Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2015, Qupperneq 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2015, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.3. 2015 U mræðan um samþykkt ríkis- stjórnarinnar á bréfi utanríkis- ráðherra hennar til Evrópusam- bandsins varð heldur dapurleg. Samt varð hún eins og við mátti búast. Ó, hve illt upphaf fékk Til aðildarumsóknar að ESB var stofnað snemma ár- ið 2009. Ekki hefur verið rætt um málið af heilindum síðan. Þá var línan lögð og allur ferillinn varðaður óheilindum, ósannindum, leikaraskap og blekkingum. Þó fór þar mál sem sumir aðstandenda sögðu það mikilvægasta sem rekið hefði á fjörur þessarar þjóð- ar. Þjóðin sú var þá í uppnámi, illa löskuð eftir dramatíska atburði haustsins á undan. En nú hefur komið á daginn og er almennt viður- kennt, ekki síst ytra, að í beljandanum sem brast á brugðust íslensk peningamálayfirvöld hárrétt við. Þau ákváðu á ögurstund að öllu varðaði að þjóðinni yrði ekki gert að axla ábyrgð annarra á því sem gerst hafði. Það tókst að leggja þessa línu þótt valdamenn og valdablokkir Evrópu hefðu aðra stefnu og sóttu hana af harðfylgi. Í Evrópu var ákveðið í hásölum valdsins að hagsmunir lánastofnana skyldu ganga fyrir öllu öðru. Þar var illum launað. Stjórnendur þeirra höfðu breytt sér í spákaupmenn og átt á tryll- ingslegum uppgangstíma óeðlilega samfylgd með peningalegum áhættufíklum. Velferð þessara var nú sett í forgang og saklaus al- menningur landa evrunnar látinn tryggja skaðleysi skaðvaldanna. Íslendingar voru beittir miklum þrýst- ingi um að fara sömu leið. Sú saga hefur ekki enn öll verið sögð. Það var erfiðara að standast þann þrýsting og hót- anir sem honum fylgdu, vegna þess að innlendir að- ilar, þar með taldir allir fjölmiðar landsins, einnig Morgunblaðið, lögðust á sveif fjárglæfranna. Sama liðið fór síðar hamförum í Icesave-málinu, sem ýmsir létu undan þá, og háir þeim síðan. Ef núverandi forysta hefði verið í Seðlabankanum haustið 2008 myndi Ísland vafalaust hafa farið leið Grikklands og Spánar. Blásið til valdsóknar og byltingar Á haustmánuðum ársins 2008 hófust með leynd þreif- ingar stjórnarflokksins Samfylkingarinnar og Vinstri grænna um að sprengja ríkisstjórn Geirs H. Haarde. Mótmæli voru skipulögð á strategískum stöðum og athygli markvisst beint frá þeim sem spilað höfðu stærsta rullu í ógöngunum. Að lokum var svo komið að engu mátti muna að hið fámenna hugrakka lög- reglulið landsins fengi ekki tryggt að skríll næði ekki stjórnkerfinu á sitt vald. Fjölmargir, sennilega flestir sem tóku þátt í mótmælunum, gerðu það af réttlátri reiði, en ekki til að kollvarpa hinu seinfengna lýðræði landsins. Í fyllingu þessara óláta splundraðist ríkisstjórnin og ný var mynduð. Sú var minnihlutastjórn undir for- ystu þess flokks sem allra flokka mest hafði ýtt undir hömluleysi útrásarvíkinga og gert allt sem mátti til að koma í veg fyrir að spyrnt væri við fótum. En þeg- ar stjórn var mynduð undir forystu þess sama flokks duttu öll mótmæli í dúnalogn. Gott skipulag og ótrú- lega samræmdur áróður höfðu skilað sínu. Framsóknarflokkurinn lét undan þrýstingi og veitti ríkisstjórninni hlutleysi, sem var óþarfi, því að forseti hefði skipað minnihlutastjórn án þess. Hlut- verk minnihlutastjórnarinnar var að undirbúa kosn- ingar, en hún lét ekki við það eitt sitja. Sjálfstæðis- flokkurinn var sem lamaður í þinginu, ef frá eru taldir reyndir þingmenn á borð við Björn Bjarnason og Sturlu Böðvarsson. Kosningabaráttan var fyrir- sjáanleg. Sjálfstæðisflokkurinn tók þann kost að ráði almannatengla að vera með „afsakið-fyrirgefið þið“- upplit alla kosningabaráttuna og sogaði þar með til sín alla sök á áfallinu sem varð, á meðan Samfylk- ingin, flokkur útrásarvíkinganna, komst upp með að láta eins og hún hefði komið til landsins daginn áður, eftir langa dvöl á suðurskautinu. Falska flaggið dregið niður Það stefndi strax í sigur „vinstri“-flokkanna tveggja og að mynduð yrði „hrein“ vinstristjórn en Framsókn fengi ekkert fyrir sinn snúð. En engum datt í hug að fyrsta verk nýrrar vinstristjórnar yrði að gjörnýta hið íslenska tjón og koma þjóðinni vankaðri inn í ESB, ekki frekar en að hin tæra vinstristjórn myndi gefa erlendum kröfuhöfum tvo stærstu banka Íslands! Mönnum var vorkunn varðandi fyrra atriðið. Allir vissu að Vinstri grænir, undir forystu hins skelegga Steingríms J. Sigfússonar, voru langhörðustu and- stæðingar aðildar Íslands að ESB. Ýmsir töldu, þegar þarna var komið, ástæðu til að óttast að Sjálfstæðis- flokkurinn yrði ónýtur í þessu máli. Töldu jaðar- stuðningsmenn flokksins því nauðsynlegt að setja at- kvæði sitt á þá sem helst mætti treysta í þessu örlagamáli. Þeir, eins og hefðbundnir kjósendur VG, gengu öruggir til svefns síðasta kvöld kosningabarátt- unnar. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, hafði talað tæpitungulaust, eins og svo margoft áður. Ekkert fór á milli mála. Orðaskiptin voru þessi: Sigmar Guðmundsson: „Kemur það til greina Stein- grímur bara svo ég spyrji þig – bíddu Ástþór – kemur það til greina að hefja undirbúning að því að sækja um, strax núna eftir kosningar …“ Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG: „Nei!“ Sigmar Guðmundsson: „… vegna þess að þannig hefur samfylkingarfólkið talað.“ Steingrímur J. Sigfússon: „Nei!“ Sigmar Guðmundsson: „Að þetta byrji í sumar?“ Steingrímur J. Sigfússon: „Nei!“ Sigmar Guðmundsson: „Hvenær getur þetta byrj- að?“ Steingrímur J. Sigfússon: „Það samrýmist ekki okkar stefnu og við hefðum ekkert umboð til slíks. Og þó við reyndum að leggja það til, forystufólkið í flokknum, að það yrði farið strax í aðildarviðræður, Morgunblaðið/Golli Framsöguháttur, við- tengingarháttur og aula- háttur eru ekki allir skyldir mér og gettu nú, sagði aulabárður Reykjavíkurbréf 20.03.15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.