Morgunblaðið - 07.03.2015, Síða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Einhver er aðgangsharður og vill
komast nær þér en þú kærir þig um. Láttu
allt slúður sem vind um eyru þjóta og mynd-
aðu sjálfur skoðun á vinnufélögum þínum.
20. apríl - 20. maí
Naut Óvænt atvinnutilboð eða aðferðir til
þess að auka tekjur þínar gætu borist þér í
dag. Leyfðu þér að njóta tímamótanna áður
en þú heldur ótrauður áfram.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur meðbyr og átt að not-
færa þér hann til þess að koma áhuga-
málum þínum í höfn. Leggðu á ráðin um
bæta heimilisaðstæður þínar til langframa.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það sem ykkur kann að finnast
skipta öllu máli getur öðrum virst þýðing-
arlítið. Varastu alla áhættu í fjármálum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér er nauðsynlegt að brydda upp á
einhverju nýju til þess að gefa lífinu lit. Finn-
ist þér þú vera að bogna skaltu fá aðra til
liðs við þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Í dag má auðveldlega leysa deilumál
sem upp hafa komið milli vina. Reyndu að
kynna þér málin sjálfur og kveða upp dóm á
þínum eigin forsendum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Rólyndi þitt hefur góð áhrif á aðra, en
þú þarft líka á næringu að halda. Annars
áttu á hættu að allt fari úrskeiðis.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú finnur til kennda sjálfstæðis
og uppreisnar í dag og vilt ekki að nokkur
maður segi þér fyrir verkum. Að gefa und-
irbýr það að þiggja.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þennan morgun skaltu hugleiða
allt sem er gott, til að bægja burt óþægind-
unum. En skyndilausn er eðli málsins sam-
kvæmt tímabundin. Ræddu málin af kaldri
skynsemi en með heitu hjarta.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú vilt sýna einstaklingshyggju
þína og sjálfstæði og skalt ekki hika við það.
Mikið vill meira! Hættu því að gangast upp í
kunningsskapnum og menntaðu sjálfan þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það reynir á hvern mann þú hef-
ur að geyma þegar þú verður vitni að sam-
tali sem ekki á að koma fyrir þín eyru.
Fimmtán mínútur á dag eru fljótar að safn-
ast saman.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú leggur hart að þér en þeim sem
skilja ekki vinnuna þína finnst það ekki. Leit-
aðu ráða. Veldu rétta augnablikið og vertu
vandlátur á það sem þú lætur fara frá þér.
Síðasta vísnagáta var eftir Guð-mund Arnfinnsson:
Bert landsvæði blasir við.
Blásið út er líffærið.
Víst hér mjúkur mosinn er.
Mun ei spretti linna hér.
Harpa á Hjarðarfelli á þessa
lausn:
Nú varð ég kima að kemba
og kanna ýmis svið,
en það mun vera þemba
sem þarna átt er við.
Helgi R. Einarsson svarar:
Konur lokka kemba,
karl er stundum remba,
dropar margir demba,
í dag er lausnin þemba.
Árni Blöndal ræður gátuna
þannig:
Í uppblásturs þembuna sáði,
uppþemdan sá þar lembinginn,
í mosaþembunni áði ,
og mátti svo ríða þembinginn
Guðmundur svarar sjálfum sér:
Þemba er hygg ég hrjóstur bert.
Heilsu fær lungnaþemba skert.
Mosaþemba, hve mjúk þú ert!
Margt er í einni þembu gert.
Og lætur þembu-limru fylgja:
Úr réttunum Tóti með rembinginn
kom ríðandi Freyfaxa kembinginn
í ausandi dembu,
með iðraþembu
af því að ríða þembinginn.
Síðan heldur Guðmundur upp-
teknum hætti og sendir gátu í
Vísnahorn:
Fyrirheiti frestun á.
Á fési hverju má hann sjá.
Jafnan stunda á miði má.
Mengun valda þykir sá.
Davíð Hjálmar Haraldsson
minnir á áform um stórfellt nið-
urrif ónýtra skipa og umfangs-
mikið laxeldi við Eyjafjörð. Á það
að koma í stað hvalaskoðunar.
Hver mun elta hvalatorfur fús
í hvítalogni og mildum aftanroða
ef ryðguð skipaflök og laxalús
líka má um allan fjörðinn skoða?
Ólafur Stefánsson segist líka já-
kvæður og sjá „tækifæri í stöð-
unni“ eins og sagt er.
