur stjórnaði lengi uppsátrinu, við að taka upp bátana, setja þá á sinn stað og sjósetja aftur eftir að viðeigandi umhirða eða viðgerð hafði verið framkvæmd. Og það voru marg- ir sem þurftu að komast í slipp sum árin og mönnum lá mis- mikið á. Setningsstjórinn varð þá að vera fastur fyrir og Odd- bergur stjórnaði því með sínu lagi. Það eru margar minningar sem koma upp þegar farið er að rifja upp gamla tíma, en eftir stendur þó upp úr minning um manninn, um vinnufélagann sem nú er fallin frá. Við þökkum Oddbergi samfylgdina og vott- um fjölskyldunni samúð okkar um leið og við kveðjum góðan fé- laga. Fyrir hönd samstarfsmanna í Skipasmíðastöð Njarðvíkur, Jón Haukur Aðalsteinsson. Þegar ég flutti til Keflavíkur fyrir 45 árum til að gerast kenn- ari hér í bæ þekktum við hjónin afar fáa hér á svæðinu og vorum svolítið einmana. En á því átti heldur en ekki eftir að verða breyting eftir að við villtumst inn á fund hjá Alþýðubandalag- inu og Oddbergur Eiríksson bauð okkur heim að fundi lokn- um. Þar var nú ekki aldeilis í kot vísað hjá þeim hjónum Oddbergi og Fjólu, dýrlegar veitingar bornar fram af húsfreyju og hví- líkt skemmtilegar samræður sem teygðu sig langt inn í nótt- ina og allt í einu var maður kom- inn í samband við skemmtileg- asta og besta fólk sem ég hefi á ævi minni kynnst, þau hjónin, Sólveigu og Jónatan, og síðar Eyjólf og Þorbjörgu og marga fleiri sem minnisstæðir eru. Auðvitað hefur týnst úr þess- um hópi eftir því sem árin hafa liðið og nú síðast er genginn sjálfur höfðinginn, Oddbergur Eiríksson, sem vissulega var á sínu æviskeiði einn af þeim sem gáfu tilverunni lit. Kona hans, Fjóla, var fædd hefðarkona, afar glæsileg og framkoman og lát- bragðið hefði sómt sér í sölum lávarða, hún er einhver elskuleg- asta manneskja sem maður hef- ur kynnst og Oddbergur, alltaf glaður og góður, vildi öllum hjálpa. Þau voru einstaklega samhent hjón og manni fannst þau óaðskiljanleg. Þau unnu saman í Skipasmíðastöð Njarð- víkur en Oddbergur hafði lært skipasmíðar. Í frítíma sínum lögðust þau gjarnan í ferðalög og þá var maður stundum svo heppinn að maður fékk að ferðast með þeim og það var nú ekki amalegt. Oddbergur var hafsjór af skemmtilegum sögum og þjóð- legum fróðleik og svo var hann aldeilis liðtækur söngmaður, söng í kór í áratugi og það var ógleymanlegt að heyra hann syngja og ég tala nú ekki um að fá að taka undir. Svo laumaðist maður út að reykja með Fjólu sem var slíkur snyrtipinni að þótt við værum stödd uppi á öræfum þá tók hún upp úr fór- um sínum silfuröskubakka og krafðist þess að aska og allur annar úrgangur væri settur þar. Ekki mátti svína út náttúruna. Það er ekki lítils virði að fá slíkt uppeldi. Ég verð að segja hér eina sögu af Oddbergi sem mágur hans sagði í 70 ára afmæli Fjólu. Þegar Oddbergur var fimm ára prestssonur á Sandfelli í Öræf- um var einu sinni von á bisk- upnum í vísitasíu. Oddbergur litli var mjög spenntur en nokkru áður en biskupinn kom var búið að dúka og leggja á borð í borðstofunni, sviða- kjamma á fötum með tilheyrandi meðlæti. Oddbergi litla mun hafa fundist hausarnir nokkuð snautlegir og tók til sinna ráða og þegar biskupinn gekk til stofu var búið að þræða eyrna- lokka móður hans í eyrun á svið- unum. Mér hefur alltaf fundist þessi saga sýna innræti Odd- bergs vel. Að gera það besta fyr- ir gestina, það voru hans ær og kýr. Fjóla hélt mikið upp á lagið We’ll meet again og það var sungið afar fallega þegar hún var jörðuð. Mig langar til að trúa að nú muni þessi yndislegu hjón hittast aftur á öðru tilveru- stigi og njóta þess að vera sam- an í eilífðinni. Þeim var ekki skapað að skilja. Við gamla Alþýðubandalags- fólkið þökkum fyrir samfylgdina. Sigríður, Ásgeir, Eyjólfur, Þorbjörg og Sólveig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.