Morgunblaðið - 24.03.2015, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2015
Nú standa Músíktilraunir í Hörpu,
tvö undankvöld búin og í kvöld er
það þriðja. Alls skráðu 39 hljóm-
sveitir sig til leiks að þessu sinni,
en keppnin er nú haldin í 33. sinn.
Undankeppnin fer fram í Norður-
ljósasal Hörpu og hefst kl. 19.30.
Tíu hljómsveitir takast á í kvöld
um sæti í úrslitum sem haldin
verða næstkomandi laugardag en í
undanúrslitum velur salur eina
hljómsveit og sérstök dómnefnd
aðra. Keppt er um hljóðverstíma
að vanda auk fleiri verðlauna, en
fyrstu verðlaun eru tuttugu hljóð-
verstímar í hljóðverinu Sundlaug-
inni með hljóðmanni, önnur verð-
laun tuttugu tímar í Stúdíó
Paradís ásamt hljóðmanni og
þriðju verðlaun tuttugu tímar í
Aldingarðinum ásamt hljóðmanni.
Úrslitakvöldið velur salur líka
Hljómsveit fólksins og fær sú upp-
tökutæki frá Tónastöðinni meðal
annars.
arnim@mbl.is
Þriðji í Músíktilraunum
C A L I C U T Auðunn Lúthersson og Þórdís Björk Þor-
finnsdóttir skipa C A L I C U T. Auðunn er 22 ára og úr
Hafnarfirði en Þórdís 24 ára, úr Reykjavík. Þau segjast
undir áhrifum nútíma R&B, raftónlistar og og hip hop.
Sara Mosfellingurinn Sara Geirs-
dóttir kemur ein fram syngur og
vélar um tölvur. Hún er 21 árs göm-
ul og segist hafa verið ástfangin af
tónlist frá því hún man eftir sér.
MSTRO Reykvíkingurinn Stefán
Páll Ívarsson, er allt í öllu í MSTRO;
syngur og spilar á gítar, MIDI-
hljómborð og -pad og Apogee Duet
2. Stefán er 24 ára.
Fjöltengi Fjöltengi er hljómsveit fjögurra sautján til
nítján ára félaga úr Kópavogi, skipuð þeim Aðalsteini
Sigmarssyni, Þorgeiri Björnssyni, Hugin Goða Kolbein-
syni og Fannari Pálssyni. Þeir segjast spila pönk.
Stígur Hljómsveitin Stígur leikur lög Árna Freys Har-
aldssonar við texta langafa hans. Með Árna í sveitinni
eru Dávur í Dalí, Gunnlaugur Atli Tryggvason, Ingi-
björg Aldís Hilmisdóttir og Ingimundur Óskar Jónsson.
Frenzy Tríóið Frenzy er úr Reykjavík og Hafnarfirði,
skipað þeim Nökkva Gíslasyni, Magna Frey Þórissyni
og Degi Bjarka Sigurðssyni hljómborðsleikara. Dagur
er tvítugur en Nökkvi og Magni 25 ára.
Hughrif Liðsmenn hughrifa eru Hörður Alexander Egg-
ertsson, Sóley Sævarsdóttir Meyer , Kristján Gíslason,
Axel Örn Sæmundsson, Þórir Gauti Pálsson , Guðjón
Axel Jónsson Njáll Laugdal Árnason.
SILVER KILLER Alt-rokksveitin SILVER KILLER er úr
Grafarvoginum skipuð þeim Árna Sigurjónssyni, Árna
Frey Þorsteinssyni, Elvari Þór Elvusyni og Kristbjörgu
Láru Gunnarsdóttur. Þau eru 24 og 25 ára.
John Doe Skagasveitina John Doe skipa Sævar Snorra-
son gítarleikari og söngvari, Arnar Freyr Sævarsson
gítarleikari, Helgi Sigurðsson bassaleikari og Hannes
Marvin Óðinsson trommuleikari. Þeir eru 25 ára.
Sykurpúðarnir Sykurpúðarnir eru úr Rangárþingi og
heita Birta Rós Hlíðdal, Karítas Björg Tryggvadóttir,
Hilmar Úlfarsson, og Þormar Elvarsson. Þormar er
fimmtán ára, en hin eru sextán.
Bandarískan gítarstjarnan Al Di
Meola verður meðal gesta á Guitar-
ama-hátíð Björns Thoroddsen gítar-
leikara í Háskólabíói þriðja október í
haust. Di Meola hefur í áratugi verið
meðal þekktustu gítarleikara sam-
tímans, með rætur í djassi, fjúsjón
og latínó tónlist, og á hann sér fjölda
aðdáenda víða um lönd.
Meðal annarra gesta er mjög
þekktur bandarískur blúsgítarleik-
ari, Robben Ford, sem hefur verið
tilnefndur til fimm Grammy-
verðlauna, Ítalinn Peo Alfonsi og þá
leikur blúsarinn Brynhildur Odds-
dóttir á gítar fyrir hönd Íslands, auk
gestgjafans, Björns.
