Morgunblaðið - 24.04.2015, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 4. A P R Í L 2 0 1 5
Stofnað 1913 95. tölublað 103. árgangur
ǴYRÐIR HLAUT
ÞÝÐINGAR-
VERÐLAUNIN
RANNSAKA
HÆGARI
HUGSUN
HERRAMENNSKA
Í HÁVEGUM HÖFÐ
Á ÝMSUM SVIÐUM
VÍSINDAMENN 12 16 SÍÐNA SÉRBLAÐLISTIN AÐ VERA EINN 30
Sumardagurinn fyrsti stóð undir nafni í Vest-
manneyjum sem sumardagur. Heilsaði með
norðan golu og sól. Vestmannaeyjabær bauð
bæjarbúum af því tilefni frítt í sundlaugina og
frítt á öll söfn bæjarins. Margir nýttu sér það,
ekki síst að fara í sund og sóla sig á útisvæðinu. Í
Reykjavík var Víðavangshlaup ÍR hlaupið í 100.
skipti og var metþátttaka. Á norðurhluta lands-
ins var hins vegar kalt og víða snjór yfir. »13
Sumardagurinn fyrsti bauð upp á ýmsar útgáfur í veðrinu
Morgunblaðið/Ómar Garðarsson
Stóð undir nafni í Vestmannaeyjum
Baldur Arnarson
Guðni Einarsson
Verkfall dýralækna í BHM er farið
að bitna á velferð dýra, einkum kjúk-
linga, að mati Steinþórs Skúlasonar,
forstjóra Sláturfélags Suðurlands.
Hann sagði verkfall dýralækna hafa
komið verst við kjúklingafyrirtækin.
„Þetta er sannarlega farið að bitna
á saklausum dýrum og koma niður á
dýravelferð. Þegar þrengslin í eldis-
húsunum eru komin yfir ákveðin
mörk eins og nú þá kemur það niður
á líðan fuglanna,“ sagði Steinþór.
„Þetta er komið að þeim mörkum að
ég tel að þetta sé brot á lögum um
dýravelferð.“
Hann sagði dýrin líða fyrir að ekki
væru veittar undanþágur til slátrun-
ar. Nauðsynlegt væri að fá þær svo
hægt væri að slátra úr eldishúsun-
um. Steinþór sagði það vera gegn
nútímasjónarmiðum að lóga kjúk-
lingunum með gasi til þess eins að
urða þá.
Standi verkfallið áfram verða
brátt einnig orðin of mikil þrengsli á
svínabúunum.
Verkfall félagsmanna BHM hjá
sýslumanninum á höfuðborgarsvæð-
inu kemur þungt niður á verktökum
og viðskiptavinum þeirra, ef það
dregst á langinn gæti það sett strik í
nýframkvæmdir. Fyrir vikið gæti
uppbygging íbúðarhúsnæðis á höf-
uðborgarsvæðinu tafist.
Þetta segir Svanur Karl Grjetars-
son, framkvæmdastjóri verktakafyr-
irtækisins MótX, og bendir á að
bankarnir afgreiði ekki ný útlán til
nýframkvæmda ef ekki er hægt að
þinglýsa samningum.
Greiðslur berast ekki
„Verkfallið hefur gífurleg áhrif.
Öll vinnsla hjá sýslumanninum er
stopp. Áhrifin eru þau að greiðslur
sem okkur eiga að berast gera það
ekki. Kaupsamningar eru aðeins
dagbókarfærðir en fara ekki í þing-
lýsingu. Allt ferlið verður þyngra og
kostnaðarsamara fyrir alla, sérstak-
lega viðskiptavini.
Við þurfum að leita nýrra leiða til
að finna fjármagn. Verkfallið hefur
því keðjuverkandi áhrif. Það kemur
til með að hægja á framkvæmdum og
á öllu flæði fjármagns inn í geirann.
Það er ekki þinglýst lánum á ný
verkefni, enda lán ekki greidd út
fyrr en búið er að þinglýsa verkun-
um. Lánalínur sem fyrirtækin draga
á lokast. Þetta á við ný verkefni sem
áttu að hefjast eftir að verkfallið
hófst,“ segir Svanur Karl.
