Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2015, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2015, Blaðsíða 3
J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Kringlan 4–12 103 Reykjavík www.reitir.is 575 9000 Almennt útboð á hlutum í Reitum fasteignafélagi hf. hefst miðvikudaginn 25. mars kl. 16.00 og lýkur föstudaginn 27. mars kl. 16.00 Arion banki hyggst selja 13,25% í félaginu Markmið seljanda er annars vegar að útboðið geri félaginu kleift að uppfylla skilyrði Nasdaq Iceland um dreifingu hlutabréfa sem tekin eru til viðskipta á Aðalmarkaði og hins vegar horfir seljandi til þess að selja eign sína á sem hagstæðustu verði. Tekið er við áskriftum rafrænt á vef Arion banka, arionbanki.is Stærð útboðsins nemur 100.000.000 hlutum og er söluandvirði þeirra að lágmarki 5.550 milljónir króna. Tvær áskriftarleiðir eða tilboðsbækur eru í boði en ákvörðun um stærð tilboðsbóka mun taka mið af eftirspurn í útboðinu, bæði hvað varðar verð og magn. Meginregla við úthlutun verður að taka þeim áskriftum sem berast á hæsta gengi. Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðs verði birtar opinberlega 30. mars 2015. Útboðið er með fyrirvara um að hlutir í félaginu verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Slíkt samþykki birtir Nasdaq Iceland ásamt tilkynningu um fyrsta mögulega viðskiptadag með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara. Eindagi kaupverðs er áætlaður 7. apríl 2015 og stefnt að því að viðskipti geti hafist á Aðalmarkaði 9. apríl 2015. Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um félagið og skilmála útboðsins í lýsingu hlutabréfa sem félagið birti 17. mars 2015 og er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti. Lýsinguna má nálgast rafrænt á reitir.is/fjarfestar og arionbanki.is. Hana má einnig nálgast innbundna á skrifstofu Reita í Kringlunni 4-12 í Reykjavík og hjá Arion banka í Borgartúni 19 í Reykjavík. Nánari upplýsingar Fyrirtækjaráðgjöf fjárfestingabankasviðs Arion banka hf. hefur umsjón með útboðinu og því ferli að fá hlutabréf og skuldabréf félagsins tekin til viðskipta. Aðstoð vegna útboðsins má nálgast hjá fyrirtækjaráðgjöf og markaðsviðskiptum fjárfestingabankasviðs Arion banka eða verðbréfa- og lífeyrisþjónustu í síma 444-7000 og tölvupóstfangi reitirutbod@arionbanki.is. Tilboðsbók A > Hver áskrift að andvirði 100.000–10.000.000 kr. > Verðbil 55,5–63,5 kr./hlut > Eitt endanlegt verð, jafnt eða lægra en í B Tilboðsbók B > Áskrift að andvirði yfir 10.000.000 kr. > Lágmarksverð 55,5 kr./hlut > Eitt endanlegt verð, jafnt eða hærra en í A Reitir sérhæfa sig í þjónustu og rekstri atvinnuhúsnæðis með áherslu á verslunarhúsnæði, skrifstofuhúsnæði og hótelbyggingar á höfuð- borgarsvæðinu. Heildareignir Reita í árslok 2014 námu 102 milljörðum króna. Fasteignir í eigu félagsins eru um 130 talsins og nálægt 410 þúsund fermetrum að stærð. Meðal þeirra má nefna stærstan hluta Kringlunnar, Hilton Reykjavík Nordica, Icelandair hótel Reykjavík Natura, Kauphallarhúsið og nokkrar af perlum íslenskrar byggingarsögu í miðbæ Reykjavíkur. Stærstu leigutakar Reita eru Hagar, Flugleiðahótel, ríki og sveitarfélög samtals með tæpan helming tekna félagsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.