Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2015, Page 3
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Kringlan 4–12 103 Reykjavík www.reitir.is 575 9000
Almennt útboð á hlutum í Reitum fasteignafélagi hf.
hefst miðvikudaginn 25. mars kl. 16.00 og lýkur föstudaginn 27. mars kl. 16.00
Arion banki hyggst selja 13,25% í félaginu
Markmið seljanda er annars vegar að útboðið geri félaginu kleift að uppfylla skilyrði Nasdaq Iceland um dreifingu hlutabréfa sem tekin eru til
viðskipta á Aðalmarkaði og hins vegar horfir seljandi til þess að selja eign sína á sem hagstæðustu verði.
Tekið er við áskriftum rafrænt á vef Arion banka, arionbanki.is
Stærð útboðsins nemur 100.000.000 hlutum og er söluandvirði þeirra að lágmarki 5.550 milljónir króna. Tvær áskriftarleiðir eða tilboðsbækur
eru í boði en ákvörðun um stærð tilboðsbóka mun taka mið af eftirspurn í útboðinu, bæði hvað varðar verð og magn.
Meginregla við úthlutun verður að taka þeim áskriftum sem berast á hæsta gengi. Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðs verði birtar opinberlega
30. mars 2015. Útboðið er með fyrirvara um að hlutir í félaginu verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Slíkt samþykki birtir Nasdaq
Iceland ásamt tilkynningu um fyrsta mögulega viðskiptadag með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara. Eindagi kaupverðs er áætlaður 7. apríl
2015 og stefnt að því að viðskipti geti hafist á Aðalmarkaði 9. apríl 2015.
Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi
Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um félagið og skilmála útboðsins í lýsingu hlutabréfa sem félagið birti 17. mars 2015 og er
sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti. Lýsinguna má nálgast rafrænt á reitir.is/fjarfestar og arionbanki.is. Hana má einnig nálgast innbundna
á skrifstofu Reita í Kringlunni 4-12 í Reykjavík og hjá Arion banka í Borgartúni 19 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar
Fyrirtækjaráðgjöf fjárfestingabankasviðs Arion banka hf. hefur umsjón með útboðinu og því ferli að fá hlutabréf og skuldabréf félagsins tekin til
viðskipta. Aðstoð vegna útboðsins má nálgast hjá fyrirtækjaráðgjöf og markaðsviðskiptum fjárfestingabankasviðs Arion banka eða verðbréfa-
og lífeyrisþjónustu í síma 444-7000 og tölvupóstfangi reitirutbod@arionbanki.is.
Tilboðsbók A
> Hver áskrift að andvirði 100.000–10.000.000 kr.
> Verðbil 55,5–63,5 kr./hlut
> Eitt endanlegt verð, jafnt eða lægra en í B
Tilboðsbók B
> Áskrift að andvirði yfir 10.000.000 kr.
> Lágmarksverð 55,5 kr./hlut
> Eitt endanlegt verð, jafnt eða hærra en í A
Reitir sérhæfa sig í þjónustu og rekstri atvinnuhúsnæðis með áherslu
á verslunarhúsnæði, skrifstofuhúsnæði og hótelbyggingar á höfuð-
borgarsvæðinu. Heildareignir Reita í árslok 2014 námu 102 milljörðum
króna. Fasteignir í eigu félagsins eru um 130 talsins og nálægt 410
þúsund fermetrum að stærð. Meðal þeirra má nefna stærstan hluta
Kringlunnar, Hilton Reykjavík Nordica, Icelandair hótel Reykjavík Natura,
Kauphallarhúsið og nokkrar af perlum íslenskrar byggingarsögu í miðbæ
Reykjavíkur. Stærstu leigutakar Reita eru Hagar, Flugleiðahótel, ríki og
sveitarfélög samtals með tæpan helming tekna félagsins.