Morgunblaðið - 24.03.2015, Síða 23

Morgunblaðið - 24.03.2015, Síða 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2015 Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum. HEYRNARSTÖ‹IN Beltone First™ Snjallara heyrnartæki Nýja Beltone First™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu. Ókeypis heyrnarmælingsíðan 2004 Samfélagið gerir sí- fellt meiri kröfur til kennara. Allir foreldrar vilja góða kennara fyrir börnin sín og öll viljum við góða skóla. Mennt- un og störf kennara er sá þáttur sem mest áhrif hefur á gæði skólastarfs. Með lögum frá Alþingi árið 2008 varð nám kennara á öll- um skólastigum lengt í fimm ára meistaranám. Þar með skipuðu Ís- lendingar sér í forystusveit í mennta- málum á Norðurlöndum, ásamt Finn- um. Í takt við nýja tíma Kennaranám við Mennta- vísindasvið Háskóla Íslands (MVS) er í stöðugri endurskoðun í takt við nýja tíma. Kennarar dagsins í dag þurfa að takast á við fjölbreytt viðfangsefni í starfi sínu og vinna með margbreyti- legum nemendahópum. Samvinna kennara er nú meiri en áður og því mikilvægt að í hverjum skóla starfi saman fjölbreyttur hópur kennara með ólíka styrkleika. Í vetur hefur verið unnið að breytingum á námi grunnskólakennara sem taka mið af samfélagsþróun undanfarinna ára og breytingum á starfi kennara. Grunnskólakennaranám við MVS er nú sveigjanlegra en áður, þannig að nemendur hafa meira val og geta sótt námskeið í öðrum deildum og sviðum HÍ. Sem dæmi um sérhæf- ingu í náminu má nefna íslensku, samfélags- greinar og list- og verk- greinar. Í samræmi við áherslu Háskóla Ís- lands er nú í auknum mæli lögð áhersla á stærðfræðimenntun í kennaranámi. Í grunn- skólakennaranáminu er lögð áhersla á að nem- endur öðlist staðgóða þekkingu á kenningum, aðferðum og rann- sóknum á sviði máls og læsis. Færni í máli og læsi er mik- ilvæg undirstaða í samfélagi nú- tímans. Auk þekkingar og færni sem nú- tímafólki er nauðsynleg, eiga skólar jafnframt ríkan þátt í að móta viðhorf og gildi samfélagsins. Kennaranámið tekur mið af þróun samfélags þar sem líf og aðstæður barna hafa tekið örum breytingum á skömmum tíma. Í kennaranámi er lögð áhersla á að efla vitund um gildi óformlegs náms og samfellu í námi barna, þar sem virkni, réttindi og þátttaka nemenda er í fyr- irrúmi. Kennarar framtíðarinnar þurfa að vera vakandi fyrir tækninýj- ungum og samfélagsbreytingum en um leið gagnrýnir á þau fjölmörgu áreiti sem börn, foreldrar og skólar standa frammi fyrir. Samhliða inn- leiðingu kennsluaðferða sem taka mið af flókinni tækni og þróun samfélags- miðla er kennaranámið vettvangur fyrir ígrundun og umræður. Góðir atvinnumöguleikar Í þeim löndum sem árangur nem- enda er bestur skv. alþjóðlegum við- miðum og þar sem jöfnuður og lífs- gæði eru jafnframt hvað mest, er litið á menntakerfið sem mikilvægan áhrifavald. Við Háskólann í Tampere í Finnlandi er kennaranám eftirsótt- asta námið við skólann. Síðastliðið haust sóttu um 1.500 manns um grunnskólakennaranám en einungis 80 fengu inngöngu. Svipaða sögu er að segja um leikskólakennaranámið. Menntavísindasvið HÍ menntar kennara fyrir leik-, grunn- og fram- haldsskóla, auk annarra stétta sem koma að menntun og uppeldi ungs fólk, svo sem tómstundafræðinga og íþróttaþjálfara. Í nýlegri könnun Fé- lagsvísindastofnunar HÍ var haft samband við brautskráða nemendur ári eftir að þeir luku námi. Þar kemur fram að 98% þátttakenda sem út- skrifast höfðu frá MVS höfðu fengið vinnu. Námið er fjölbreytt og at- vinnumöguleikar að námi loknu góð- ir. Kennaranám í nútímasamfélagi Eftir Jóhönnu Einarsdóttur » Samvinna kennara er nú meiri en áður og því mikilvægt að í hverjum skóla starfi saman fjölbreyttur hóp- ur kennara með ólíka styrkleika. Jóhanna Einarsdóttir Höfundur er forseti Mennta- vísindasviðs Háskóla Íslands. Viðskiptavinur Dróma (áður Frjálsi fjárfestingabankinn) sem ég þekki til fékk í síðustu viku, eftir margra ára baráttu, leiðréttingu á láni sínu. Það var eftir að málið var komið í héraðsdóm og búið að tilkynna það til Fjármálaeftir- litsins. Í aðdraganda leiðréttingarinnar var viðkomandi búinn að leita álits fróðra manna og leggja í talsverðan kostnað en svo virðist sem lögfræðingar skila- nefndar Dróma sem nú er Lög- fræðistofan Kvasir hafi fengið að leika lausum hala allt frá árinu 2009 í boði norrænu velferðarstjórnarinnar. Það verður að rannsaka hvernig stjórnvöldum tókst að forklúðra þess- um málum. (Athugið að sögnin að for- klúðra er nýyrði frá Árna Páli.) Hvernig í ósköpunum tókst að skapa þetta umhverfi og koma fólki í þessa stöðu? Var þetta vankunnátta, skeytingarleysi eða heimska, eða hafði þetta eitthvað með ESB að gera? Voru kannski stjórnvöld á þessum tíma of upptekin af öðru og gleymdu fólkinu í landinu? Þetta minnir helst á leik- fléttur í ljótum stríðsleik þar sem fólki er haldið í gíslingu. Það er fólk, jafnvel hundruðum ef ekki þúsundum saman, sem hefur gefist upp fyrir þessu Dróma-skrímsli og þessari mann- vonsku því stjórnvöld á þeim tíma virt- ust heltekin af öðrum málum. Til hvers þarf þing- menn ef þeir klúðra svona einföldum málum? Það er alveg kristalklárt að það var hægt að fara aðrar leiðir í lánamálum heimilanna. Ég bendi á leið Görans Person, Lilju Mósesdóttur og Hags- munasamtaka heim- ilanna, en fleiri mætti nefna. Það er alveg 100% skýrt að þetta verður að rannsaka því þótt aðeins 50% af því sem Sigurður G. Guð- jónsson, Ólafur Arnarson og Víg- lundur Þorsteinsson halda fram um þessi mál sé satt og rétt þá er full ástæða til rannsóknar. Nú langar mig til þess að biðja RÚV, sem er jú í eigu þjóðarinnar, að rannsaka SPRON og Dróma-glæpinn frá upphafi og hvíla aðeins þessar endalausu pælingar um lögregluna, hríðskotabyssurnar og einhver lekamál sem engu máli skipta. Ég hvet RÚV til að standa með fólkinu í landinu. Það þarf að taka strax á þessu, og þótt fyrr hefði verið. Að lokum, það tapa allir á því að ekki var tekið strax af festu á lána- málum heimilanna. „Forklúður“ í boði stjórnvalda Eftir Halldór Úlfarsson Halldór Úlfarsson »Hvernig í ósköp- unum tókst að skapa þetta umhverfi og koma fólki í þessa stöðu? Höfundur býr í Mosfellsbæ.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.