Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2015, Blaðsíða 36
Forðum var aðalfermingargjöfin græjur, magnari, plötu-spilari og hátalarar og jafnvel tvöfalt kassettutæki. Þáspáðu menn líka mikið í hljómgæði, en þegar sam-
byggðu tækin komu á markað, sem voru alla jafna mun
ódýrari og hentugri, dvínaði áhugi á slíku, enda var ekki
bara verið að spara í snúrum, heldur náðist líka sparnaður
með því að nota ódýrara innvols í tæki og ekki síst í að vera
með ódýrari hátalara, stundum
svo ódýra að þeir kostuðu nánast
ekki neitt þegar dæmið var reikn-
að.
Vínyll var málið á þeim tíma og
miklu skipti að vera með góðan
plötuspilara og með gott pickup.
Síðan tók geisladiskurinn við og
plötuspilarar hurfu af heimilum
og plötusafnið smám saman líka.
Blómaskeið geisladisksins náði
hámarki 2004, en skarpt dró úr sölunni – á áratug hefur sal-
an minnkað um meira en helming og greinilegt að diskurinn
er feigur – það er svo miklu einfaldara að sækja tónlist á
netið eða þá að streyma henni sem er að verða ríkjandi leið
til að hlusta á tónlist.
Kunnugleg saga ekki satt – þetta hafa væntanlega allri
séð sem spáð hafa í tónlist og tónlistarflutning á annað borð,
en það sem færri hafa hugsanlega gert sér grein fyrir er að
vofa gengur nú ljósum logum um heiminn – vofa vínylsins.
Sumir gefa þá skýringu að tónlist hljómi betur af vínyl en
geisladiski, hvað þá ef henni er streymt, en alla jafna er
ekki hægt að greina á milli tónlistar sem spiluð er af órisp-
aðri vínylplötu og af geisladiski, hvað sem hver segir. Í takt
við það að tónlist verður óefnisleg verður eftirsóknarverðara
að eiga tónlist á vínyl, sem er meiri gripur og eigulegri en
geisladiskur, hvað þá sem Spotify-straumur eða kippa af
mp3- eða flac-skrám.
Samstarfsmaður minn nefndi það á dögunum að dóttir
hans hefði fengið nokkuð af vínylplötum í afmælisgjöf, sem
sýnir kannski að yngri kynslóð hefur hrifist af vínylnum, en
til að spila plötur þá þarf líka plötuspilara, nema hvað, og
þar er komin fermingargjöf sem vit er í.
Ekki er svo langt síðan að erfitt var að fá spilara, nema
þá hand-
gerðar græj-
ur úr úrvalsvið og
eðalmálmum sem kostuðu á við jap-
anskan smábíl. Á síðustu árum hefur
ódýrum plötuspilurum, sem sumir eru býsna góðir, hins-
vegar fjölgað umtalsvert og hægt að fá slíka í Elko, Sjón-
varpsmarkaðnum og MAX-raftækjum, svo dæmi séu tekin.
Það er líka hægt að fá dýrari plötuspilara víða, en ódýrir
spilara eru vanalega á 15-20 þúsund, en dýrari 30-60 þúsund
og þaðan af dýrari, stundum miklu dýrari.
Eitt þarf að hafa í huga þegar keyptur er spilari og það
er að úttakið á spilurum er alla jafna svonefnt Phono-merki
sem varpa þarf í Line Level (sumir kalla það Aux) merki til
að hægt sá að nota það. Til þess þarf formagnara, en á ár-
um áður voru þeir almennt innbyggðir í magnara (þá er sér-
stakt Phono-tengi (RCA-tengi) aftan á magnaranum). Eftir
því sem plötuspilarar hurfu af heimilum sáu magn-
araframleiðendur sér leik á borði og slepptu Phono-
inntakinu og því þarf annað tveggja: Að kaupa sérstakan
formagnara, eða spilara með innbyggðan formagnara sem
þeir eru allmargir með. Ekki klikka á þessu og gætið líka að
því að það sé almennilegur útgangur á spilaranum (RCA-
tengi).
Sem dæmi um hvort tveggja, ódýra en þó
prýðilegan spilara og annan dýrari nefni ég spil-
ara sem ég rakst á í Hljómsýn í Ármúlanum;
annars vegar Voxoa T30, sem kostar 20.000 kr.,
og Pro-Ject Elemental, sem kostar nokkuð meira,
44.495 kr. með formagnara og 37.995 kr. án hans.
Hægt er að fá báða spilarana með innbyggða formagnara og
báða með USB-tengi, en nokkuð skilur á milli í gæðum eins
og verðmunurinn gefur til kynna.
Voxoa T30 er kínversk framleiðsla, alsjálfvirkur spilari
með tveimur hraðastillingum, 45 og 33 ¹/³. Á baki spilarans
er hnappur til að skipta á milli Phono- eða Line-úttaks
(kveikja á formagnaranum). Hann er 350 x 348 x 95,4 mm
að stærð með loki. Hljóðdósin í honum (pickup) er frá Au-
dio-Technica (AT3600LAX) og þokkaleg sem slík. Til er dýr-
ari Voxoa-spilari, T50, sem kostar 38.800.
Pro-Ject Elemental er austurrískur og öllu meiri spilari
og einnig skemmtilegri útlits, þó að það sé í sjálfu sér kost-
ur að vera með loka á spilaranum (hægt verður að kaupa
lok á hann sérstaklega). Hann er líka beltisspilari og mjög
hljóðlátur. Flökt í honum er mun minna en í Voxoa-
spilaranum, enda er náttúrusteinn í botninum til að fyr-
irbyggja titring. Tengi eru gullhúðuð, ef þér finnst það
skipta máli, og innbyggði magnarinn er heldur betri, hljóm-
ur hreinni. Ekki er hægt að skipta á milli Line- eða Phono-
útgangs á þeirri týpu sem er með innbyggðan magnara.
