Morgunblaðið - 24.03.2015, Side 24

Morgunblaðið - 24.03.2015, Side 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2015 Kyrrðardagar eru samvera fólks sem vill leita Guðs í kyrrð. Oftast eru kyrrð- ardagar ein helgi, en þó geta kyrrðardagar verið allt að viku og jafnvel tíu dögum. Oftast er dvalið utan skarkala borgarinnar, en þó geta kyrrð- ardagar verið t.d. einn dagur í safnaðarheim- ili eða kirkju bæði í borg og sveit. Á kyrrðardögum talar fólk ekki saman, slekkur gjarnan á símum sínum og reynir að vera ekki á samskiptamiðlum. Í Þýskalandi þar sem kyrrðardagahefðin er mjög sterk eru yfir 500 kyrrðarsetur, en hér á Íslandi eigum við ekki neitt sérstakt kyrrðarsetur, því miður. Langflestir kyrrðardagar á Ís- landi hafa verið í Skálholti, sem er einstakur staður til að dvelja á í kyrrð, í útiveru og við helgihald. Á kyrrðardögum er gott að hafa Biblíuna við höndina, blaða í henni og lesa orð sér til uppbyggingar. Þegar ég hef leitt kyrrðardaga nota ég Biblíuna mikið við íhuganir, sem eru nokkrum sinnum yfir dag- inn. Mér finnst gott að nota orð úr Davíðssálmum til að kyrra hugann eins og t.d. orð úr 37 sálmi: „Ver hljóð frammi fyrir Guði og vona á hann“ eða eins og segir í sumum erlendum þýðingum: „Vertu hljóð frammi fyrir Guði og dokaðu við!“ Ein elstu íhugunarorð kristninn- ar eru hin svokallaða Jesúbæn eða bæn hjartans: Jesús Kristur, Guðs sonur – mis- kunna þú mér. Í Markúsarguðspjalli er okkur sögð sagan af því þeg- ar Bartímeus, blindur beiningamaður, sat við veginn er Jesús fór framhjá og hann hróp- aði: „Sonur Davíðs, Jes- ús, miskunna þú mér!“ Jesús læknaði Bartí- meus og sagði við hann: „Far þú, trú þín hefur bjargað þér.“ (Mark. 10.46-52.) Auk þess að íhuga einstök vers Biblíunnar hef ég oft notað biblíusögur á kyrrðardögum. Þá les ég söguna og læt svo fólk taka þátt í sögunni og lifa sig inn í ákveðnar persónur hennar. Allt þetta er gert í kyrrð og með lokuð augun svo einbeit- ingin verði betri. Á Hólum í Hjaltadal höfum við lengi látið okkur dreyma um að halda kyrrðardaga, en af því hefur því miður ekki orðið enn. Nú stend- ur til að hafa kyrrðardaga á þess- um fornhelga stað síðustu helgina í apríl. Hefjast þeir á föstudegi kl. 18:00 og verða fram yfir hádegi á sunnudag. Góður og sérstaklega hollur matur verður á boðstólum allan tímann og gisting í uppá- búnum rúmum. Þeim sem vilja taka þátt í kyrrðardögum á þessum ein- staka stað er velkomið að hafa sam- band við mig, netfangið holab- iskup@kirkjan.is. Auk þess sem Hólar eru helgur staður þá er nátt- úrufegurð þar einstök og göngu- leiðir um skóginn hjálpa til við að íhuga lífið og tilveru okkar í sköpun Guðs. Hvað eru kyrrðardagar? Eftir Solveigu Láru Guðmundsdóttur Solveig Lára Guðmundsdóttir » Á kyrrðardögum tal- ar fólk ekki saman, slekkur gjarnan á sím- um sínum og reynir að vera ekki á samskipta- miðlum. Höfundur er vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal. Ég vil gera athugasemd við það að það gerist of oft hjá RÚV að þegar leikin eru lög með kór og í laginu er einsöngur þá gleymist að geta nafns einsöngv- arans. Sama er þegar lög eru spiluð inni í þætti, þá er ekki getið um flytj- endur. Þetta finnst mér galli á annars góðri dagskrá hjá RÚV. Vona að þetta verði tekið til greina. Birgir Sveinarsson. