Morgunblaðið - 24.03.2015, Page 1
Í febrúar síðastliðnum varð kúvend-
ing í kynjahlutföllum í málum tengd-
um þjófnaði hér á landi. Alla jafna
eru karlar í meirihluta þeirra sem
teknir eru fyrir þjófnað eða um 60
prósent karla á móti 40 prósentum
kvenna. Í nýjustu Afbrotatíðindum
Ríkislögreglustjóra má sjá kynja-
hlutföll í þjófnaði síðustu tólf mán-
uðina en konur voru í meirihluta í af-
brotum tengdum þjófnaði í
febrúarmánuði.
Helgi Gunnlaugsson, prófessor í
félagsfræði og sérfræðingur í af-
brotafræðum við Háskóla Íslands,
segir þessar breytingar á kynja-
hlutföllum vera mjög áhugaverðar
en þær megi án efa rekja til breyttr-
ar hegðunar hjá körlum. Hann segir
að atferli karla hafi tekið hraðari
breytingum hvað afbrot varðar en
konur standi í stað. Eftir sem áður
verma karlmenn efstu sætin í fjölda
alvarlegri brota hér á landi og einnig
víða annars staðar.
Ein ástæða er til dæmis sú að
karlmenn eru oftar í stöðu þar sem
þeir telja sig komast upp með alvar-
lega glæpi á borð við auðgunarbrot.
Þeir eru oftar viðriðnir ofbeldis-
glæpi og stærri auðgunarbrot en
konur. Mun fleiri karlmenn eru í
fangelsum en konur og segir Helgi
að konur séu að jafnaði um 6-8%
fanga. »15
Fleiri kon-
ur stela
en karlar
Sérkennileg breyt-
ing á kynjahlutföllum
Klefi Konur eru 6-8 prósent fanga.
Málsvarnarlaunin og þóknanirnar
renna eingöngu til verjenda í saka-
málum bæði á rannsóknarstigi og
fyrir dómi. Starfsmenn ákæruvalds-
ins fá ekki þessar greiðslur.
„Þetta eru málsvarnarlaun, sem
þýðir að þeir sem eru verjendur í opinberum málum þ.e.a.s. í saka-
málum fá þetta greitt en ríkið á síðan endurkröfurétt á hendur þeim
sem eru sakfelldir, ef þeir eru borgunarmenn fyrir því,“segir Ingimar
Ingason, framkvæmdastjóri Lögmannafélags Íslands.
Endurkröfuréttur á sakfellda
MÁLSVARNARLAUN OG ÞÓKNANIR VERJENDA Í SAKAMÁLUM
Þ R I Ð J U D A G U R 2 4. M A R S 2 0 1 5
Stofnað 1913 70. tölublað 103. árgangur
EDDIE IZZARD
KEMUR TIL
ÍSLANDS
ÞOTUBÍLL
Á BRAUTINNI
Í SUMAR
MIKIL FJÖL-
BREYTNI Á
FYRSTA KVÖLDI
BÍLAR MÚSÍKTILRAUNIR 38VIRTUR OG VINSÆLL 41
Eftir því sem
lengur er beðið
með viðhald
vega, þeim mun
kostnaðarsamari
verður aðgerðin.
Þetta er á meðal
þess sem fram
kom á fundi um-
hverfis- og sam-
göngunefndar í
gær um ástand
gatnakerfisins. Vegna niður-
skurðar hefur gatnakerfinu ekki
verið haldið við sem skyldi síðustu
árin og nú stefnir í rándýra fram-
kvæmd sem þegar hafa verið lagð-
ar tæpar 900 milljónir í.
Kostnaðarsamur
niðurskurður
Vegir Mikið fjár-
magn þarf í viðhald.
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands, segir sviptingar í íslenskum
stjórnmálum á síðustu misserum
hafa þrengt að Samfylkingunni og
sóknarfærum hennar.
„Haldi aðrir flokkar í kringum
miðjuna áfram umtalsverðu fylgi
verður erfitt fyrir Samfylkingu að
ná 25-30%, eins og hún gerði 1999-
2009. Síðustu áratugi hefur fylgi
ungs fólks við stjórnmálaflokka
gjarnan breyst milli kosninga – þeir
eru venjulega hreyfanlegustu kjós-
endurnir,“ segir Ólafur.