Er túristarnir taka land
og tékka á góðum kaupum,
hillir uppi við svartan sand
sveittan karl á hlaupum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Þembulimra í kjölfarið
Í klípu
„GLEYMUM ÞVÍ EKKI HVERT ALVÖRU
FÓRNARLAMBIÐ ER. SKJÓLSTÆÐINGUR
MINN HEFUR VERIÐ HUNDELTUR, HANDTEKINN,
HALDIÐ GEGN VILJA SÍNUM, DREGINN HINGAÐ
INN OG NEYDDUR TIL ÞESS AÐ STANDA
FYRIR MÁLI SÍNU.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VILTU AÐ ÉG NÁI Í INNKAUPAKERRU?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar það er svo sárt
að skiljast að.
HVERNIG VAR
MATURINN ÞINN?
AUÐGLEYMANLEGUR
GÆTIRÐU FRÍSKAÐ
UPP Á MINNIÐ MITT?
ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR
AÐ NÚ SÉ ÚTI UM OKKUR!
KANNSKI
EKKI...
ÞEIR GÆTU VERIÐ
AÐ PLATA!
Fyrstu áratugir síðustu aldar heillaVíkverja. Hann hefði viljað vera
uppi á þeim tíma þegar Reykjavík
var að stækka og bæjarbragurinn að
taka á sig mynd. Það er eitthvað
heillandi við þetta tímabil þar sem
kýr og hestar gengu um moldar-
götur bæjarins við hlið prúðbúinna
góðborgara sem klæddust sínu fín-
asta pússi. Þeir þurftu oftar en ekki
að stikla yfir skítinn á götunum til að
komast leiðar sinnar.
Á sama tíma voru kvikmynda-
húsin að ryðja sér til rúms þar sem
þessi nýi miðill þótti heillandi.
x x x
Víkverji hefur nefnilega reynt aðtemja sér það að þegar hann
dettur í sjálfhverft kvart og kvein yf-
ir hlutskipti sínu í nútímasamfélagi
þá hugsar hann til þess hvernig for-
feður og -mæður höfðu það á þessum
tíma. Þá var oftar en ekki öllu erf-
iðara að eiga í sig og á svo ekki sé
talað um að vera kona í þessu sam-
félagi.
Þá tekur Víkverji sig saman í and-
litinu og þakkar fyrir það sem hefur
áunnist og í raun hvað hann hefur
það býsna gott.
x x x
Undanfarið hefur Víkverji nefni-lega verið að lesa bókina Saga
þeirra, saga mín eftir Helgu Guð-
rúnu Johnson. Bókin segir sögu
þriggja kvenna, Katrínar Thor-
steinsson Briem (1881-1919), Ingi-
bjargar „Stellu“ Briem (1902-1967)
og Katrínar Stellu Briem (f. 1935).
Sú síðastnefnda er heimildamaður
ævisöguritarans. Verkið er kafla-
skipt þar sem jafn margir kaflar eru
tileinkaðir hverri persónu.
Sagan er virkilega góð. Tvinnað
saman sagnfræðifróðleik um tíma
liðinnar aldar og inn á milli kemur
sviðsetning á hugsunum og gjörðum
sögupersónanna. Þetta fléttast vel
saman.
x x x
Það sem stendur upp úr er aðraunveruleikinn getur oft verið
lygilegri en skáldskapurinn sjálfur.
Það er forvitnilegt að sjá hvernig
fólk tekst á við lífið eftir mikinn
missi. Lesning sem Víkverji mælir
með. víkverji@mbl.is
Víkverji
Lofa þú Drottin, sála mín, og allt sem
í mér er, hans heilaga nafn; lofa þú
Drottin, sála mín, og gleym eigi nein-
um velgjörðum hans. (Sálmarnir 103:1-2)
mbl.is
alltaf - allstaðar
Undirþrýstingur í miðeyra með vökva.
Eftir þrýstingsjöfnunmeðOtoventblöðru,
miðeyrað opið og engin vökvi.
Otovent meðferðin er til að létta á undirþrýsting
í miðeyra.
Getur fyrirbyggt og unnið á eyrnabólgu og vanlíðan
með því að tryggja að loftflæði og vökvi eigi greiða leið
frá miðeyra.
Meðferð getur dregið úr eyrnabólgum, sýklalyfjanotkun,
ástungumog rörísetningum. Læknar mæla með Otovent.
Klínískar rannsóknir sýna gagnsemi við lokun í miðeyra,
skertri heyrn eftir eyrnabólgur, óþægindum í eyrum við
flug, sundferðir eða köfun.
Otovent er einfalt og þægilegt fyrir börn og fullorðna.
Rannsóknir sýna góðan árangur. CE merkt.
Fæst í apótekum
Fyrsta hjálp til að
laga og fyrirbyggja
eyrnabólgur Viðurkennd meðferð
Umboð Celsus ehf