Hljóðdósin í honum er Ortofon OM 5E, sem er býsna góð.
VOFA VÍNYLSINS
SALA Á PLÖTUM HEFUR DREGIST MIKIÐ SAM-
AN Á SÍÐUSTU ÁRUM OG NÁNAST HORFIÐ Á
SUMUM SVIÐUM – ÞAÐ ER EF VIÐKOMANDI
PLATA VAR GEISLADISKUR EÐA STAFRÆN. SALA
Á TÓNLIST Í GEGNUM STREYMI, TIL AÐ
MYNDA SPOTIFY EÐA TÓNLIST.IS, HEFUR AFT-
UR AUKIST JAFNT OG ÞÉTT OG REYNDAR LÍKA
SALA Á TÓNLIST Á VÍNYL – VÍNYLPLATAN
SELST Æ BETUR UM ALLAN HEIM, EN ÞÁ VANT-
AR GRÆJUR TIL AÐ SPILA – PLÖTUSPILARA.
* Allmargir ódýrir plötuspilarar erulíka með USB-tengi, sem er þá ætlað
til að afrita plötur inn á tölvu, en eng-
an þekki ég sem hefur not af slíku, þó
þeir séu kannski til sem eiga svo mik-
ilvægar vínylplötur að þeir vilja gera af
þeim léleg stafræn afrit með tilheyrandi
umstangi og eftirvinnslu (klippa niður í
lög og tilheyrandi).
* Þó að vínyllinn njóti vanxandi vin-sælda er enn langt í land að vínylplötur
seljist eins vel og þær gerðu forðum
daga, það selst engin vínylplata í millj-
ónavís á heimsvísu, en safnast þegar
saman kemur; á síðustu sjö árum hefur
sala á vínylplötum sjöfaldast vestan hafs
svo dæmi sé tekið og hér á landi selja
menn alla jafna vel af vínyl.
* Formagnarar fyrir plötuspilara getaverið á stærð við sígarettupakka eða
þar um bil og kostað 5-7.000 kr. og
upp í það að vera á stærð við plötu-
spilarann sjálfan og jafnvel stærrri og
verðið þá jafnvel komið upp í hundruð
þúsunda króna. Alla jafna á það við að
betri hljómur fæst fyrir meiri peninga,
en það er alls ekki einhlítt.
Græjan
ÁRNI
MATTHÍASSON
Hljómur skipti öllu í eina tíð og miklu fé og miklum tíma eyddu
menn í að nálgast fullkomnunina. Með tímanum hætti hann að
skipta svo miklu hjá þorra hlustenda sem fórnuðu glaðir hljóm-
gæðum fyrir þægindi; það skipti meira máli að gera verið að ferð-
inni með músíkina en að hún hljómaði frábærlega.
Fyrir vikið þarf hljómur ekki lengur að vera fullkominn og ekki
einu sinni næstum fullkominn – hann þarf bara að vera nógu góður.
Að því sögðu þá finna þeir sem eru með ódýrar græjur mjög
fljótt fyrir því þegar tækin verða betri (og dýrari), ekki síst ef þeir fá
sér betri hátalara og betri magnara. Í hljómi eins og í öðru sem
verður að áráttu komum við fljótlega að þeim stað þegar rétt er að
láta staðar numið, hætta að kaupa sverari og sverari hátalarasn-
úrur, rafmagnssíur og milljónagrindur undir græjurnar.
Hvað samanburðinn á vínyl og geisladisk varðar þá er það vissu-
lega rétt að framan af geisladiskavæðingunni varð hálfgert sleifarlag
á yfirfærslu yfir á stafrænt snið, aukinheldur sem ekki var alltaf afrit-
að af frumeintökum sem kom eðlilega óorði á geisladiskana hvað
hljóminn varðaði. Sú tíð er löngu liðin og alla jafna má treysta því
að geisladiskar eru unnir af fagmennsku og þá líka treysta því
að hljómurinn á þeim sé jafn góður eða, iðulega, betri en á
vínylnum.
Og líka – ekki falla fyrir goðsögninni um 24 bita 192 kHz
gagnasnið fyrir tónlist. Víst færðu miklu meiri upplýsingar, sex
sinnum meiri, en af venjulegum geisladiski, en það þýðir ekki
að tónlistin hljómi sex sinnum betur. Málið er nefnilega að stór
hluti tónsviðsins er utan heyrnarsviðs mannseyrans og þegar við
bætist að eftir því sem menn eldast, og eiga meiri peninga til að
kaupa dýrar græjur, þá daprast heyrnin, tíðnisvið hverfa og nið-
urstaðan er: Ekki fá þér Pono, nema kannski ef þú ert um eða innan
við tvítugt – eftir það er það sennilega um seinan.
FULLKOMINN HLJÓMUR
Frábært eða nógu gott
Pono-spilari Neil Young – meiri upplýsingar en dæmi
eru um áður, en ekki meiri hljómgæði.
Græjur
og tækni
Rafknúin sjálfrennireið
*Fyrir stuttu lét Elon Musk, eigandi Tesla bíla-verksmiðjunnar þau orð falla að banna ættibíla sem eru með menn við stýrið. Meðþessu vildi hann náttúrlega draga athygli aðþvi að á næstu vikum verður stýrkerfi Telsa-rafbílanna þannig uppfært að eftir það verðaþeir sjálfrennireiðar að nokkru leyti – geta
lagt í stæði mannlausir og líka komið sér úr
stæðinu og til ökumannsins.