„Mikill viðburður“
Björn hefur á undanförnum árum
staðið fyrir Guitarama-hátíðum í
Kanada, Bandaríkjunum og Noregi,
við sívaxandi vinsælldir, og njóta
gestir þess að sjá slynga gítarista
með bakgrunn í ólíkum tegundum
tónlistar leika af fingrum fram.
Björn segir sífellt auðveldara að fá
stór nöfn úr heimi gítarleiksins til að
taka þátt í dagskránni og er stað-
festing á fyrstu komu Di Meola til
Íslands dæmi um það.
„Þetta er mikill viðburður, að Di
Meola leikur hér á landi. Þeir Ford
eru báðir miklar kempur,“ segir
Björn. Hann hefur stýrt gítarhátíð í
Winnipeg sem nýtur þar mikilla vin-
sælda og er uppselt á árlega. „Ég
hef líka gert þetta í Denver í Banda-
ríkjunum, í Noregi og um miðjan
apríl verð ég með hátíð í Edmonton.
Ég hitti ýmsar stjörnur á þessum
uppákomum, þetta kom upp á borðið
og þeir Ford og Di Meola eru báðir
spenntir fyrir því að koma til Ís-
lands.“
Björn segir að á Guitarama leiki
menn ekki saman heldur er hver
með sitt prógramm. „Þetta er
skemmtun og mikill léttleiki yfir efn-
isskránni,“ segir hann. „Mitt trúboð
er að sýna fram á hvað gítarinn er
geggjað hljóðfæri! Á hátíðinni kem-
ur fram fólk með allskonar bak-
grunn, trúbadorar sem aðrir, svo
sem djass- og blúsleikarar.“
Þess má geta að Björn og Al Di
Meola sendu báðir frá sér disk með
Bítlalögum á síðasta ári. efi@mbl.is
AFP
Gítarstjarna Al Di Meola hefur um langt árabil verið meðal vinsælustu
gítarhetja, ekki síst í heimi samtímadjassins. Hann er eftirsóttur einleikari .
Al Di Meola kemur
fram á Guitarama
Góðir gestir á gítarhátíð Björns
Björn Thoroddsen Robben Ford
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fim 26/3 kl. 19:00 aukas. Mið 22/4 kl. 19:00 Fös 8/5 kl. 19:00
Fös 27/3 kl. 19:00 aukas. Fim 23/4 kl. 19:00 Lau 9/5 kl. 19:00
Sun 29/3 kl. 19:00 10.k Fös 24/4 kl. 19:00 Sun 10/5 kl. 19:00
Mið 8/4 kl. 19:00 11.k Sun 26/4 kl. 19:00 Mið 13/5 kl. 19:00
Fim 9/4 kl. 19:00 12.k Mið 29/4 kl. 19:00 Fim 14/5 kl. 19:00
Lau 11/4 kl. 19:00 aukas. Fim 30/4 kl. 19:00 Fös 15/5 kl. 19:00
Sun 12/4 kl. 19:00 13.k Sun 3/5 kl. 19:00 Sun 17/5 kl. 19:00
Fim 16/4 kl. 19:00 14.k Þri 5/5 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00
Fös 17/4 kl. 19:00 15.k Mið 6/5 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00
Sun 19/4 kl. 19:00 aukas. Fim 7/5 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 28/3 kl. 13:00 Sun 12/4 kl. 13:00 Lau 25/4 kl. 13:00
Sun 29/3 kl. 13:00 Lau 18/4 kl. 13:00 Sun 26/4 kl. 13:00
Lau 11/4 kl. 13:00 Sun 19/4 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi er mætt á Stóra sviðið
Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið)
Þri 24/3 kl. 20:00 aukas. Fim 16/4 kl. 20:00 10.k Fim 7/5 kl. 20:00 18.k
Mið 25/3 kl. 20:00 aukas. Fös 17/4 kl. 20:00 11.k Fös 8/5 kl. 20:00 19.k
Fim 26/3 kl. 20:00 3.k. Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Lau 9/5 kl. 20:00 20.k.
Fös 27/3 kl. 20:00 4.k. Mið 22/4 kl. 20:00 12.k Sun 10/5 kl. 20:00 21.k
Sun 29/3 kl. 20:00 aukas. Fim 23/4 kl. 20:00 13.k Þri 12/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 8/4 kl. 20:00 5.k. Fös 24/4 kl. 20:00 aukas. Mið 13/5 kl. 20:00 22.k.
Fim 9/4 kl. 20:00 6.k. Sun 26/4 kl. 20:00 14.k Fim 14/5 kl. 20:00 23.k.
Lau 11/4 kl. 20:00 7.k. Mið 29/4 kl. 20:00 15.k Fös 15/5 kl. 20:00 aukas.
Sun 12/4 kl. 20:00 8.k. Fim 30/4 kl. 20:00 16.k Sun 17/5 kl. 20:00
Þri 14/4 kl. 20:00 aukas. Sun 3/5 kl. 20:00 17.k
Mið 15/4 kl. 20:00 9.k Mið 6/5 kl. 20:00 aukas.
Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Þri 24/3 kl. 20:00 Fös 10/4 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00
Lau 28/3 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Beint í æð (Stóra sviðið)
Lau 28/3 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00
Fös 10/4 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00
Sprenghlægilegur farsi
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.