Brotið gegn dýravelferð
Verkfall BHM hefur áhrif á dýr og menn Verkfall hjá
sýslumanni gæti tafið framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu
MGæti skaðað »6
Morgunblaðið/Sverrir
Þrengsli Verkfall stoppar slátrun.
Fundur er boðaður í kjaradeilu
BHM og ríkisins klukkan 16.00 í
dag, að sögn Páls Halldórs-
sonar, formanns samninga-
nefndar BHM. Hann segir að
nokkuð berist af undanþágu-
beiðnum. Í heilbrigðiskerfinu sé
horft til þess að þjónustan
skerðist ekki svo að lífi eða
heilsu fólks sé ógnað.
Félagar í Félagi háskóla-
menntaðra starfsmanna stjórn-
arráðsins (FHSS), sem starfa
hjá Fjársýslu ríkisins, sam-
þykktu í fyrradag boðun ótíma-
bundins verkfalls frá 11. maí nk.
þegar núverandi tímabundnu
verkfalli lýkur. FHSS veitti und-
anþágu til að greiða út barna-
bætur um næstu mánaðamót.
Fundað í
BHM-deilunni
NOKKUÐ UM
UNDANÞÁGUBEIÐNIR
„Það er daglega verið að afbóka, er-
lendir ferðamenn koma ekki. Þeir
vilja ekki koma úr Þorlákshöfn,“ seg-
ir Magnús Bragason, hótelstjóri á
Hótel Vestmannaeyjum. Hann segir
áhrif þess að Landeyjahöfn hafi verið
lokuð í vetur og í vor slæm fyrir
rekstur fyrirtækja í ferðaþjónustu í
Eyjum og að hótelið hafi orðið af tug-
milljóna króna tekjum vegna lok-
unarinnar. „Það verður að fara að
opna Landeyjahöfn,“ segir hann en
höfnin hefur nú verið lokuð í 152
daga.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru Eyjamenn bjartsýnir á
að það takist að opna höfnina um
miðja næstu viku. Reiknað er með að
Perla, dæluskip Björgunar ehf., hefji
dælingu í dag. Gunnlaugur Krist-
jánsson, forstjóri Björgunar, segir að
útlit sé fyrir góðar aðstæður til dýpk-
unar á næstu dögum. Því er spáð að
ölduhæð fari undir einn metra í dag
og haldist þannig næstu daga.
Mikið verkefni
Þá var sanddæluskipið Sóley lagt
af stað frá Reykjavík til Land-
eyjahafnar seint í gærkvöldi og átti
að vera komið þangað með morgni.
Dæla þarf yfir 100 þúsund rúmmetr-
um af sandi úr höfninni. »4
Hafa orðið
af tugum
milljóna
„Verður að opna
Landeyjahöfn“
Eftir nokkrar
vikur hefjast
jarðvegsfram-
kvæmdir við
byggingu sjúkra-
hótels við nýja
Landspítalann
við Hringbraut.
Sjúkrahótelið
verður á norður-
hluta lóðarinnar þar sem bílastæði
við kvennadeild Landspítalans er.
Aðkomunni að spítalanum verður
breytt og verður hún norðan við
Barónsstíginn. »18
Vinna við sjúkrahótel
hefst fljótlega
Þúsundir
manna hafa
þurft að yfirgefa
heimili sín vegna
eldgoss í eldfjall-
inu Calbuco í
suðurhluta Síle.
Páll Einarsson
jarðeðlisfræð-
ingur segir að
skyndilegu gos-
inu svipi til gosa í
Heklu. Hann bætir auk þess við að
enn eigi eftir að afgreiða ýmis mál
er varða Heklugos til að fyr-
irbyggja hættu fyrir ferðamenn og
flugumferð. »17
Gos Askan frá fjall-
inu er mjög mikil.
Þúsundir flúið heimili
vegna sprengigoss