Morgunblaðið - 24.03.2015, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 24.03.2015, Blaðsíða 11
Hringbraut-miðlun ehf. | Sundagarðar 2 | 104 Reykjavík | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100 Ekki missa af áhugaverðum þætti um uppgang í verslun við bændur sem spáð er miklum vexti á næstu árum ATVINNULÍFIÐ Uppgangur og tækifæri í landbúnaði í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 21.00 í kvöld Heimsókn til Jötunn véla á Selfossi, Akureyri og Garðabæ • Ör vöxtur í starfsemi lítils fyrirtækis á landsbyggðinni • Áhugaverð starfsmannastefna sem vakið hefur athygli • Hvernig er að aka dráttarvél af nýjustu gerð? • Heimsókn að Móheiðarhvoli á Rangárvöllum Á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl. 21.00 tónlistarstjóri er Stefán Steinar Jónsson og ljósateyminu stjórnar Jó- hanna Ása Einarsdóttir. Leikarahópurinn samanstendur af 35 manns á aldrinum 15-75 ára. Þegar leikararnir fóru í gegnum prufur höfðu þeir ekki hugmynd um hvaða leikrit yrði sett upp því þau höfðu ekki fengið handrit í hend- urnar. „Það var mjög skemmtilegt og kom vel út, leikstjórinn var í skýj- unum með hópinn og pössuðu allir vel í hlutverkin sín því breiddin er svo mikil,“ segir Steingrímur. Bættu við sönglögum Þó nokkuð af sönglögum er í leikritinu en Ísfirðingarnir gerðu sér lítið fyrir og bættu við nokkrum lög- um til viðbótar. Það fellur vel að áhugasviði Steingríms en hann kom upphaflega inn í Litla leikklúbbinn í gegnum tónlistina árið 2011. Hann söng einsöng í verkinu „Vegir liggja til allra átta“ með tónlist systkinanna Villa Vill og Elly, leikstjóri var Elfar Logi Hannesson og Guðmundur Hjaltason var tónlistarstjóri. „Ég féll alveg fyrir leiklistar- stússinu, stressinu og gleðinni sem fylgir þessu,“ segir Steingrímur en hann hefur verið í stjórn félagsins frá árinu 2011. „Við höfum einbeitt okk- ur að því að snúa starfseminni úr mínus og í plús og það hefur tekist.“ Leikklúbburinn nær að halda veg- lega upp á afmælið á árinu án þess að þurfa að borga með uppsetningunni og segir Steingrímur það nokkuð vel af sér vikið. Steingrímur segist sjálf- ur hafa gaman af því að fara aðeins á svið og fíflast en hann hafi þó ekki eins mikinn áhuga á leiklistinni og margir aðrir í leikklúbbnum. „Það er gott að formaður sinni leiklistinni ekki of mikið því það er svo margt annað sem þarf að gera í kringum starfið,“ segir þessi kraftmikli Ísfirð- ingur en hann er borinn og barn- fæddur þar og hefur búið þar alla tíð fyrir utan stutta búsetu á Akureyri og í Reykjavík. Leikfélagið er mjög virkt og hef- ur að jafnaði sett upp tvær sýningar á ári. Annað hvert ár er barnasýning sett upp. Dugleg að fá ungt fólk inn „Við erum dugleg að fá ungt fólk inn í starfið og erum í miklu sam- starfi við grunnskólann en stór hluti hópsins sem keyrir ljós og hljóð á sýningum er á grunnskóla- og menntaskólaaldri,“ segir Stein- grímur, spurður hver sé galdurinn á bak við öflugt starf áhugaleikfélags á landsbyggðinni. Þá bendir hann á að þegar settar eru upp barnasýningar þá er oftast löng biðröð af börnum sem vilja fá að leika í leikritunum því þau eru mjög vinsæl. Á afmælisdaginn, 24. apríl nk., verður opnuð sögusýning Litla leik- klúbbsins í Safnahúsinu í gamla sjúkrahúsinu á Ísafirði. Þar verða t.d. til sýnis gamlir búningar, leikmyndir að ógleymdum ljósmyndum úr starf- inu. Sýningin verður opin fram í júní. Á sama tíma kemur út veglegt af- mælisrit um sögu Litla leikklúbbsins. „Það er á leiðinni í prentun núna og höfum við unnið að ritun bókarinnar síðustu tvö ár.“ Þá er í deiglunni að setja upp ís- firska revíu í haust. „Skáldin á staðn- um hafa setið sveitt við skriftir und- anfarið.“ Það verður á einhvers konar fjáröflunarkvöldi en vinnuheit- ið á henni er kvöldstund með LL. Að öllum líkindum verður matseðillinn í anda ársins 1965. Afmælishringurinn klárast með uppsetningu á barnaleikritinu Línu langsokk árið 2016, en það var fyrsta leikritið sem Litli leikklúbburinn setti upp. Steingrímur er bjartsýnn á fram- tíðina en bendir á að leikhúsið þurfi að keppa aðeins við sófann sem vilji toga í fólk en upp til hópa séu Vestfirðingar duglegir að sækja leiksýningar í leik- húsinu enda skemmtunin sem þar býðst í hæsta gæðaflokki. Búningar Hluti leikaranna í Litla leikklúbbnum með búninga í uppfærslunni á Kallarðu þetta leikrit?! Æfing Leikararnir á æfingu. „Við erum dugleg að fá ungt fólk inn í starfið og erum í miklu samstarfi við grunnskólann.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2015 Gripur marsmánaðar á Þjóðminja- safni Íslands er sólskífa frá fyrri hluta 19. aldar frá Núpum í Ölfusi. Þetta er trékringla með látúns- skífu þar sem markaðar eru stundir sólarhringsins. Henni er skipt í 24 geira sem síðan voru helmingaðir og aftur skipt til helminga. Fuglsmynd, svokallaður „flugdreki“, er efst á teini sem gengur upp úr skífunni og gegndi hlutverki áttavita. Sjálfur teinninn varpaði skugga á skífuna og sagði til um tíma dagsins. Sólskífan er alla jafna á grunnsýn- ingu safnsins en er núna og fram til 10. maí á sýningu Kristins E. Hrafns- sonar, Á veglausu hafi, í Bogasalnum. Þar varpar listamaðurinn fram hug- myndum um það hvernig maðurinn hefur ávallt reynt að staðsetja sig í umhverfinu. Til að mæla það afstæða fyrirbæri sem nefnist tími hefur fólk frá önd- verðu skoðað samspil ljóss og skugga, notast við stundaglös með sandi í og búið sér til vatnsklukkur og sólskífur. Gripur mánaðarins Ljósmynd/Þjóðminjasafn Íslands Sólskífa Gripur frá fyrri hluta 19. aldar. Samspil ljóss og skugga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.