Morgunblaðið - 07.03.2015, Page 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2015
Kynningarmiðstöð íslenskrar mynd-
listar stóð fyrir boði í New York í
fyrrakvöld sem var hluti af stóru
kynningarverkefni sem er kallað
„Way out“. Þessa dagana er mikil
áhersla á myndlist í borginni og taka
Íslendingar þátt í því; sýning Bjark-
ar í MoMA er umtöluð og koma fleiri
íslenskir listamenn þar að málum og
þá er i8 með sýningarrými á list-
kaupstefnunni Armory Show.
Kynningarmiðstöðin bauð á
fimmtudagskvöldið til fyrsta „Way
out“-boðsins í íbúð og vinnustofu
Hrafnhildar Arnardóttur myndlist-
arkonu, sem einnig kallar sig Shop-
lifter, í Greenpoint-hverfinu í Brook-
lyn. Þangað var boðið galleristum,
sýningarstjórum, blaðamönnum og
öðrum sem koma að myndlistar-
málum á ýmsan hátt, auk íslenskra
listamanna og listnema. Áformað er
að vera með fleiri slík boð í framtíð-
inni, í borgum þar sem stórir mynd-
listarviðburðir eiga sér stað.
Gestir voru fræddir um íslenska
myndlist, Gjörningaklúbburinn bauð
upp á gjörninginn „Hot Speech“,
Egill Kalevi Karlsson og Þuríður
Rós Sigurþórsdóttir upp á sannkall-
aðar myndlistartertur og þá voru
sýnd myndbandsverk.
Framkvæmdastjóri KÍM, Björg
Stefánsdóttir, segir marga íslenska
listamenn búsetta erlendis en þeir
séu þó þátttakendur í íslensku lista-
lífi. Einn tilgangurinn hafi verið að
styðja þá með bættri kynningu.
„Hér stefnum við fólki saman og
tengjum. Við notum tækifærið þegar
Armory-vikan er í borginni, til að ná
til áhrifafólks í myndlistarlífinu. Hér
erum við á vinnustofu listamanns og
við það myndast áhugaverð nánd.
Við viljum síðan gjarnan fá þessa
gesti til Íslands og erum búin að
gera kynningarefni þar sem við
tengjum íslensku listsenuna við þá
alþjóðlegu.“
Ragnheiður Gestsdóttir sér um
framkvæmd „Way out“. „Þar sem ís-
lenskir myndlistarmenn taka þátt í
stórum fjölþjóðlegum viðburðum
komum við og fylgjum þátttöku
þeirra eftir, auk þess sem við viljum
styðja betur við listamenn sem eru
búsettir erlendis. Það er nýtt að vera
með kynninguna inni á vinnustofu
,,en það er stórskemmtilegt og
spennandi fyrir alla.“
Hrafnhildur hefur búið og starfað
í New York í rúm 20 ár og finnst
skemmtilegt að bjóða öllum þessum
gestum heim. „Við maðurinn minn
erum vön að halda stóra veislur
hérna og mér finnst þetta frábært
verkefni hjá Kynningarmiðstöðinni.
Mér finnst þetta skynsamlegt, að
kynna íslenska list í borgum eins og
New York, þar sem svo margt er í
gangi. Ég sló því til – enda er þetta
mjög gott fyrir mig og aðra íslenska
listamenn hér,“ segir hún. efi@mbl.is
Morgunblaðið/Einar Falur
Myndlistarþing Gestir fylltu íbúð og vinnustofu Hrafnhildar Arnardóttur í Greenpoint-hverfinu í Brooklyn. Boðið
var upp á listaverkakökur, horft á gjörning og rætt um myndlist fram eftir kvöldi.
„Stórskemmtilegt“
Teygja Jóní Jónsdóttir og samstarfskonur hennar í Gjörningaklúbbnum
hófu gjörning sinn á því að fara um stofur Hrafnhildar Arnardóttur með
einskonar teygjuverk, sem þær strekktu vel á milli gesta.