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Ábending til RÚV RÚV Það er útvarp allra landsmanna. mbl.is alltaf - allstaðar Krabbameinsfélag Ís- lands hefur síðustu vikur haldið uppi stanslausum árásum á Bláa naglann með aðstoð ýmissa stofn- ana og félagasamtaka í samfélaginu. Árásirnar eru tilkomnar vegna átaks Bláa naglans við krabbameini í ristli þar sem öllum þeim sem verða 50 ára á næstu þremur árum átti að senda ókeypis EZ Detect-heimapróf sem auðvelt er að nota. Í kjölfar árásanna blés Krabbameinsfélag Íslands loksins til sóknar gegn ristilkrabbameini – sóknar sem Blái naglinn setti af stað. Í febrúar 2011 greindist ég með krabbamein í blöðruhálskirtli – einn af yfir 200 íslenskum karlmönnum sem greindust það ár. Fimmtíu þeirra létust. Ég var einn hinna heppnu. Í mörg ár á undan hafði ég átt í erfiðleikum með að pissa. Ég hafði ekki hugmynd um að erf- iðleikar við þvaglát væru eitt af fyrstu einkennum á krabbameini í blöðruhálskirtli. Fljótlega eftir að ég greindist ákvað ég að fylgjast með sjálfum mér í ferlinu í átt að lækningu og tal- aði við myndavélina um hvert skref sem ég steig. Ég vildi vekja íslenska karlmenn til vitundar um þennan sjúkdóm sem fellir um fimmtíu karl- menn á hverju ári. Þessar upptökur urðu meginefnið í heimildarmynd- inni Blái naglinn sem frumsýnd var á RÚV 1. apríl 2012. Eftir þessa reynslu ákvað ég að vekja íslenska karlmenn og sam- félagið allt til vitundar um krabba- mein karla en samtals deyja u.þ.b. 104 karlmenn á Íslandi vegna krabbameins í blöðruhálskirtli og ristli. Ég get stoltur sagt að Blái naglinn hefur sett af stað vitund- arvakningu um karlmenn og krabbamein, safnað peningum til kaupa á lækningatækjum og til vís- indarannsókna á krabbameini hjá karlmönnum. Allt mitt starf í kringum Bláa naglann hef ég unnið alfarið í sjálfboða- vinnu. Ársreikninga félagsins má finna á www.blainaglinn.is fimmtudaginn 26. mars. Tugir ein- staklinga hafa komið að starfinu með ýms- um hætti og gert Bláa naglann að því sem hann er í dag. 1. júní í fyrra fékk ég fund með forstjóra og formanni Krabba- meinsfélags Íslands – sex vikum eft- ir að ég óskaði eftir honum. Á fund- inum kynnti ég meðal annars málþing um krabbamein karla, sem ég var að undirbúa og heimaprófin EZ Detect. Bæði formaðurinn og forstjórinn vissu því nákvæmlega hvað til stóð hjá Bláa naglanum og gátu því strax brugðist við. Þar var samþykkt að grafa stríðsöxina. En þau biðu þangað til átakið hófst og þá voru byssurnar hlaðnar, miðað á Bláa naglann og skothríðin hófst. Það átti að kafnegla Bláa naglann. Því er haldið fram að heimaprófið EZ Detect sé ekki nægilega næmt til að greina krabbamein í ristli. Í bæklingi sem fylgir prófinu er skýrt tekið fram að prófið komi ekki í stað læknisskoðunar og geti gefið rangar vísbendingar. Þær leiðbeiningar eru þær sömu og Krabbameinsfélag Ís- lands gefur konum sem þreifa sjálf- ar á brjóstum sínum í leit að brjósta- krabbameini. Á mannamáli þýðir þetta að kona sem þreifar brjóst sín og finnur ekki neitt sem bendir til krabbameins þarf að fara í rann- sóknir til að vera örugg. Ítrekuð skilaboð Krabbameinsfélagsins um sjálfsskoðun kvenna