Spurður hvað skýri undirölduna í
íslensku samfélagi – og að Píratar
skuli nú mælast stærsti stjórnmála-
flokkur landsins – segir Ólafur að
enn sé uppi pólitísk og félagsleg
kreppa eftir hrunið. Fjallað er um
sviptingar í stjórnmálum síðustu ár
í Morgunblaðinu í dag. »16
Umrótið í íslenskum stjórnmálum gerir
Samfylkingu erfitt fyrir að ná fyrri styrk
Morgunblaðið/Ómar
Alþingishúsið Mikið umbrotaskeið hefur
verið í stjórnmálunum frá árinu 2009.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Málsvarnarlaun og þóknanir verj-
enda og réttargæslumanna í saka-
málum hafa verið hækkuð með
ákvörðun dómstólaráðs. Þetta kemur
fram í tilkynningu dómstólaráðs um
viðmiðunarreglur fyrir héraðsdóm-
stólana, sem birt var í lok janúar sl.
Tímakaup verjenda hækkar úr 10
þúsund kr. í 16.500 kr. eða um 65% og
tekið er fram í reglunum að máls-
varnarlaunin skuli aldrei vera lægri
en 78.000 kr., sem er hækkun úr
46.700 kr. Þá hækkar lágmarksþókn-
un verjenda og réttargæslumanna
fyrir að mæta við fyrirtöku hjá lög-
reglu eða dómara úr 20.000 kr. í
52.000 kr., sem er um 160% hækkun.
Standi fyrirtaka lengur en í tvær
klukkustundir greiðist hver byrjuð
klukkustund fram yfir það með
16.500 kr. samkvæmt viðmiðunar-
reglum dómstólaráðs.
Þessar fjárhæðir hafa verið
óbreyttar í mörg ár og hafa lögmenn
lengi talið knýjandi þörf á að þær
verði leiðréttar að sögn Ingimars
Ingasonar, framkvæmdastjóra Lög-
mannafélags Íslands. Að sögn hans
stóð til að hækka tímagjaldið fyrir all-
mörgum árum en í kjölfar hrunsins
gekk það ekki eftir og voru þessar
fjárhæðir lækkaðar árið 2009 með
reglugerð sem þáverandi innanríkis-
ráðherra setti. ,,Þetta hefur verið
óbreytt frá þeim tíma eða þar til
núna,“ segir hann. „Þetta er margra
ára leiðrétting sem er að koma þarna
í einum pakka,“ segir hann.
Ingimar segist gera ráð fyrir að
þarna sé uppreiknuð hækkunarþörf
leiðrétt fyrir allt þetta tímabil. Lög-
menn hafa margítrekað bæði við
ráðuneytið á sínum tíma og með
ábendingum til dómstólaráðs að eðli-
legt væri að leiðrétta þessar fjárhæð-
ir að sögn Ingimars. Reglugerðin sem
ráðherra setti árið 2009 var felld úr
gildi í fyrra og síðan þá hefur dóm-
stólaráð farið með vald til að ákveða
viðmiðunarreglurnar og fjárhæðirnar
sem nú hefur verið gert.
65% hækkun
málsvarnar-
launa verjenda
Dómstólaráð hækkar málsvarnarlaun
verjenda ,,Margra ára leiðrétting“
MHækkað í samræmi »2
Gærdagurinn heilsaði höfuðborgarbúum með sólargeislum og þá var vind-
ur lítill. Margir stukku til og sóttu hjólin í geymsluna, settu buffið á höfuðið
og hjálminn á. Brunuðu út í blíðviðrið með aukahlut sem hefur ekki verið
algengur að undanförnu, sólgleraugun. Í dag er spáð slyddu eða rigningu á
Suður- og Vesturlandi um kvöldið, hvössustu við sjávarsíðuna.
Morgunblaðið/Kristinn
Stormað yfir stífluna í logni
Reiðhjólin komin úr geymslum
Fundur hverfisráðs Laugardals
og íbúasamtaka Laugardals um for-
tíð, nútíð og framtíð hverfisins var
haldinn í gærkvöldi. Fundurinn var
fjölsóttur og voru fjörugar pall-
borðsumræður að framsögum lokn-
um, að sögn Sigurðar Þórðarsonar,
varaáheyrnarfulltrúa Framsóknar
og flugvallavina, sem sat fundinn.
„Flestir fundarmenn voru sammála
um það að fyrst og fremst ætti dal-
urinn að nýtast til útivistar og
íþrótta,“ sagði Sigurður og bætti
við að stíga yrði varlega til jarðar.
Mikil umræða skapaðist einnig
um áætlaða byggð norðan við Suð-
urlandsbraut sem talin er breyta
ásýnd dalsins og framtíðarnotum
hans töluvert, að mati Björns Jóns
Bragasonar sagnfræðings, eins
framsögumanna fundarins. »6
Íbúar Laugardals funduðu um
fortíð, nútíð og framtíð hverfisins
Morgunblaðið/Kristinn
Framtíð Íbúar og aðrir áhugamenn um
Laugardalinn fjölmenntu á fundinn í gær.