Hotsauce Gjörningaklúbburinn, Sigrún Hrólfsdóttir, Jóní Jónsdóttir og
Eirún Sigurðardóttir, nálgast hátind gjörnings síns um sterka sósu, fyrir
framan gestina í eldhúsinu hjá Hrafnhildi Arnardóttur í New York.
KÍM með kynningu hjá Hrafnhildi Arnardóttur í New York
Guðlaugur Bjarnason opnar ljós-
myndasýningu í Anarkíu, Hamra-
borg 3 í Kópavogi, í dag kl. 15. Á
sýningunni verða myndir frá Berlín
og Íslandi, teknar 1998-2005 í Berl-
ín og 2008-2012 á Íslandi. Um kl. 16
verður tónverkið „Veðrabrigði“
eftir Ingibjörgu Azimu frumflutt,
við ljóð Guðlaugs. Flytjendur eru
básúnukvartettinn Los Trombones
trans Atlantico og Magga Stína. Á
myndinni sést Magga Stína æfa
verkið með básúnuleikurum í An-
arkíku, miðvikudaginn sl.
Opnun og „Veðrabrigði“ frumflutt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Söfn • Setur • Sýningar
Laugardagur 7. mars kl. 14: Ókeypis barnaleiðsögn
Sunnudagur 8. mars kl. 14-16: Þjóðbúningadagur
Ókeypis aðgangur fyrir gesti sem klæðast þjóðbúningum
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
Á veglausu hafi í Bogasal
Hvar, hver, hvað? í Myndasal
Húsin í bænum á Veggnum
Fjölbreyttir ratleikir fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð og kaffihús
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið frá 11-17 alla daga nema mánudaga.
Listasafn Reykjanesbæjar
• Til sjávar og sveita,
Gunnlaugur Scheving
• Sjálfsagðir hlutir, hönnunarsaga.
• 15/15 – Konur og myndlist,
úr safneigninni.
24. janúar – 26. apríl
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Bátasafn Gríms Karlssonar
Listasafn Erlings Jónssonar
Opið virka daga 12-17, helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
Verið
velkomin
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
LISTASAFN ÍSLANDS
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga.
KONUR STÍGA FRAM - SVIPMYNDIR 30 KVENNA Í ÍSLENSKRI MYNDLIST
13.2.-10.5.2015
SUNNUDAGSLEIÐSÖGN kl. 14
í fylgd Bjargar Erlingsdóttur verkefnastjóra fræðsludeildar
A KASSEN CARNEGIE ART AWARD 2014 13.2. - 10.5. 2015
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur.
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar.
IN THE CRACK OF THE LAND - Una Lorenzen
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
LISTAMAÐUR Á SÖGUSLÓÐUM
Johannes Larsen á ferð um Ísland 1927 og 1930. 31.1–22.3.2015.
Opið laugardaga og sunnudag kl. 14-17. Kaffistofan opin á sama tíma.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Í BIRTU DAGANNA Málverk og teikningar Ásgríms Jónssonar, 1.2.-15.9. 2015
Opið sunnudaga kl. 14-17.
Largo - presto
Tumi Magnússon
Á gráu svæði
David Taylor
Opnun laugardag 7. mars kl. 15
Samtal við hönnuð
Sunnudag 8. mars kl. 15
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is, sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Teikningar og skissur
Helgu Björnsson
tískuhönnuðar
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
ÓKEYPIS AÐGANGUR
HÁDEGISTÓNLEIKAR
Í NORÐURLJÓSUM, HÖRPU
ÞRIÐJUDAGINN 10. MARS KL.12:15
SÓLRÚN BRAGADÓTTIR
SÓPRAN
ANTONÍA HEVESI
píanó
VERDI - MASCAGNI
WAGNER - GIORDANO
ÁSTIR TRYGGLYNDRA KVENNA