hefur aukið vit- und kvenna um brjóstakrabbamein og hvatt þær til að fara í skoðun. Á sama hátt vildi Blái naglinn vekja at- hygli á ristilkrabbameini þar sem skilaboðin voru; taktu prófið en farðu til læknis til frekari skoðunar þrátt fyrir að prófið sýni neikvæða niðurstöðu. Landlæknisembættið var ein þeirra stofnana sem Krabbameins- félag Íslands setti á víglínuna en frá embættinu kom harðorð yfirlýsing sem sagði að ekki væri hægt að treysta heimaprófi Bláa naglans. Það vekur athygli mína að þessi sömu heimapróf og embættið gagn- rýnir eru seld í íslenskum apótekum. Hvers vegna hefur Landlæknisemb- ættið ekki bannað sölu á þessum prófum? Krabbameinsfélag Íslands er eitt virtasta félag landsins og hefur unn- ið þrekvirki með vitundarvakningu á krabbameini hjá konum. Sú vitund- arvakning hefur verið bleik. Blái naglinn er grasrótarsamtök með einföld markmið: Að vekja athygli á krabbameini hjá körlum og hvetja stjórnvöld til að hefja reglulega leit að krabbameini hjá körlum líkt og gert er hjá konum. Þess má geta að ég var hvatamaður að þingsálykt- unartillögu Jóns Gunnarssonar um að hefja skimun fyrir blöðruháls- kirtilskrabbameini. Árásir Krabbameinsfélags Ís- lands á Bláa naglann eru góðgerða- pólitík af verstu sort – þar sem öllum aðferðum er beitt til að ná í peninga frá almenningi, fyrirtækjum og stjórnvöldum. Skilaboðin eru ein- föld; þið getið ekki treyst Bláa nagl- anum – treystið okkur og gefið okk- ur peninga. Góðgerðapólitíkina upplifði ég í fyrsta skipti á forsýningu heimild- armyndarinnar Blái naglinn í Hörp- unni í mars 2012. Þar voru nokkrir félagar í Framför að selja Bláa nagl- ann fyrir sýningu myndarinnar. Ragnheiður Haraldsdóttir forstjóri Krabbameinsfélags Íslands reiddist þegar hún sá að verið var að selja Bláa nagla í mottumarsmánuðinum – þetta væri hennar mánuður. Ragn- heiður hótaði því að ná í frú Vigdísi Finnbogadóttur verndara Krabba- meinsfélags Íslands og yfirgefa Hörpuna ef ekki yrði hætt að selja Bláa naglann á staðnum. Salan var stöðvuð og frú Vigdís fékk að horfa á forsýninguna. Fjölmargir hafa síðustu daga hvatt mig til að svara árásum Krabbameinsfélags Íslands á Bláa naglann og það hef ég nú gert. Ég ætla að halda áfram að berjast fyrir vitundarvakningu á krabbameini í körlum og mun á næstu dögum óska formlega eftir upplýsingum úr bók- haldi Krabbameinsfélags Íslands um það hvort og þá hvernig fjármunir sem félagið safnar í nafni karlmanna nýtist þeirra baráttu. Ég óska Krabbameinsfélagi Ís- lands alls hins besta í framtíðinni en vona að þetta áhrifamikla og mik- ilvæga félag stundi baráttu sína af heiðarleika en ekki með árásum. Reynt að kafnegla Bláa naglann Eftir Jóhannes V. Reynisson » Það vekur athygli mína að þessi sömu heimapróf og embættið gagnrýnir eru seld í ís- lenskum apótekum. Jóhannes V. Reynisson Höfundur er frumkvöðull Bláa naglans. Lífrænt Ríkt af Nitric Oxide og Sulforaphane Rauðrófu- og brokkolíduft ásamt spínati, gulrótum, steinselju og káli Fyrir eðaeftiræfingar Mikil orkaognæring Bragðgóðblanda 40 skammtar Ein teskeiðhrist í vatneða safa Fæst íapótekum,heilsubúðum,Krónunni, HagkaupogNettó.Umboð:Celsus. Frábærtí kúrinn!5:2

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.