Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2015, Page 64
SUNNUDAGUR 22. MARS 2015
Breski sjónvarpsmaðurinn Jeremy
Clarkson, stjórnandi hins vinsæla þátt-
ar Top Gear á BBC, hefur heldur betur
verið milli tannanna á fólki í vikunni
eftir að honum var tímabundið vikið úr
starfi vegna gruns um ósæmilega hegð-
un. Honum er gefið að sök að hafa
slegið framleiðanda þáttarins og látið
miður falleg orð falla í garð samstarfs-
manna.
Sem kunnugt er vann Clarkson að
þáttagerð með íslenska fyrirtækinu
Arctic Trucks á Norðurpólnum fyrir fá-
einum árum og á nokkra vini og kunn-
ingja hér á landi. Emil Grímsson, fram-
kvæmdastjóri Arctic Trucks, vildi ekki tjá
sig beint um téð vandræði Clarksons þeg-
ar Sunnudagsblaðið sló á þráðinn til hans
en sagði reynslu sína af samstarfi við
hann mjög góða. „Hann hefur reynst vel í
öllu sem snýr að okkur. Það var í senn
lærdómsríkt og gott að vinna með honum.
Hann er fagmaður fram í fingurgóma
þegar kemur að því að gera gott sjón-
varpsefni og útkoman úr okkar samstarfi
var frábær sjónvarpsþáttur,“ segir Emil.
Jeremy Clarkson, eitursvalur
að vanda. Eða í vanda?
Lærdómsrík samvinna
Emil Grímsson, fram-
kvæmdastjóri Arctic Trucks.
HINN UMDEILDI JEREMY CLARKSON
AFP
„Sagt er að ljósmyndin ljúgi ekki,
þótt stundum sé erfitt að trúa því,
sem ljósmyndarar festa á plöt-
urnar.“
Með þessum orðum hefst frétt í
Morgunblaðinu sunnudaginn 21.
mars 1965 undir fyrirsögninni:
Dómkirkjan í spéspegli. Galsi hef-
ur verið í viðkomandi blaðamanni
þegar hann settist við ritvélina, all-
tént ef marka má framhald frétt-
arinnar.
„Sveinn Þormóðsson tók þessa
mynd um daginn af Dómkirkjunni,
og ekki er annað að sjá en hún sé
öll hallandi og ankannaleg, að ekki
sé minnst á hornið á Alþingishús-
inu, sem virðist vera að falla yfir
hana, og rambandi sýnast ljósa-
staurar á næstu grösum. Máski
hafa þeir verið á Barnum á Hótel
Borg?“ veltir blaðamaðurinn fyrir
sér í texta sem hann skrifar með
myndinni.
Skýringin mun vera sú að mynd-
in er tekin með 28 millimetra gleið-
hornslinsu, og þess vegna er þetta
allt svona skrýtið, hús og staurar.
GAMLA FRÉTTIN
Ölvaðir
ljósa-
staurar
Dómkirkjan öll ankannaleg fyrir fimmtíu árum, eins Alþingishúsið og svei
mér ef ljósastaurarnir eru ekki við skál. Hvað var eiginlega á seyði?
Morgunblaðið/Sveinn Þormóðsson
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
James Collins
leikmaður West Ham
Steingrímur J. Sigfússon
alþingismaður
Gísli Einarsson
sjónvarpsmaður
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
Allt fyrir
FERMINGUNA
79.900 kr.
Svefnsófimeð legubekkmeð ljós- eðadökkgráuáklæði.
L 225 xD151cm. Svefnflötur 140 x197cm.Hægt er aðhafa
legubekkinnhægra eða vinstramegin. 79.900kr.
Savona-svefnsófi
Grjónapúði, ýmsir litir. 135 x 160 cm. 100% pólýester. 14.900 kr.
24seven-grjónapúði
Svartur stóll með textílleðri.
16.900 kr.
Bello-skrifborðsstóll
DýnanermeðEcopokafjöðrun, 200stk. á fermetra. Bonell fjöðrun110stk.
á fermetra í rúmi. Rúmið ermeð fallegu svörtu áklæði úr pólýester. Dýnaner ekki svæðaskipt.
40mmyfirdýnameðmjúkumsvampi og fætur fylgja. 150 x200kr. 89.900kr. Nú62.930kr.
Einnig til 180 x200cm.
DreamZen full 150 x200cm
Krómborðlampi. 70 cm. 5.995 kr.
Hobbydeluxe-borðlampi
Hvít, drapplituð eða grá gæra.
14.900 kr.
Sheep-gæra
14.900 kr. 5.995 kr.
16.900 kr.
14.900 kr.
Svart eða hvítt skrifborð. 60 x 120 cm. 39.900 kr.
Writex-skrifborð
39.900 kr.
Dream
ZenFull
150 x200cm
62.930